Vikan - 14.06.1990, Blaðsíða 26
LJÓSM.: MAGGI
vor voru kosnar ungfrú Holly-
wood og sólarstúlka Úrvals-
Útsýnar. Prýöa þær myndirnar
í þessari opnu. Til marks um
þaö hve stúlkurnar kunnu allar
vel við sig á Costa del Sol má
geta þess aö þegar haldiö
skyldi heim aftur afréð Elín að
framlengja dvölina um þrjár
vikur minnst.
Linda Pétursdóttir hefur aö-
setur á Benal Beach, glæsi-
legum gististaö sem fjöldi fs-
lendinga gista á hverju sumri.
Um þann staö má svo sannar-
lega segja að hann sé heill
heimur út af fyrir sig eins og
segir I auglýsingum Hótel Loft-
leiða. Viö Benal Beach er
stærsti garður Costa del Sol,
um tuttugu þúsund fermetrar.
Þar eru margar spennandi
sundlaugar samtengdar með
rennibrautum, sem njóta mik-
illa vinsælda fólks á öllum
aldri. Úti I einni lauginni er bar
sem hægt er aö synda aö til aö
fá sér hressingu meðan tekin
er hvíld. Annar og minni garð-
ur er svo framan viö bygging-
arnar meö skemmtilegum
gróðri, gosbrunnum, seytlandi
smálækjum og flóðlýsingu á
kvöldin.
( kjallara hótelsins er stór og
glæsileg líkams- og heilsu-
rækt meö öllum þeim tólum og
tækjum sem hægt er að hugsa
sér auk gufubaðs, upphitaðrar
innilaugar og sólarbekkja!
Þannig aö auk þess aö koma
sólbrún og sælleg heim úr frí-
inu er hægt að verða stæltari
og stæðilegri en fyrr. Úti fyrir
eru svo að auki tennisvellir til
afnota fyrir hótelgesti. Innan-
dyra eru veggtennissalir. Sér-
verslanir í byggingunni eru 20
talsins og auk þess er þar
kjörbúð með allar nauðsynjar.
Síðast en ekki síst er þess
að geta aö þarna er að finna
eitt af glæsilegri diskótekum
Costa del Sol og höfðu stúlk-
urnar okkar um það mörg orð
hve flott það væri og tónlistar-
valið þar ( góðu lagi. Eins eru
veitingastaðir Benal Beach af-
bragðsgóðir en þeir eru þrír
talsins auk þess sem barirnir
eru þrír.
Á kvöldin er ekki síður líflegt
við sundlaugarnar en á
daginn. Þá eru gjarnan hljóð-
færaleikarar þar og aðrir
skemmtikraftar með athygl-
isverð atriði. Fátt er notalegra
en aö sitja þá með tebolla eða
glas og njóta þess að vera til.
Þessi glæsilega samstæða
íbúðabygginga, sem er í Ben-
almadena, aðeins hundrað
metra frá baðströndinni og (
þriggja kílómetra fjarlægð frá
Torremolinos til vesturs, hefur
upp á tvenns konar íbúöir að
bjóða. Annars vegar stúdíó-
^SM.: Þj/rf
c-
CT
CT
o
2
8L
o>
Ó
5T
-<-
D
Q)
íbúðir meö fullkomnum eld-
húsbúnaði, baðherbergi og
svölum. Hins vegar eru svo
stúdíósvítur með svefnkrók
eða íbúðir með einu svefnher-
bergi, setustofu, eldhúsi, bað-
herbergi og svölum - sumar
svalir jafnvel tugir fermetra að
stærð. í íbúðunum eru Ijósar
keramik gólfflísar og öll eldhús
og baðherbergi eru lögð kera-
mikflísum í ítölskum stíl frá
gólfi til lofts. Hreinlætistæki
eru lituð, í frönskum stíl,
rammar í gluggum og svala-
hurðum eru úr áli og allar raf-
lagnir með sjálfvirkum öryggis-
rofa.
f næsta nágrenni er að finna
golfvöllinn Torrequebrada eða
aðeins þrjá kílómetra frá Ben-
al Beach. Helmingi styttra er
að lystisnekkjuhöfn Benalma-
dena og í hlíöunum fyrir ofan
íbúðabygginguna er tívolí,
sem er afar vel úr garði gert og
rétt aö ætla sér góðan tíma
þar.
Stutt er ( vatnsskemmti-
garðinn Aqua Park þar sem
eldri og yngri geta auðveld-
lega gleymt sér tímunum sam-
an í stærri og smærri vatns-
rennibrautum, sem sumar
hverjar eru hinar hrikalegustu.
f þessari grein hefur aðeins
verið getið um Benal Beach en
gististaðirnir sem Úrval-Útsýn
og Saga bjóöa farþegum sín-
um á Costa del Sol eru vita-
skuld enn fleiri. Þar má m.a.
nefna Timor Sol, sem er komið
til ára sinna en er mjög vel við
haldiö. Fjölmargir fslendingar
halda mikilli tryggð við þann
gististað og vilja hvergi annars
staðar vera sumar eftir sumar.
Eins á Santa Clara vaxandi
vinsældum að fagna en það
hótel er steinsnar frá miðbæ
Torremolinos.
Hér verður látið staðar num-
ið í frásögn Vikunnarfrá lífsins
lystisemdum á Spáni að sinni
en við tökum upp þráðinn að
nýju í næsta tölublaði.
Útvarpsmaðurinn knái Jón Axel viðrar FM bol fyrír næstu
myndatöku. Jón útvarpar FRÍ-klúbbsfréttum á FM á
hverju föstudagskvöldi milli klukkan 7 og 8. Myndin til
hægri vartekin I fyrrasumar á Útsýnarskemmtun á Benal
Beach. Myndin hérfyrir neðan sýnir Benal Beach úr lofti
en fbúafjöldinn þar samsvarar íbúafjölda sæmilegasta
þorps. Neðsta myndin sýnir vel samtenginu
sundlauganna.
26 VIKAN 12.TBI 1990