Vikan - 14.06.1990, Page 20
TEXTI: ÞÓRDÍS BACHMANN
KRABBINN SVAVAR GESTSSON RÁÐHERRA:
vegna þess aö bæði jafningjar hans og undir-
sátar líta upp til hans og vilja fara aö dæmi
hans. Hann er metnaðargjarn og allar hans
hugmyndir eru stórar í sniðum. Þegar hann
skrifar eða talar er hann sannfærandi og kemst
vel að orði. Hann talar frá hjartanu og við-
brögðin við honum eru sömuleiðis frá hjartanu.
Svavar Gestsson spjallaði við Vikuna um
krabbamerkið og sjálfan sig. Menntamálaráð-
herra tekur á móti okkur í hornskrifstofu sinni í
gamla Sambandshúsinu. Hann er afslappaður
að sjá á stutterma skyrtu og svarar spurning-
um af einlægni og yfirvegun. Svavar er með
salt í blóðinu; ættaður úr Borgarfirði og Dölun-
um. Þegar við spyrjum um fæðingartíma hans
til að geta reiknað út tunglstöðuna og rísand-
ann fer hann beint í símann og hringir í móður
sína, Guðrúnu Valdimarsdóttur. Svavar er
frumburður hennar og elstur átta systkina en
það stóð ekki á svarinu hjá Guðrúnu, Svavar
fæddist klukkan tuttugu mínútur fyrir ellefu að
kvöldlagi.
Krabbinn lætur sér annt um heimili, börn
og fjölskyldu?
Menn í minni stöðu taka sér yfirleitt allt of lít-
inn tíma til að sinna sjálfum sér og fjölskyldu
sinni.
Karlmenn í krabbamerkinu eru mjög ná-
tengdir mæðrum sínum?
Það er rétt, ekki síst í seinni tíð. Annars var
ég einnig hændur að móðurömmu minni og
hún skipti mig mjög miklu máli allt frá barn-
æsku og þangað til að hún féll frá fyrir nokkrum
árum.
Krabbinn getur drekkt fólki í botnlausu
þunglyndi?
Þunglyndi er ekki mitt einkenni - hún er veiki
sem ég hef ekki kynnst um dagana. (Þarna
gæti gætt áhrifa frá rísanda því bogmaðurinn
er bjartsýnasta og eitt alhressasta merkið).
Krabbinn getur verið hefnigjarn?
Ég hugsa að menn séu almennt þeirrar
skoðunar að ég bíti mjög grimmt frá mér og sé
hranalegur ef mér er misboðið.
Krabbar eru forvitnir um allt sem liðið er?
Já, ég sóttist eftir að vera með öldruðu fólki
sem barn og spurði það þá spjörunum úr.
Krabbinn er sérfræðingur í að safna auði
og láta hann bera ávöxt?
Þveröfugt - það kann óg hreinlega ekki.
Hins vegar get ég vel sinnt fjármálum annarra,
samanber þegar ég sá um fjármál Þjóðviljans,
þaö gekk ákaflega vel.
Mars í Ijóni - metnaðargjarn og allar hug-
myndir stórar f sniðum?
Ég hef mikinn metnaö fyrir minn málstað og
sömuleiðis fyrir þetta ráðuneyti. Það er rétt að
sumum finnast mínar hugmyndir allt of stórar í
sniðum.
Mars í Ijóni á einnig að fylgja að viðkomandi
sé skapgóður og vinsæll og tjái sig af hlýju og
einlægni. Svavar færist undan því aö svara
þessu og segir að það verði aðrir að gera. Við
höfum því samband við gamlan og gróinn
skólabróður Svavars úr MR sem segir:
Þegar ég rifja upp rösklega 25 ára gamla
minningu þá vil ég alveg skrifa undir þessa lýs-
ingu á Svavari. Ég reikna hins vegar með því
að hann hafi breyst á þessum aldarfjórðungi
eins og við allir. □
„Þunglyndi ekki
mitt einkenni...“
Krabbinn Svavar Gestsson menntamálaráðherra er fæddur 26. júní
1944. Hann er rísandi bogmaður, með tungl í meyju og Merkúr (talanda)
í tvíburum sem ætti að gera hann lipran ræðumann, Venus í krabba og
Mars (framkvæmda- og kynorku) í Ijóni.
Rísandi bogmaður viröist alltaf vera
að flýta sér. Hann er hugrakkur og
bjartsýnn á lífið og tilveruna auk
þess að vera afar vinalegur og op-
inskár í tali. Þessi einstaklingur
reynir að forðast allar kringumstæður sem
hindrað geta eða takmarkað fyrirvaralausar at-
hafnir og getur þetta skapgerðareinkenni gert
fólk að tækifærissinnum.
Tungl í meyju gerir viðkomandi jarðbundinn
og hagsýnan en auk þess vandlátan og gagn-
rýninn, sérstaklega á náin sambönd.
Um Merkúr í tvíbura segir að viðkomandi
hafi mjög líkleg huga á borð við reiknivél, sé
góður rökhugsuður en eigi til að gleyma grunn-
forsendum í deilgm og draga þess vegna
rangar ályktanir. Það þurfi þó snjallan mótherja
til að gera sér grein fyrir þessu, því meðalmað-
urinn láti sannfærast af greindarlegum athuga-
semdum hans.
Um Venus i krabba segir að viðkomandi sé
skapgóður og vinsæl en ákaflega tilfinninga-
næmur og böndin við fjölskylduna séu sterk.
Þessir einstaklingar eigi erfitt með að standast
það ef hitt kynið sýnir þeim áhuga og til þess
að þeim líði vel verði þeir að fá tilfinningalega
útrás.
Mars í Ijóni bendir til að viðkomandi tjái sig á
opinn og öruggan hátt en einnig af hlýju og ein-
lægni. Þessi einstaklingur getur stjórnað
„Ég hugsa að menn séu almennt þeirrar skoðunar að ég blti mjög grimmt frá mér og sé hranalegur ef
mér er misboðið," svarar Svavar spurningu Vikunnar um hvort hann sé hefnigjarn eins og stjörnurnar
segja að sé eitt einkenni krabbamerkisins. u06m. imggi
20 VIKAN 12. TBL. 1990