Vikan - 23.08.1990, Síða 26
TEXTI: ÞORSTEINN EGGERTSSON
HRATT FLÝGUR STUND
EITT HELSTA BRÚÐKAUP
HAUSTSINS í HOLLYWOOD
Mrabískætlaöa söngkonan
^^ákveðna, Paula Abdul,
hefur lengi verið á
lausu en þó sloppið við að
vera mikið orðuð við
karlmenn. Að vísu hefur hún
oft sést með vinsælum banda-
rískum sjónvarpsleikara
undanfarið. Hann heitir John
Samos og hefur ekki fengið
orð á sig fyrir kvennabósaiegt
líferni hingað til, enda hafa
þau skötuhjú gert lítið úr
sambandi sínu og sagt blaða-
mönnum að þau væru bara
góðir vinir. En nú hefur sam-
Söngkonan vinsæla Paula
Abdul var margoft búin að lýsa
því yfir að hún tæki frægðarferil
sinn fram yfir karlastand í bili
og það yrði látið bíða i nokkur
ár að líta í kringum sig eftir
þeim rétta ...
John Samos heitir pilturinn
sem sækir Pálu upp að altarinu
í haust.
bandið tekið ótviræða stefnu.
Þau ætla að giftast í haust.
Paula er nú 27 ára gömul og
John ári yngri. Hún hefur ný-
lega undirritað samning upp á
tuttugu milljónir Bandaríkja-
dala við LA Gear um að aug-
lýsa íþróttaskó sem fyrirtækið
framleiðir. Heyrst hefur að hún
komi líka til með að hanna
sína eigin skó, nefnda eftir
henni, fyrir LA Gear. Hins
vegar snýst málið nú um nýja
brúðarskó með haustinu og
þeir sem til þekkja segja að
brúðkaupið verði örugglega
meðal þeirra glæsilegustu í
Hollywood um langt skeið. Nú
eru menn strax farnir að kalla
þau John og Paulu hið full-
komna brúðarpar - og þá er
bara að sjá hvort hjónabandið
kemur til með að endast. □
Tæpum fimm árum síðar ásamt Christopher Cazanove, Tom Sellec
og Steve Guttenberg.
HEFUR VERIÐ STJARNA
FRÁ BLAUTU BARNSBEINI
kvikmynd. Nú er hún ekki að-
eins búin að taka tennur, farin
að ganga, tala og allt það sem
heilbrigð börn ganga í gegn-
um á fyrstu árum ævinnar; hún
er aftur farin að snúa sér að
kvikmyndaleik. í þetta sinn
leikur hún í framhaldsmynd
um karlana þrjá og krakkann.
Nýja myndin heitir Three Men
and a Little Lady (Þrír karlar
og lítil stúlka).
Tveir leikaranna úr fyrri
myndinni, þeir Tom Sellec og
Steve Guttenberg, leika áfram
í nýju myndinni en Christopher
Cazenove er nú kominn í stað
Ted Dansons sem margir
muna eftir úr þáttunum um
Staupastein. Robin litla þykir
standa sig vel í nýju myndinni.
Hafi hún leikið erfitt barn í
þeirri fyrri er hún hálfu fyrir-
ferðarmeiri núna. En hún er
sögð skila hlutverki sínu prýði-
lega og utan upptökuversins
er hún hvers manns hugljúfi.
Það sakar ekki að geta þess í
leiðinni að hluti af kvikmynda-
tökunum fór fram í fæðingar-
bæ Shakespeares, Stratford-
upon-Avon, svo kannski er
þarna á ferðinni upprennandi
barnastjarna.
Robin litla Weisman var
ekki nema um hálfs árs
gömul þegar hún lék í
myndinni Þrír karlar og krakki
fyrir nokkrum árum. Hún þótti
bráðskemmtileg í myndinni en
ekki er nú víst að sex mánaða
stelpa geri sér mikla grein fyrir
því að hún er að leika í
Robin sex mánaða gömul í
myndinni Þrír karlar og krakki
ásamt mótleikurum sínum,
Steve Guttenberg, Tom Sellec
og Ted Danson.
26 VIKAN 17. TBL. 1990