Vikan


Vikan - 23.08.1990, Page 17

Vikan - 23.08.1990, Page 17
KRISTJÁN LOGASON hliðsjón af þróun verðlags í hverju landi og gengis islensku krónunnar. Tölurnar um lónsupphœðir, sem hér fara ó eftir, eru miðaðar við nómsmenn hér ó landi. Samkvœmt því sem hér var sagt að framan ó að vera óhœtt að reikna með samsvar- andi lóni erlendis. Þó er hins vegar tekið tillit til framfœrslukostnaðar í landinu þar sem nómsmaður stundar nóm. Hér er ekki óstœða til að fara djúþt ofan í lónsupphœðir en segja mó að miðað við núgildandi reglur sé grunnupphœð lóns til nómsmanns fró Lónasjóðnum miðað við núgildandi verðlag og reglur 53.000 krónur ó mónuði. Þá er miðað við að námsmaður skerði ekkert lánsmöguleika sína með því að vinna fyrir meiri tekjum en lánasjóðurinn telur eðlilegt í leyfi frá námi. 53.000 krónur á mánuði og þá er miðað við einstakling sem býr í leiguhúsnæði. Lán er veitt fyrir þá mánuði sem skóli stendur. Ef einstaklingurinn, sem námið stundar, býr í foreldrahúsum fær hann helminginn af 53 þúsundunum eða 26.500 á mánuði á meðan hann er í námi. BÖRN Á FRAMFÆRI Námsmaður, sem er í hjónabandi eða sambúð fær 25% álag á lán sitt fyrir hvert barn sem hann hefur á framfæri. Námsmaöur með eitt barn fær þá 66.250 krónur á mánuði. Námsmaður með tvö börn fær 79.500 Námsmaður með þrjú börn fær 92.750 Námsmaður meö fjögur börn fær 106.000 Ef hjón eru bæöi í lánshæfu námi reiknast fullt lán til hvors þeirra fyrir sig. Lán til hjóna eða sambýlisfólks yröi því: greiðslu Sparisjóðsins gangi námslán þeirra þar í gegn. „Með þessu viljum við hjá Sparisjóði Reykja- víkur og nágrennis styðja við bakið á náms- mönnum með því að veita þeim aðstoö og fyrirgreiðslu, sem þeir þurfa einmitt sérstak- lega á að halda á meðan á námsferlinum Til barnlausra 106.000 krónur á mánuði Með eitt barn 132.000 Með tvö börn 159.000 Með þrjú börn 185.500 Með fjögur börn 212.000 EINSTÆÐIR FORELDRAR Einstæðir foreldrar fá námslán sem hækka frá grunnframfærslu um 50% fyrir hvert barn. Samkvæmt því fær einstæður: Námsmaður með eitt barn 79.500 krónur á mánuði Námsmaður með tvö börn 106.000 Námsmaður með þrjú börn 159.000 Námsmaður með fjögur börn 212.000 Þetta eru í grófum dráttum þær upphæðir sem lánaðar eru úr Lánasjóði íslenskra námsmanna til framhaldsnáms hér á landi. Það skal undirstrikað að hér er um óskert lán að ræða. Það er til fólks sem ekki hefur nema í mesta lagi lágmarkstekjur í leyfum frá skóla- veru. ÝMIS ÖNNUR LÁN Námsmenn geta fengið hærri lán en að ofan getur við sérstakar aðstæður. Má þar nefna lán vegna maka sem er veikur, fæðir barn eða á fleiri en tvö börn og kýs að vinna heima. Þá er hægt að fá lán vegna meðlagsgreiðslna, líka vegna bóka-, tækja- og efniskaupa, vegna skólagjalda, vegna ferðakostnaðar bæði námsmannsins sjálfs og maka hans og barna. Lán er hægt að fá vegna röskunar á stöðu og högum, vegna búferlaflutninga, vegna sjúkratrygginga og sjúkrakostnaðar, vegna námsferða og að síðustu má nefna að kjósi námsmaður að greiða lífeyrisiðgjald til Söfnunarsjóðs lífeyrisréttinda lánar Lánasjóð- urinn honum fyrir 6% hlut atvinnurekenda. stendur," sagði Jónína Kristjánsdóttir. „Við getum nefnt til dæmis þá aðstoð sem viö veitum fyrsta árs nemendum, sem ekki fá strax lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna. Við hjá SPRON aðstoðum okkar fólk við að brúa það bil, sem verður fram til þess tíma, er fyrsta útborgun Lánasjóðsins kemur. LÁNSKJÖR OG LÁNSTÍMI Lán úr Lánasjóðnum eru verðtryggð miðaö við lánskjaravísitölu. Þau eru hins vegar vaxta- laus. Endurgreiðslu lánanna skal Ijúka ekki síðar en 40 árum eftir að endurgreiðslur hefj- ast en það gerist þrem árum eftir að lántaka fer síðast fram. Ef lán námsmanns er ekki að fullu greitt á þessum 40 árum falla eftirstöðvarnar niður. Árleg endurgreiðsla miðast við tekjur þess sem greiöir. Hún á að hámarki að vera 3,75% af útsvarstofni (næstum því brúttótekjum við- komandi). Lágmarksgreiðsla á ári er þó rétt um 25 þúsund krónur. Af þessu er Ijóst að afborgun af námsláni hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna getur aldrei orðiö verulega þungur baggi í sjálfu sér hjá neinum lántaka. Auk þess er sjóðsstjórn veitt heimild til aö veita undanþágu frá greiðslu verði skyndilegar breytingar á högum lánþega verði skyndilegra breytingar á högum lánþega leysis svo eitthvað sé nefnt. □ Sama gildir um lán frá okkur við lok náms. Þá eru flestir námsmenn lítt fjáðir en þurfa oft að leggja í ýmiskonar kostnað, til dæmis hús- næðiskaup. Þeir námsmenn sem hafa haft við- skipti við okkur á grundvelli samkomulagsins við Bandalag íslenskra sérskólanema eiga þá rétt á láni, án sérstaks viðtals við sparisjóðs- stjóra. Það getur verið allt að einni milljón króna og er til sjö ára,“ sagði Jónína Kristjáns- dóttir. „Með þessu viljum við sem sagt aðstoða námsmenn og auðvitað vonumst við til þess, að þeir haldi síöan áfram tryggð og viðskiptum við Sparisjóðinn." Auk þess benti Jónína á aö sérþjónusta Sparisjóðs Reykjavíkur og ná- grennis við námsmenn gerði þeim á margan hátt kleift að stunda bankaviðskipti og norfæra sér þjónustu sparisjóðsins til jafns við aðra viðskiptavini, sem að staðaldri hafa viðskipti sín þar. Hin nýja námsmannaþjónusta Sparisjóðsins verður sérstaklega kynnt í símaskrá þeirri sem allir félagar Bandalags íslenskra sérskóla- nema fá senda. Þeir eru um þrjú þúsund og fimm hundruð talsins. Þá mun líka vera ætlunin, að þeir námsmenn, sem notfæra sér þessa þjónustu Sparisjóðsins, hljóti einhverja frekari aðstoð til dæmis í formi styrkveitinga. SPRON aðstoðar m.a. fyrsta árs nema, sem fá ekki strax lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, á meðan þeir bíða eftir útborgun, að sögn Jónínu Kristjánsdóttur sem hér sést í afgreiðslusal eins útibús Sparisjóðsins. 17. TBL. 1990 VIKAN 1 7

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.