Vikan - 23.08.1990, Side 32
TEXTI OG MYNDIR: GUÐRUN BERGMANN
◄ Mótssvæ&ið.
hreinsun meö „sage“ eöa salvíu. Svona
hreinsun er hefðbundin hjá indíánum og fer
fram áður en farið er að vinna í andlegum
málum. Þau brenndu salvíuna f stórri abal-
one skel en undir henni voru þau með
skjaldbökubak sem tákn um Móður Jörð.
Á laugardeginum hófst dagskráin með
léttum jógateygjum, samstillingu og hug-
leiðslu. Að því loknu fengu menn sér morg-
unverð og klukkan tíu hófst dagskrá í fyrir-
lestraformi. David Carson, sem er rithöfund-
ur að atvinnu, var með litskyggnusýningu.
Hann sagði að þegar hann var nýbúinn að
skrifa bókina Medicine Cards og hanna spil-
in hafi hann verið að lesa í spilin fyrir konu.
Spil buffalóans hafi komið upp aftur og aftur
svo hann spurði hana hvort hún tengdist á
einhvern hátt bænum. Hún svaraði því til að
hún væri nýbúin að skrifa bæn. Hún gaf hon-
VIKAN Á SNÆFELLSÁS '90
TEIKN Á LOFTI
YFIR JÖKLINUM
- ÞEGAR ÞATTrAKENDUR
Á SNÆFELLSÁSMÓTINU
HÓFU GHOST SHIRT
DANSINN
Um verslunarmannahelgina var
haldin allsérstæð útihátíð á
Snæfellsnesi, að Brekkubæ á
Hellnum, beint undir Snæfells-
jökli. Undirtitill hátíðarinnar var
„Mannrækt undir Jökli“. Þarna
var saman kominn hópur Nýald-
arfólks á móti sem var byggt upp
sem fræðslumót.
STRAX EITTHVAÐ UM AÐ VERA
I þetta sinn voru ekki margir erlendir gestir á
mótinu. Tveir þeirra, þau David Carson og
Nina Sammons, bæði af indíánaættum, tóku
að sér að hreinsa fyrirlestrasalina með sal-
víu og buðu einnig mótsgestum upp á áru-
Jón Jóhann Jóhannsson, Ingibjörg Þengilsdóttir
brúðhjón, Búas Davíðsson oranisti og séra
Rögnvaldur Finnbogason.
um bænina og sagði að hann mætti nota
hana hvar og hvenær sem hann vildi. Bænin
er svona:
Afi og amma allra artda.
Ég bið um, frá og með þessari stundu, að
taka með friðsemd og ró á móti hverri þeirri
áskorun sem lífið færir mér.
Ég bið um að ég taki mark á innsæi mínu.
Ég bið umað vinna af ánægju, eldmóði og
hæfni hvert það verk sem fyrir mér liggur.
Ég bið um skilning og getu til að sleppa
tökum á neikvæðum venjum sem standa í
vegi fyrir mínum eigin þroska og að þessar
venjur sleppi tökum á mér.
Ég bið um að laða að mér fólk og kringum-
stæður, sem eru nauðsynlegar og mikilvæg-
ar áframhaldandi andlegum þroska mínum
og vexti.
Ég bið um að fá að læra að elska og virða
sjálfan mig og að geta á opinn og hreinskil-
inn máta deilt ást með öðrum.
Ég bið um visku til að svara fyrir sjálfan
mig þegar það á við.
Ég bið um skilning og getu til að deila al-
heims ást.
Ég bið um að blíðutilfinningin innra með
mér fái að komast í snertingu við blíðutilfinn-
ingar innra með öðrum.
Leyfið mér að vera verkfæri ástar og
friðar.
32 VIKAN 17. TBL. 1990