Vikan - 14.06.1990, Side 17
KRABBINN VALDIM
Krabbinn Valdimar Flygenring er í miðju merk-
inu, fæddur 5. júlí 1959. Þessi faeðingartími
gefur honum Merkúr ( Ijóni, Venus og Mars í
meyju. Merkúr sfjórnar huganum og Ijónið
hjartanu svo viðkomandi ætti að vera flug-
greindur en geta um leið veitt fólki hlutdeild í
tilfinningum sínum. Þetta er fæddur leiðtogi
sem getur reiðst þegar hann ekki fær vilja sín-
um framgengt en er fljótur til að fyrirgefa. Þessi
einstaklngur er líklega stoltur og jafnvel grobb-
inn en hefur mjög líklega mikla persónutöfra.
Hann gæti öðlast aðdáun annarra gegnum
ræðumennsku, sem leikari eða rithöfundur og
ef hann ekki kemur fram sjálfur gætu hæfileik-
ar hans til að stjórna vinsælum skemmtunum
fært honum mikla velgengni.
Um Venus í meyju segir að viðkomandi eigi
Kklega fleiri kunningja en vini vegna þess að
hann heldur fólki frá sér; hann sé tillitssamur
en aldrei ástfanginn af heilum huga. Hann er
afar gagnrýninn á þá sem bjóða honum ást
sína og á til að sálgreina þá svo rækilega að
hann kemst ekki hjá því að finna á þeim galla.
Þótt hann verði ástfanginn er hann enn mjög
praktískur en sér þó oftast til þess að maki
hans lifi þægilegu lífi. Fólk með þessa stöðu,
sem ekki finnur sína einu ást, kýs stundum að
þjóna mannkyninu í staðinn og til marks um
það eru margir læknar og hjúkrunarkonur sem
sinna sjúklingum sínum af kostgæfni. Þetta er
einnig sögð góð staða fyrir rithöfunda og
leikara sem geta gegnum hana túlkað tilfinn-
ingar sem þeir skilja vitsmunalega en finna
ekki til.
Um Mars í meyju segir að viðkomandi hafi
sterkan vilja en öðrum geti virst þeir harð-
brjósta. Vegna þess að tilfinningarnar blandast
aldrei í athafnir fólks með þessa stöðu er það
líklega mjög góðir leikarar. Þetta fólk er stolt og
metnaðargjarnt og auk þess sérlega hæft. Þó
er líklegt að það sé ekki eins vinsælt og þeir
sem leggja á sig minni hömlur.
mislynds manns sem á sér þúsund leynda
drauma og uppáhalds stúlkan hans hefur lagt
blessun sína yfir ráðahaginn.
ATHAFNIR OG SJÁLFSTJÁNING
Frumkvæði krabbakonunnar knýr hana til at-
hafna og sjálfstjáningar. Það er akkeri hennar
við nútíðina þó hún kysi miklu frekar að lifa í
fortíðinni. Vegna frumkvæðis síns þráir hún oft
að víkka heim sinn út fyrir heimilið. Vegna
þess að hún er vatn er hún oft treg til þess.
Hún er hrifnæm, hugmyndarík, dulræn,
huglæg, dramatísk og lætur eftir sjálfri sér.
Hún á gott með að taka við og halda í sér
hvers konar orku, dulrænum hughrifum jafnt
sem fastri fæðu en á erfitt með að losna við
hana. Hún safnartil mögru áranna og því hlað-
ast upp í henni ónauðsynlegar tilfinningar og
fita sem hún verður að berjast við alla ævi.
MISLYND OG DRAMATÍSK
Þótt hún sé mislynd og innhverf jaðrar tilfinn-
ingalegt innsæi hennar við skyggnigáfu. Þótt
hún sé dramatísk veigrar hún sér við sjálfs-
þekkingu og að opna sig innilega. Hún er þó
engin mubla. Hún tekur oft að sér ábyrgðar-
mikil störf í samfélaginu og verður vinsæl. Hún
getur orðið fyrirtaks ræðukona, söguþulur og
grínisti.
FASTHELDIN OG ÍHALDSSÖM
Fastheldnin mótar hana á allan hátt. í pólitík er
hún oft íhaldssöm og vill varðveita gildi og lífs-
hætti fortíðarinnar. Hún er sparsöm og vill
halda í peningana. Hún reynir að halda lengi í
vinskap. Siðvenjur um jól og afmæli eru henni
að skapi og í ástinni heldur hún líklega fast í
maka sinn og umhverfi.
óni
Ótti dregur iðulega úr sjálfsöryggi hennar og
getur hindrað þroska hennar með því að eyða
alveg framtaksseminni. Hann á sök á víð-
kunnri ofvernd hennar á börnum sínum og því
hvað hún bælir annað fólk. Hún trúir því að
góö máltíð og fallegt heimili geti kippt svo til
öllu í liðinn.
Henni líður illa þegar ósamkomulag og
árekstrar verða eða vonbrigði og særindi. Hún
óttast líka aðhlátur. Af því hvaö hún er mikið á
varöbergi er erfitt fyrir aðra að vita hvað henni
finnst.
Krabbakonan er feimin en hefur ríka
kynhvöt. Innsæi hennar er sterkt en hún er líka
mjög skynhneigð. Þessa blöndu standast fáir
karlmenn. Þótt hún klífi þjóöfélagsstigann er
skynjun hennar alltaf djúp og kynferðisleg nátt-
úra hennar ólgar af þrá og losta. Tal hennar,
lykt, matargerð og bros geisla af kynþokka,
sem einnig birtist í því hvernig hún skapar dul-
úð með líkama sínum og mislyndi.
ÚTSMOGIN EN BJARTSÝN
Hún er stundum útsmogin og oft blekkjandi,
hlédræg en þó bjartsýn. Hún er fæddur póli-
tíkus vegna áhuga síns á slúðri og lagni við að
notfæra sér veikleika fólks. Hún vill vera fremst
og hún verður að vera númer eitt, tvö og þrjú
hjá fjölskyldu sinni.
Ástfangin er krabbakonan undantekninga-
laust töfrandi. Henni tekst að vera nógu bjarg-
arlaus til að maðurinn sjái um hana en er nógu
næm og sjálfstæð til að leggja mikið á sig til að
þjóna honum. Undirgefni fer henni vel því hún
lætur undan með glampa og spekingssvip í
augum. Hún þarf mann sem getur veitt henni
mikið öryggi, tilfinningalega jafnt sem fjárhags-
lega.
Eitt af því sem vekur hvaö mesta reiði henn-
ar er að vera sniðgengin. Fái hún ekki viður-
kenningu verður hún reið. Annað sem vekur
henni reiði er þegar einhver sem hún hefur
elskað og verndað ákveður að verða sjálf-
stæður. Hún vill vera ómissandi og ráða ferð-
inni. Hún verður að læra að sigrast á þessu
óöryggi til að geta sleppt taumhaldinu á sjálfri
sér. Krabbakona, þú vilt ekki að neinn eigi þig;
því þá að reyna að eiga aðra?
12. TBL. 1990 VIKAN 17
LJÓSM.: PÁLL KJARTANSSON