Vikan - 23.08.1990, Blaðsíða 23
Nikea litla bjargaðist skaðbrennd úr eldinum:
DRAUMUR HENNAR ER
AÐ FÁ AFTUR FINGUR
Nikea litla er aðeins átta
ára gömul en samt á
hún aö baki lífsreynslu
sem flestum fullorðnum er
forðað frá. Af einstæðum
kjarki, þrótti og lífsvilja hefur
Nikea gengist undir rúmlega
fimmtíu læknisaðgerðir eftir að
hún hlaut 85% brunasár, þá
tveggja ára gömul. Nikea seg-
ist ekki ætla að gefast upp og
vonast stöðugt til þess að
verða eins og önnur börn.
-Ég vona guð gefi að ég
veröi eins og önnur börn,
hvíslar hún hásri röddu um
leið og hún þrýstir að sér
hundinum sínum, honum
Patche. Hann er helsta traust
Nikeu litlu og vinur og lætur
ekkert á sig fá þótt á hana
vanti alla fingur og röddin sé
hás eftir brunann.
Nikea getur ekki klappað
Patche sínum, aðeins þrýst
honum að sér. í brunanum
missti hún alla fingur eins og
áður sagði, mestan hluta eyrn-
anna, nefið og bæði allt hárið
og hársvörðinn. Slysið varð
heima hjá fjölskyldu Nikeu.
Hún varinni í barnaherberginu
ásamt eldri bróður sínum sem
lék sér að eldspýtum.
Nikea á nú ásamt móður
sinni, ömmu, bróður og systur
heima í borginni Milford í
Connecticutfylki í Bandaríkj-
unum.
-Nikea hefur aldrei misst
móðinn, segir amma hennar.
Hún hefur alltaf reynt að ná
sér upp úr veikindum - af-
leiðingum slyssins, hversu
slæmt sem útlitið hefur verið.
Læknisaðgerðirnar, sem hún
hefur gengist undir, eru orðnar
rúmlega fimmtíu og Ijóst að f
það minnsta nokkrir tugir að-
gerða eru eftir.
Læknarnir hafa mikið reynt
til að græða einhvers konar
fingur á Nikeu. Að fá fingur,
sem síðan gæti verið skreyttur
með rauðlitaðri nögl og hring,
er einn æðsti draumur Nikeu.
Hingað til hafa þessar tilraunir
læknanna mistekist að mestu.
Þeir fluttu tær af fæti og á
hendi hennar. Sú aðgerð
mistókst. - Nýju fingurnir mínir
dóu, segir Nikea sjálf og lætur
alls ekki bugast.
Nýlega tókst að græða bein
úr lærlegg hennar þannig að
nú hefur Nikea nokkurs konar
þumal á annarri hendi. Afi
hennar festi á hann gervinögl
og lakkaði hana rauða. Þá
brosti litla stúlkan, glöð og
hamingjusöm.
- Guð hefur gefið Nikeu
styrk og kjark til að þola
mótlæti, segir afi hennar. -
Guð bjargaði henni líka úr
eldinum og það hefur hann
vafalaust ekki gert að ástæðu-
lausu. □
17. TBL. 1990 VIKAN 23