Vikan


Vikan - 14.06.1990, Page 10

Vikan - 14.06.1990, Page 10
VIÐ OPOLITISKAN MANN < o < CQ ao Q O J2L Halli Thorst er staddur hér heima í stuttu leyfi til að koma ó laggirnar nýjum morgunþœtti Bylgjunnar - útvarpsstöðvarinnar sem hann dtti svo sterkan þdtt í að gefa andlit gegnum fréttastjórastöð- una og þóttinn Reykjavík síðdegis. Nú fjallar Hallgrímur ósamt Huldu Gunnarsdóttur um nýja strauma og stefnur milli klukkan sjö og níu órdegis ö gömlu útvarpsstöðinni sinni. Hann er snöggklipptur, í hvítum buxum, bdtaskóm og fallegum klœðis- jakka þegar við hittumst ó Hótel Óðinsvéum eitt rigningarsíðdegi í lok maí. Hann hefur breyst - ó sama hótt og kvikmyndastjörnur breytast milli hlutverka. Klippingin og gleraugun gera að verkum að hann virðist þroskaðri en maður hefur ó tilfinningunni að tœki hann af sér skjóina og léti hórið vaxa ó ný stœði þar gamli Hallinn og segði: Allt í plati! Hann keðjureykir Camel með filter meðan ó viðtalinu stendur og kveikir í með gulllitum Zippo sem ó er letrað: Til Halla fró fréttastof- unni 1988. En hvers vegna fór Halli af fréttastofunni? E g stefndi alltaf aö því aö fara í fram- haldsnám. Ég kom hingað heim 1980 meö B.A. próf í fjölmiðlun frá háskóla í Portland í Oregon og fór þá strax aö vinna hjá Ríkisútvarpinu og svo á Bylgjunni. Svo uröu mikil straumhvörf hjá mér fyrir þremur árum. Ég skildi við fyrri konu mína, hóf nýja sambúö, hætti í vinnunni og fór utan til að setjast á skólabekk. Mig lang- aöi alltaf út aftur og það er í rauninni algengt núna aö fólk stefni aö þriggja starfsbrauta lífi. Heimurinn og lífiö hefur svo margt upp á aö bjóöa aö fólk getur ekki lengur sætt sig viö bara eina braut allt lífiö. En mér finnst líka aö tilveran þurfi aö hafa einhvern samhljóm. Það þarf aö vera hægt aö koma með tilbrigði við stefið en ekki bara aö vera ríma eöa fer- skeytla. Þaö er vel hægt aö dáleiðast af slíkum dansi.“ Hallgrímur býr ásamt unnustu sinni í East Village á Manhattan og segir aö þarna sé alger suðupottur og reglulega komi til óeirða milli heimilislausra og lögreglu. Krakkfaraldurinn og sfaukinn straumur innflytjenda til borgarinnar geri að verkum aö heimilisleysið sé oröiö of- boðslegt og fólk grípi oft til örþrifaráða. „Þau eru hrikaleg, dæmin sem maður sér um hve illa fólk fer út úr eiturlyfjaneyslu. Ég tók þá á- kvöröun mjög snemma aö láta allt slíkt alger- lega vera,“ segir Hallgrímur alvarlegur í bragði. En hvernig er skólinn? „Deildin, sem ég er í viö New York háskóla, var stofnuð upp úr 1970, þegar kapalsjónvarp og vídeótexti og öll sú bylting var að hefjast. Deildin hét fyrst Alternate Video Center og ein- beitti sér aö því aö kenna öðruvísi notkun á fjölmiölum heldur en þessa beinu miöstýröu mötun sem viö eigum að venjast hérna frá upphafi gegnum þetta eina stóra blaö og þenn- an eina stóra ríkisfjölmiðil. Núna heitir þessi deild The Interactive Telecommunications Program og álítur sitt hlutverk vera aö skoöa þá tækni sem er að koma fram. Okkur eru boö- in námskeið í tæknimálum, í fjölmiðlalögum, nánast í hvaöa miðli sem er. Svo skoðum við fleiri möguleika sem tæknin býöur upp á. Er eingöngu hægt aö nota hlut eins og geisladisk til aö gefa út vinsæla tónlist eöa má nýta hann í menntakerfinu? Það má vel setja á geisladisk mikiö af upplýsingum í mynd, texta og hljóði og svo má fara í gegnum þetta efni þannig að nemandinn þurfi að svara disknum til aö kom- ast yfir í næsta kafla. Nú eru menn að reyna aö átta sig á hvað fólk vill fá og hvað selst þvf svona starfsemi á ekki að vera ríkisstyrkt heldur á hún aö bera sig. Bandaríkjamenn þora ekki aö taka eins mikla áhættu og Japanir því Kanarnir eru alltaf að horfa á niðurstööur síöasta ársfjórðungs og svo er fjármagn dýrara í Bandaríkjunum. Alls kyns þjónusta er seld í gegnum síma og sá sem notar kapalsjónvarp getur pantað þá mynd sem hann vill sjá. Hún er þá send heim til hans gegnum kapalinn og hann getur jafnvel valið úr fjórum mismunandi tegundum endis á myndina. Fax, sími og tölvur og sjónvarp eru aö renna saman og þetta er mjög spennandi umhverfi aö vera í. Ég er verulega sæll meö aö hafa geymt mér að taka þetta nám því þaö er ein- mitt núna sem þessir hlutir eru aö gerast. Fjölbreytnin í fjölmiölum í Bandaríkjunum heillaði mig alltaf. Þótt markaðsöflin geri þaö aö verkum að þetta er allt ósköp svipað eru þarna stöðvar sem eru styrktar af almenningi, spænsku- og japönskumælandi kapalstöövar og fleira og fleira. Kapalstöövarnar eiga sér fimmtán ára sögu í Ameríku og nú er önnur bylting í sjónmáli því eftir að símakerfin verða búin að koma Ijós- 'eiðara út um allt og í heimahús opnast mögu- leiki fyrir símafyrirtækin aö dreifa sjónvarps- efni. Þau mega þaö ekki núna, mega ekki framleiða eöa dreifa ööru efni en símtölum og gagnaflutningi. Nú er hins vegar veriö aö sækja það mjög fast aö gefa þetta frjálst og opna þar mögu- leika fyrir símann aö keppa við kapalsjónvarp- iö en fyrir nokkrum árum var einokun í síma- málum aflétt í Bandaríkjunum. Þetta leiddi af sér ofsalega samkeppni á þessum markaöi og ég vil gjarnan koma því aö aö þetta er vitan- lega þróunin og nú þurfa íslendingar aö ein- beita sér aö því aö skoöa sín símaeinokun- armál. Það skiptir okkur til dæmis miklu máli aö geta fylgst vel meö því sem er að gerast í Evrópu og helst að tengjast þar gagnabönk-

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.