Vikan - 23.08.1990, Page 31
TEXTI: PORGEIR ÁSIVALDSSON
BUBBI MORTHENS
UM BOB DYLAN:
til þegar kappar eins og hann
eru annars vegar.
í mínum huga er Bob Dylan
einmana manneskja. í Ijóöun-
um hans er líka að finna marg-
ar myndir af einmanaleika.
Það var undarleg tilfinning,
man ég, þegar ég heyrði fyrst í
honum í útvarpi eða af plötu.
Ég hafði kynnst Tommy
Steele, Kingston tríói og fleira
raddhreinu söngfólki gegnum
elsta bróður minn en þarna
HALDINN OFSÓKNARHRÆÐSLU
-OGYRTIVARLAA
NOKKURN MANN
Bob Dylan kom og fór en
hvort hann sá og sigraði
eru áhöld um. Vísterþó
að velflestir gestir Laugardals-
hallar á Listahátíð skemmtu
sér vel og kunnu vel að meta
fjölbreytilegan lagalista Dyl-
ans. Það eru gerðar miklar
kröfur þegar stórmenni á borð
við Dylan flytja verk sín og
væntingar hafa kannski verið
of miklar enda ekki á hverjum
degi sem stóru nöfnin í popp-
inu troða upp hér á landi. Vik-
an forvitnaðist um það hvernig
Dylan kom Bubba Morthens
fyrir sjónir, en Bubbi kom fram
á tónleikum hans.
„Mér þóttu þessir tónleikar
góðir, kallinn bauð upp á þetta
góða þétta rokk og fór víða í
lagavali. Það er langt síðan ég
hef heyrt af sviði þennan tón
og þess vegna var ég mjög
hress með manninn sem mað-
ur hefur fylgst með síðan mað-
ur var níu eða tíu ára gutti.
Það kom mér reyndar ekki á
óvart því hann var búinn að fá
frábæra dóma fyrir hljómleika
sína undanfarið. Hann var
jafnvel betri á sviði en ég bjóst
við,“ segir Bubbi Morthens.
„Fyrir tíu árum hefði þátt-
taka með Dylan á tónleikum
stigið mér til höfuðs, jafnvel
fyrir fimm árum, en mér fannst
þetta vera ánægjulegur bónus
á tilveruna og ég var ekki and-
vaka nóttina fyrir tónleikana.
Mér þótti vænt um að fá þetta
tækifæri og þetta var heiður
fyrir okkur báða. Einhvern
tíma hefði þetta þótt mont,
þegar ég segi þetta, en það er
það ekki. Fyrir mér voru þetta
eins og hverjir aðrir tónleikar,
þegar maður dregur djúpt
andann, einbeitir sér á sviði og
gerir sitt besta. Af samskiptum
okkar baksviðs fer ekki mörg-
um sögum. Ég vissi nákvæm-
lega hvernig hann hegðar sér
og hef lesiö mikið um hann.
Hann yrði ekki á nokkurn
mann og umlar eitthvað í skjóli
lífvarða. Þannig var hann í
Höllinni, nákvæmlega eins og
við var að búast. Það var helst
að hann talaði við umboðs-
manninn - við aðra ekki orð.
Hann er haldinn ofsóknar-
hræðslu eða brjálæði og vill
engan snuðrandi í kringum
sig, allra síst Ijósmyndara.
Ungur alvarlega þenkjandi
maður rétt um tvítugt, sem
verður fyrir því að vera tekinn I
dýrlingatölu og borinn saman
við stórbrotnustu skáld aldar-
innar, verður annaðhvort geð-
veikur eða furðulegur sérvitr-
ingur. Hann ásamt Bítlunum
mótar heila kynslóö og verður
tákn hennar. Þannig hefur
sagan dæmt hann, hvort sem
honum líkar betur eða verr.
Með því verður hann að lifa.
Hann er þarna á hillunni með
þeim frægustu og hann óttast
sífellt að það sem hann segir
verði gert að Ijóði eða ein-
hverri heimspeki án þess að til
þess sé ætlast á nokkurn hátt
- orðunum slegið upp og þau
vegin og metin. Menn eins og
hann eru alltaf undir smásjá
og það gerir hann fælinn og
styggan. Hann hefur stundum
verið nefndur Howard Hughes
poppsins og má vel vera rétt-
nefni. Það kæmi mér ekki á
óvart þótt leiðin til lífsloka yrði
,Hann yrðir ekki á nokkurn mann og umlar eitthvað í skjóli lífvarða.
eitthvað svipuð. En menn
verða að fá að hafa sitt í friði
og velja sér sinn farveg. Með
honum voru auk umboðs-
manns tveir þéttvaxnir lífverð-
ir, kokkur og fatahönnuður.
Við getum sagt lítil hirð sem
fór ekki mikið fyrir. Dylan var
þó grautfúll yfir því aö þurfa að
bíðaáflugvellinum í New York
vegna vélarbilunar áður en
hann kom hingað. Hann var
hinn versti og honum hefði al-
veg verið trúandi til þess að
hætta við allt saman og láta
sig hverfa. Það þarf oft minna
kvað við annan tóm. Mamma
sagði að hljóðin I honum væru
eins og í geit en þessi furðu-
rödd krækti í mín eyru. Þegar
árið 1964 var ég orðinn aödá-
andi hans en það var svo
seinna á lífsleiðinni sem ég fór
að glugga í Ijóðin hans og
skilja þau. í orðanna fyllstu
merkingu kom Dylan og fór,
rétt eins og sjónhverfingar hafi
átt sér stað. Þannig hefur hann
farið um veröldina, þessi
heimsins trúbador og þannig
var það I Höllinni á Listahátíð í
vor.“ □
17. TBL. 1990 VIKAN 31