Vikan


Vikan - 04.04.1991, Síða 15

Vikan - 04.04.1991, Síða 15
/ ástarsorg GUM STÖÐUM ^OG BRALLAÐ IVIA.RGT Hún lætur ekki mikið yfir sér þegar hún veifar til mín í speglinum á Hressó, sest og pantar sér kaffi. Hún er giettin, giöð í bragði og hiær oft dátt meðan við spjöllum saman. Hún er Þingeyingur með mikið loft eins og hún segir sjálf. Athafnamanneskjan Ágústa Waage er fædd á Raufarhöfn, alin upp i Neskaupstað en flutti til Reykjavíkur á unglings- aldri. Á þessum aldri reynist mörgum erffitt að skipta um umhverfi, einnig henni. Ágústa hefur búið á mörgum stöðum og brallað margt þrátt fyrir ungan aldur. Unnið í fiski á Bíldudal og í Neskaupstað. Lærður flugvirki, stundaði þyrluflug og fallhlífarstökk í Los Angeles. Ofan á þetta bættist mótorhjóladella sem hún fékk á einni nóttu. Upphaflega ætlaði hún að verða dýralæknir, síðar ríkur tannlæknir en núna starfar hún hjá véladeild Reykjavíkurborgar þar sem hún ekur meðal annars saltbíl og ryður götur borgarinnar. Eg hef alltaf veriö frekar fljóthuga. Hlutirnir veröa helst aö gerast strax. í ástarsorg ákvaö ég að fara í meiraprófið til þess aö hafa eitthvað viö aö vera á kvöldin. Ég sá fram á að sitja heima og vola en fannst ég verða aö eyða tím- anum í eitthvaö betra. Þaö má því segja aö ég hafi farið í meiraþróf- iö af rælni, ég hafði aldrei gert neitt mál úr vörubílum. Mamma sagöi reyndar aö ég ætti aö vera strákur, þar sem ég lék mér yfirleitt meö bíla i drulluþollunum á Þiljuvöllunum. Ég skipti þeim þó fljótlega út fyrir barbídúkkur. Þaö var einmitt í meiraprófinu sem ég hitti strák sem talaöi mikiö um flugvirkjanám í Bandaríkjunum. í þessu stuöi sem ég var í til aö gera eitthvað, fara í skóla eöa annað sniðugt, ákvaö ég aö gerast flugvirki. Þetta hljómaði mjög vel. Námiö var stutt, hægt aö fá námslán og ég komst til útlanda. Gallinn var bara einn, ég haföi enga hugmynd um hvað flugvirkjun fól í sér. Ég dreif mig því upp í Landhelgisgæslu og kynnti mér í hverju vinnan fólst ásamt því hvaða skólar væru í boöi. Á þessum tíma var ég eitthvað aö dunda mér viö vinnu á smur- olíulager Olis. Tveimur dögum eftir heimsókn- ina hjá Landhelgisgæslunni hringdu þeir í mig og buðu mér vinnu sem aðstoöarmanneskja. Ég var aö vinna hjá Gæslunni í fjóra mánuöi. Launatékkinn, sem fékkst á hverjum föstudegi, dugði ekki fyrir bensínkostnaði upp í banka aö skipta ávísuninni. Ég sá ekki fram á Banda- ríkjaferö og flugvirkjanám á þessum launum. Hjá Gæslunni meiddi ég mig á hnéskelinni. Einn daginn, þegar ég var á rápi á mínum veik- indalaunum, frélti ég aö þaö vantaði mann- eskju á götusóþ hjá borginni i hálfan mánuð. Ég fór þangað og sótti um en fékk nei, því miður. Mér var sagt aö þeir gætu ekki ráðiö núna og það hjálpaði ekki aö ég var öll vafin um hnéö, ég gæti ekki stjórnaö bíl. Þeir hafa sjálfsagt líka veriö svolítiö hræddir við aö fá konu í þetta karlavígi. Strákarnir, sem vinna hjá borginni, sögöu hins vegar viö mig: Bless- uð verlu, mættu bara í fyrramáliö. Og það geröi ég. Verkstjórinn uppgötvaöi viku seinna aö ég var þarna í fullri vinnu. Ég tróö mér því hingaö inn. Ég ætlaði bara aö vera í tvær vikur en þegar ég fékk launin ákvaö ég að vera lengur. FLUGVIRKI FÆR MEIRA BORGAÐ EN FÓSTRA Síöan hef ég unnið hér fyrir utan þann tíma sem ég var úti i skóla. Ég verö hér áfram meö- an þeir vilja hafa mig og borga vel. Ég er klár á því aö flugvirki eöa bílstjóri fær meira borgaö en fóstra. Misjöfn störf aö vísu, misjafnlega erfið og því misjafnlega borguö, en ég fór í flugvirkjann og meiraprófið vegna launanna. Tíminn á götusópnum var svolítiö ævintýri. Ég burstaði oft skóna hjá þessum dauöu í Austurstræti. Þeir sem voru meö lífsmarki áttu þaö til aö skríöa upp á tunnuna á götusópnum. Þá tók ég yfirleitt þaö ráö að keyra undir skyggniö hjá Hressó og skemmti mér yfir því að heyra hrópin og formælingarnar þegar þeir hentu sér af, greyin. í vinnunni hefur gengið á ýmsu. Mér er ekki alveg eins tekiö og körlunum. Ég þarf aöeins aö sanna mig áður en ég fæ aö gera hlutina. Fyrstu tvö árin fékk ég aö reyna þaö sem mér datt í hug, strákunum fannst gaman aö leyfa mér aö prófa. En ég fékk ekki aö keyra malbik fyrr en seint og síöar meir. Það þurfti aö bakka svo mikið. Svo leysti ég af í klukkutima og eftir það var ég tekin í sátt. Þeir fóru frekar hægt í aö treysta mér, verkstjórarnir. Mórallinn hér er hins vegar mjög góöur Hann verður aö vera þaö. Hér eru fimmtíu karl- menn og þrjár konur. Ein á skrifstofunni, ein sem skúrar og svo ég sem keyri. En mórallinn er svolítiö sérstakur. Ég hef oft hótaö aö kæra þá fyrir kynferðislegt ofbeldi á vinnustaö en þá segjast þeir bara ætla aö standa viö allt sem þeir segja viö mig. Vinnufélagarnir tóku mér misjafnlega. Þeir vissu ekki alveg hvernig þeir áttu að vera. Ég hef samt aldrei unniö á betri vinnustað. Þegar ég fer að sofa hlakka ég til aö vakna og mæta í vinnuna daginn eftir. Þaö veröur aö vera eitt- hvaö af konum á þessum heföbundnu karla- stööum. Mér finnst ekki mjög gaman aö vinna á blönduðum vinnustaö og alls ekki aö vinna meö eintómum konum. Karlarnir eru léttari. Þeir skilja frekar vandamálin eftir heima. KONUR GETA EKKI ALLT Þaö er auðvitað ætlast til aö ég þrífi bílinn á kvöldin og mæti klukkan fjögur á morgnana. Þá á líka aö vera hægt að hringja í mig hvenær sem er sóiarhringsins. Þaö væri mjög erfitt fyrir húsmæöur að segja bara viö karlinn klukkan hálfátta aö kvöldi: - Heyröu, vinur, ætlar þú aö sjá um börnin, ég er aö fara aö vinna og kem kannski heim í nótt. Þaö myndu ekki allir karl- menn sætta sig viö þegar komin eru börn. Ég vil þó ekki meina aö viö konur getum allt en viö getum flest. Ég sjálf gæti ekki unnið á verk- stæðisbílnum hjá Reykjavíkurborg þar sem þarf aö keyra um og lyfta kannski 120 kílóa hlutum. Karlmenn eru hins vegar ekkert betri. Þeir geta til dæmis ekki skúraö jafnvel og konur. Þeir eru ekki eins samviskusamir. Ég ætti erfiöara með aö vinna hér ef ég væri farin að búa og komin meö börn. Oft á kvöldin fer ég ekkert heim heldur sit hér áfram og spila bridge viö karlana. Þaö er ekki þar meö sagt aö ég fari ekki stundum í heimsókn til stelpn- I 7. TBL.1991 VIKAN 15 TEXTI OG MYNDIR: KRISTJÁN LOGASON

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.