Vikan


Vikan - 04.04.1991, Side 13

Vikan - 04.04.1991, Side 13
Bible of Dreams" nefnist heildarsafn smá- sagna hennar og skemmri prósaverka sem kom út 1967. Sylvía er talin standa í Ijóörænni þakkar- skuld við Robert Lowell, Theodore Roethke, Anne Sexton og Elizabeth Bishop. Hún hefur veriö talin í sama hópi og hin þrjú fyrstnefndu þar sem hún setur sjálfa sig í miöju Ijóðsins og lýsir sálfræðilegu varnarleysi sínu sem lifandi fulltrúi þeirrar menningar sem hún fæöist inn í. Hún var lærisveinn Roberts Lowell og aö sögn bókmenntafræðinga má sjá skyldleika Ijóða þeirra í fyrstu Ijóöunum sem hún sendi frá sér. En þaö er ekki fyrr en í síðustu Ijóðum hennar sem í Ijós kemur sérstök snilligáfa enda brýtur hún þar upp ýmis form og nálgast viðfangsefni sín á nýjan og sérstæðan hátt. Þekktustu Ijóð hennar eru frá þessu tímabili. Þar má meðal annars nefna Ijóðin Frú Lazar- us, „Lady Lazarus", Pabbi, „Daddy", Orð, „Words" og Nöf „Edge“. Um síðustu Ijóð hennar segir Árni Ibsen í leikskrá Þjóðleik- hússins. „Allt eru þetta ofsafengin Ijóð, áleitin og skelfileg (senn, líkingarnar naktar og sting- andi, hrynjandin er látlaust staccato og inni- haldið sárasta örvænting, tær og ómenguð. Þessi Ijóð eru það sem Robert Lowell kallaði vott um skelfilegan fullnaðarsigur Sylvíu Plath. Annar gagnrýnandi hefur sagt að Ijóðin frá þessu lokaskeiði séu eins og ort í kyrrðinni í miðju djúpar geðlægðar, þar sem Ijóðmæland- inn fylgist furðurór með ofsanum innra með sér og allt í kring og skráir jafnskjótt samviskusam- lega. Víst er að áralöng þjálfun og góður, meö- Ottó Plath, faðir Sylvfu, árið 1930. Hann var líffræðingur af þýskum ættum. Sylvía var ekki nema fimm ára þegar hann dó og lýsti telpan því þá yfir að hún ætlaði aldrei framar að tala við Guð... vitaður undirbúningur skilar Sylvíu Plath ár- angri í lokaljóðunum, en hitt vill gleymast að það sem hún haföi áður ort hefði einnig nægt henni til langlífis á meðal helstu skálda aldar- innar og er hér enn eitt dæmið um aö hið frá- bæra byrgi mönnum sýn á það sem er einung- is ágætt.11 Nöí Konan er fullkomnuð. Lík hennar ber með sér bros afreksins. Blekking grískrar nauðsynjar flæðir um kyrtilsfellingar og naktir fætur hennar virðast vilja segja: hingað komumst við, nú er því lokið. Hvort barn hringað saman, hvít naðra hvort við sína litlu tæmdu mjólkurkönnu. Hún hefur fellt þau aftur inn í líkama sinn, eins og rósin lokar blöðunum þegar garðurinn stirðnar og blæðir ilmi úr sætum, djúpum hálsum næturblóma. Máninn er ekki svekktur yfir neinu þar sem hann starir undir beinhettunni. Hann hefur séð annað eins áður. Sorgarklæði hans braka og dragnast. „Huldukona í verkinu“ - segir Helga Bachman sem leikur móður Sylvíu Eg hafði lesið eitthvað af Ijóðum Syl- víu Plath áður en æfingar hófust á þessu verki, mig minnir að Nína Björk hafi bent mér á Ijóðið Pabbi. Svo þegar ég tók að mér þetta verk- efni vaknaði forvitnin fyrir skáldkonunni og verkum hennar fyrir alvöru," segir Helga Bachmann. - Þú ert í hlutverki Aurelíu, móður skáld- konunnar. Hvernig kona er Aurelía? „Hún er móðirin sem hrindir öllu af stað. En hún er huldukona í verkinu, hún kýs þá leið að túlka dóttur sína, segir lítið frá sjálfri sér nema í upphafi verksins, þar sem hún segir: „Sylvía fléttaði þráðum úr mínu lífi saman við sitt eigið í öllum sínum Ijóöum og sögum.11 Því þarf Aur- elía að segja lítillega frá sjálfri sér. Það er af- skaplega spör mannlýsing á þessari konu I verkinu. Hún lifir lífinu I gegnum sorgirog sigra dóttur sinnar. Hún er traust eins og bjarg og hlutverk hennar er að koma erindi Sylvíu til skila. Hlutverk hennar er því tvöfalt, hún túlkar dóttur sína og sjálfa sig og það er gaman að fást við þessa gllmu sem hlutverkið býður upp á.“ - Myndin, sem dregin er upp af Sylvíu, er af lífsglaðri konu sem hefur mestar áhyggjur af því að henni vinnist ekki tími til að sinna öllum sínum hugðarefnum og því kemur á óvart að hún skuli falla fyrir eigin hendi. „Já, það er eins og margir afreksmenn okkar geri sér betur grein fyrir því en flestir aðrir hvað lífið er stutt. Það er oft eins og þetta fólk sé gamlar sálir. En því er ekki að leyna að í lífi Sylvíu er það sá sjúkdómur sem herjar á sál hennar sem tekur bókstaflega af henni völdin í lokin. Síðustu Ijóö hennar eru sprottin úr þess- um lífsháska og þau lýsa einnig mikilli biturð." - Svo við snúum okkur aftur að Aurelíu, helduröu að hún hafi verið hamingjusöm kona? „Ja... hún giftist Ottó sem er tuttugu árum eldri en hún og lætur undan þeirri ósk hans að helga heimilinu starfskrafta sína sem er gömul og ný saga. Hjónaband þeirra stendur I átta ár og lýkur með dauða Ottós. Þá fer Aurelía að stunda kennslu aftur en það kemur fram í upp- hafi verksins að hún er greind Kona og mikill bókaormur. Börnin verða hennar líf og hún þarf að vinna fyrir þeim upp frá því. Ég held § það sé óhugsandi annað en að þessari konu z hafi þótt vænt um mann sinn. Hún stendur við < hlið hans í veikindunum eins og klettur. Ég hef ^ einhvern óljósan grun um að Ottó hafi verið | sjarmerandi maður.11 5 - Heldurðu að konur eins og hún séu til í -dag? « „Áreiðanlega, hún er hin dæmigerða 3 trausta, greinda móðir. En mæður verða að varast að vera of verndandi fyrir börn sín því það er ekkert gaman fyrir börn að eiga leiðin- lega móður. Og það er hundleiðinleg kona sem gerir ekkert annað en vera móðir og allar líkur á því að hún eigi leiðinleg börn. En Aurel- ía átti sér drauma um ýmislegt og mér finnst hún geta verið svolítill bóhem. Aurelía gat ekki uppfyllt drauma sína og fór því út í kennslu, reyndi að Oþna veröldina öðru ungu fólki, það var engin önnur leið fyrir konu á þessum tíma. Aurelía er hlý, viðkunnanleg kona en hræði- lega ábyrg." 7. TBL. 1991 VIKAN 13

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.