Vikan - 14.06.1990, Page 23
venjum sínum valda þessar
athugasemdir barninu hugar-
angri gagnvart sjálfu sér. Þetta
gæti auk þess leitt til þess aö
telpan borðaði meira af þessu
„forboðna“ fæði á laun. í hvert
sinn sem foreldrar segja „Ekki
borða þetta“ heyra börnin „Þú
ert of feitur/feit til að eiga skiliö
að njóta matar“. Mörg börn,
sem eru of þung, segjast þjást
meira af viðbrögðum foreldra
sinna gagnvart offitu heldur en
þeirra eigin tilfinningu fyrir því
að vera of feit.
5. „Það er mikilvœgt
að vera grannur."
Vesturlandabúar eru fórnar-
lömb miskunnarlausra þver-
sagna. Þeir eru stanslaust
hvattir til að borða og jafnframt
er stöðugt verið að minna á
hversu mikilvægt er að vera
grannur. Ein auglýsing freistar
með girnilegri súkkulaðiköku
en sú næsta kynnir megrun-
arfæði. Skilaboðin eru: „Borð-
aðu hvað sem þig langar í en
þú skalt ekki dirfast að fitna."
Krakkar - þó sérstaklega
stúlkur á gelgjuskeiði - verða
fyrir áhrifum frá þessum skila-
boðum. í öfgafullum tilfellum
getur hræðslan við offitu leitt til
anorexia nervosa (megrunar-
sjúkdómur sem leiðir til van-
næringar, ofmegrunar og jafn-
vel dauða) eða bulima (þá
belgir viðkomandi sig út af mat
og framkallar síðan uppsölur).
HRÚTURINN
21. mars - 19. apríl
Þeir sem standa í ástar-
sambandi þessa dagana eiga von
á skemmtilegum tímum. Það
verður mikið um ferðalög og þú
átt eftir að njóta lífsins til hins ýtr-
asta.
NAUTIÐ
20. apríl - 20. maí
Vikan framundan verður
þægileg og tíðindalítil. Þú hefur
nýverið fengið í hendurnar skila-
boð sem glöddu þig mikið. Svar-
aðu þeim fljótlega annars heldur
sendandinn að þau hafi ekki kom-
ist til skila.
WTVfBURARNIR
21. maí - 21. júní
Þú færð afar erfitt verk-
efni og mikið riður á aö þú standir
þig. Þér finnst erfitt að sætta þig
við annríkið en bráðlega fer að
hægjast um og þú kemst í gott og
langt fri.
Því meira sem stúlkunni er
umhugað um að vera grönn
því móttækilegri er hún fyrir
því að þróa með sér óreglu-
legar matarvenjur. Með því að
neita að taka þátt í þráhyggju
þjóðfélagsins um líkamsstærð
er hægt að draga úr sumum
þeim skilaboðum sem barnið
fær varðandi mat og líkams-
stærð. Ein leiðin er að sitja á
sér með athugasemdir, já-
kvæðar eða neikvæðar, um
þyngd barnsins eða annarra.
Kenna verður börnum að hver
einstaklingur hafi þyngd og
lögun sem hæfir þeirri mann-
eskju einni og hvorki geta allir
né ættu að vera eins og sýn-
ingarstúlkur í útliti. Ef börnum
er kennt að grannur líkami geri
fólk ekki gáfaðra, betra eða
eftirsóknarverðara vaxa þau
úr grasi sáttari við sjálf sig og
aðra.
6. „Ég hata
líkama minn.“
Besta leiðin til að innræta
börnum heilbrigð viðhorf
gagnvart fæðu og mataræði er
að sjálfsögðu góð fyrirmynd
foreldra. Þetta þýðir að þið
virðið líkama ykkar, sama
hvaða stærðar hann er, borðiö
næringarríkan mat og aðeins
þegar þið eruð svöng. Hvað ef
þið ekki getið sýnt gott for-
dæmi? Ef þið þjáist af ein-
hvers konar vandamálum
varðandi mat gætuð þið ein-
sett ykkur að miðla til barn-
anna að þið vilduð óska þess
að þið væruð ekki tilfinninga-
legt átvagl eða í óstöðvandi
megrunarkúr. Styrkið heilbrigt
viðhorf og háttarlag barna
ykkar. Það getur verið að þið
séuð ekki í sambandi við
merkjamál líkamans varðandi
matarlyst og hungur en þið
getið hvatt börnin til að læra á
sitt merkjamál. Ef þið virðið
eðlilegt skyn barna ykkar varð-
andi mataræði læra þau það
einnig.
Ofangreind atriði munu ekki
aðeins koma i veg fyrir vanda-
mál barna varðandi mataræði,
þau gætu líka hjálpað til við að
lagfæra þau vandamál sem
fyrir eru. Fyrsta skrefið er
ykkar, sem foreldra, að breyta
þeim skilaboðum sem þið
sendið börnum ykkar varðandi
matarvenjur, úr neikvæðum í
jákvæð. Barn, sem þjáist af of-
áti, á auðveldara með að
leggja af ef það finnur ekki fyrir
sektarkennd eða feimni vegna
þess. Sá sem þvingar sig til að
borða eða er í megrun er lík-
legri til að hætta ofáti eða
megrun ef hann sannfærist
um að hann sé einhvers virði,
dýrmæt persóna, hvernig svo
sem líkaminn er á sig kominn.
Hér á eftir eru nokkur mikilvæg
atriði sem hafa ber í huga:
• Því yngra sem barnið er því
meiri möguleikar eru til að
hjálþa því að byggja upp
heilbrigðar matarvenjur.
• „Þyngdarvandamál“ eru
ekki endilega vegna þess
að matarvenjur séu
slæmar. Sum börn eru eðli-
lega aðeins þyngri eða að-
eins grennri en önnur börn.
• Breytingar á matarvenjum
eru eðlilegar hjá börnum
sem eru að stækka. Hins
vegar geta merkjanlegar
breytingar á matarlyst bams
eöa þyngd gefið til kynna til-
finningaleg vandamál. Börn
geta líkt og fullorðnir byrjað
að borða meira eða minna
en venjulega þegar þau eru
döpur, hrædd eða þeim
finnst þau vera ófullkomin.
Ef þið verðið vör við slíkar
breytingar hjá börnum ykk-
ar ættuð þið að reyna að
finna út hvað angrar þau í
stað þess að gagnrýna
þyngd þeirra eða matarlyst.
• Leitið ráða hjá lækni eða
ráðgjafa ef ykkur grunar að
barn ykkar sé að missa tök-
in á matarvenjum sínum.
• Hættið að reyna aö hafa
áhrif á það sem skólabörn
láta ofan í sig þegar þau
eru ekki heima. Það er ekki
hægt. Til hvers er þá að
gera sjálfum sér gramt í
geði? Einbeitið ykkur frekar
að því að kenna þeim heil-
brigða lifnaðarhætti -
heima. Verið róleg og
treystið því að barnið fari
eftir því sem því var kennt -
þegar það er að heiman og
það sem eftir er ævinnar.
VERIÐ
RÓLEG
OG
TREYSTIÐ
ÞVÍ AÐ
BARNIÐ
FARI
EFTIR
ÞVÍ SEM
ÞVÍ VAR
KENNT
tjörnuspá.
KRABBINN
22. júní - 22. júlí
Þar sem þú ert mjög hæ-
verskur að eðlisfari færðu ekki þá
uppörvun sem þú raunverulega
þarfnast. Reyndu ekki að þreiða
yfir þá hluti sem vel eru gerðir,
það er engin ástæða til þess.
LJÓNIÐ
23. júlf - 23. ágúst
Þú hefur áhyggjur af því
að geta ekki staðið í skilum með
verkefni þín. Þær áhyggjur eru
óþarfar því þú ert þekktur fyrir að
vera samviskusamur og stunda
störf þín vel.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Kunningi þinn hefur
ágirnd á eign sem þértilheyrir. Þú
verður að gera það upp við þig
hvers virði þessi eign er þér. Þér
hættir til að sanka aö þér hlutum
hvort sem þeir nýtast þér eða
ekki.
SPORÐDREKINN
24. okt. - 21. nóv.
Það er verið aö skipu-
leggja einhvern fagnað þér til
heiðurs. Það mun koma þér á
óvart hve margir lögðu þar hönd á
plóg. Þér hættir til að sýna ekki
þakklæti þitt í verki.
STEINGEITIN
22. des. -19. janúar
Þú hefur samviskuþit
vegna einhverrar ógoldinnar
skuldar. Það er langbest að gera
strax hreint fyrir sínum dyrum. Þér
fer ekki vel að monta þig af eigin
verkum, hættu því strax.
VATNSBERINN
20. janúar- 18. febrúar
Kunningjar þínir eru að
gefa þig upp á bátinn. Það er ein-
vörðungu þér sjálfum aö kenna.
Þú hefur helgað þig starfinu og
sinnt lítið fjölskyldu þinni og félög-
um. Reyndu að breyta til hiö snar-
asta.
tMEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þú hittir á næstu dögum
mann sem hefur mikil áhrif á
framtíð þína. Þér hættir til að
gleypa við gylliboðum. Þú verður
aö temja þér vissa tortryggni í
garð ókunnugra, það er öruggast.
BOGMAÐURINN
22. nóv. - 21. des.
Vegna utanaðkomandi
áhrifa dragast ýmsar fram-
kvæmdir sem hafa verið á döfinni
hjá þér. Við því er ekkert að gera.
Þú hefur áætlað að fara í frí en
það mun dragasst eitthvað.
FISKARNIR
19. febrúar - 20. mars
Þú ert mikið í sambandi
við fólk sem stendur í fram-
kvæmdum. Hikaðu ekki við að
rétta hjálþandi hönd, jafnvel þó
það komi til meö að riðla áætlun-
um þínum. Launin skila sér.
12. TBL. 1990 VIKAN 23