Vikan


Vikan - 23.08.1990, Síða 24

Vikan - 23.08.1990, Síða 24
1 a. 5 cr m Hann heitir Stefán Her- manns og er betur þekktur sem Stefán í Stefánsblómum, einni af rót- grónustu blómabúðum borgar- innar. Stefán hefur alltaf verið mikill blómamaður, segir það nauðsynlegt að vera innan um falleg blóm, þau auðgi tilver- una. f fjórtán ár rak Stefán verslun sína á Njálsgötunni en nú stendur hann á merkum tfmamótum þar sem henn er nýfluttur í betra og stærra húsnæði í Skipholti. Vikan ákvað, í tilefni af þess- um tímamótum hjá Stefáni, að skyggnast bak við verslunar- borðið og forvitnast örlítið um Stefán sjálfan. Það er þó við- eigandi aö byrja á hefðbund- inni spurningu og spyrja hve- nær áhuginn á blómum hafi vaknað? „Það er nú orðið langt síðan það var. Áður en ég hóf rekst- ur sjálfur hafði ég starfað hjá Blómum og ávöxtum f nokkur ár og líkaði mjög vel. Fyrir fjórtán árum setti ég síðan Stefánsblóm á stofn og hef starfað innan þessa fags til dagsins í dag.“ VIÐSKIPTAVINIRNIR TRAUSTIR Hvernig hefur gengið að reka blómabúð í Reykjavík í allan þennan tíma? „Það hefur gengið mjög vel, betur en ég þorði að vona. Þegar ég hóf rekstur voru blómaverslanir fáar en núna skipta þær tugum, slík hefur aukningin orðið. Mér hefur tek- ist vel upp, held ég. Ég hef verið heppinn og haft trausta og trygga viðskiptavini í gegn- um árin. Ég býð upp á margs konar þjónustu. Ég er að mestu með blómaskreytingar fyrir alls konar tilefni, brúð- kaup, jarðarfarir og margt fleira. Það er líka nauðsynlegt að vera með tækifærisgjafir í versluninni sem fólk getur gripið til þegar það er að kaupa blóm.“ Hvert er leyndarmálið á bak við góða verslun? „Að vera með fallegar og vandaðar vörur og ekki síst að

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.