Vikan


Vikan - 04.04.1991, Qupperneq 18

Vikan - 04.04.1991, Qupperneq 18
TEXTI: PÓRDÍS BACHMANN HRÚTSMERKIÐ TÁKN HINS ÆVINTÝRAGJARNA FRUMHERJA Rómverjar kölluöu stríðs- guö sinn nafninu sem viö notum einnig, Mars. Það var háttur Rómverja að fá goðafræðina lánaða frá Grikkj- um en breyta nöfnunum úr grísku yfir á latínu. Mars var þó Rómverjum miklu mikil- vægari guð en Ares var Grikkjum, því Róm var ávallt höll undir stríð. Mars stóð næstur hinum mikla Júpíter að völdum og félagar hans tveir, Fölvi og Ótti, fylgdu honum til orrustu. Þar eð Rómverjar höfðu Mars í svo miklum há- vegum tileinkuðu þeir honum marga jákvæða eiginleika. Hann var mikill náttúruguð, veitti frjósemi, verndaði akra og veitti auk þess öllum nýjum framkvæmdum og hugmynd- um brautargengi. Það var hon- um til heiðurs að Rómverjar skirðu fyrsta mánuðinn í nýju tímatali, timabil sem gaf vor- komuna til kynna - Mars. Hrúturinn er fyrsta merkiö í stjörnuhringnum, frumkvæður eldur. Hann er frumkvæður á þann hátt að tímabil hans gegnir hlutverki nokkurs konar svisslykils ársins, eldurinn er táknrænn fyrir sprengikraft vorsólarinnar. ( þessu merki eru dagar og nætur jöfn að lengd. Hrúturinn er almennt séð tákn hins ævintýragjarna frumherja og hefur eins og öll hin merkin bæði kosti og galla. Hrútur tekur sem sagt frum- kvæði en miðar við hugsjónir sínar og þörf fyrir að vera fyrstur. Eldurinn er úthverfast- ur frumþáttanna fjögurra enda er oft sagt um fólk í eldmerkj- um að það sé lifandi og kraft- mikið. Hrúturinn ber leitina að sjálf- inu innra með sér. Þó hann taki lífinu gjarna af miklu hug- rekki og sýni karlmennskutil- burði er hann innst inni afar óöruggur með sig. Flestir gera sér grein fyrir sínum innri manni með árunum en þar til Hrúturinn nær þeim þroska mun hann ávallt reyna á sig til hins ýtrasta. Hrúturinn þarf því að gera sér betur grein fyrir til- finningum annarra og láta sér ekki yfirsjást að hann getur lært af reynslu annarra. Heim- ur hans er hugmyndaheimur en hann skortir reynslu í ver- aldlegum efnum sem gæti hjálpað honum að beita orku sinni á hagnýtan hátt. Hann hvetur þannig til þess að lifað sé og skapað en hann skortir oft hæfni til að gera innblástur sinn að veruleika. Hrúturinn þarf á stöðugri Stjörnubjört nótt í Saint-Rémy, mynd sem Hrút- urinn Van Gogh máiaöi í júnf 1889. Sprengi- krafturinn í mál- verkinu endur- speglar eldinn og ástríðurnar sem oft eru sögð mest áberandi eiginleiki fyrsta merkis stjörnu- hringsins, Hrúts- merkisins. spennu að halda. Sé ekki næg spenna í nánasta umhverfi er hann vís til að skapa hana eða fara á grænni veiðilendur. Hann sækist eftir tilfinninga- hita f öllum sínum sambönd- um og getur verið afar eignar- haldssamur í rómantískum málum. Hrúturinn gerði því rétt í að læra muninn á kynlífi og ást, því það síðarnefnda kallar á að sjálfið sé sett til hliðar, nokkuð sem oft reynist Hrútn- um erfitt. í samböndum sínum vill Hrúturinn að aðilarnir geti bætt hvor annan upp og hann þarfnast einhvers sem haldið getur eldi hans við án þess að slökkva á honum. Herskárri Hrúturinn mun leita uppi ein- hvern sem er honum mjög háður en er þó sjálfstæður sem félagi. Óvirkara lambið þarf á að halda einstaklingi sem örvar hann til dáða og veitir honum það öryggi sem hann þarfnast. Þegar Hrúturinn finnur slík- an einstakling er hann afar trygglyndur. Hann langar til að geta verið stoltur af sinni út- völdu og börnum þeirra, vegna þess að fjölskyldan er fulltrúi þess sem hann er og þess sem hann hefur skapað. Hann mun örva börn sín til tjáningar og þess að berjast fyrir því sem þau trúa á svo að þeim gangi vel með það sem þau taka sér fyrir hendur. Sjálfur á Hrúturinn erfitt með að taka við skipunum frá öðr- um og hann mun ávallt reyna að koma sér í leiðtogastöðu. Samkeppni er honum mjög að skapi og hann lætur ekki minni háttar áföll tefja sig lengi. Hrút- urinn reynir oft að taka foryst- una með valdi og þröngva sér upp á tindinn. Ef tækifæri býðst á hann til að stökkva til og gerir það oft án þess að sjá fyrir allar afleiðingar gerða sinna. Hrúturinn verður að læra að taka sér tíma til að skoða öll smáatriði stöðunnar vandlega en einbeita sér ekki eingöngu að aðalatriðinu. 18 VIKAN 7.TBL.1991
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.