Vikan - 04.04.1991, Síða 21
KOLBRÚN PETREA
KOLBRÚN PETREA GUNNARSDÓTTIR eða
Kolla, eins og vinir hennar kalla hana, er fædd 9.
júní 1969 og er því 21 árs. Hún er í tvíburamerk-
inu, fædd og uppalin í Reykjavík. Fyrstu tíu árin
bjó hún í Hlíðunum en fluttist síðan upp I Breið-
holt þar sem hún býr enn.
Kolbrún lýkur stúdentsprófi nú í vor af viðskipta-
sviði Fjölbrautaskólans í Breiðholti. í haust liggur
svo leiðin í Háskólann, þar sem hún ætlar að
nema lög. Hún var um það bil níu ára þegar hún
ákvað að verða lögfræðingur og hefur ekki hvikað
frá þeirri ákvörðun síðan. Draumurinn er að starfa
hjá einkafyrirtæki - ekki ríkinu, jatnvel sjálfstætt ef
heppnin verður með henni. Þrátt fyrir þessar áætl-
anir er Kolbrún ákveðin í að eignast fjölskyldu því
eins og hún segir sjálf: „Maður verður að hafa eitt-
hvað til að lifa fyrir." Henni finnst bara verst að
geta ekki gert allt í einu.
Kolbrún á mörg áhugamál. Hún hefur mjög
gaman af að fara í leikhús og sækir þau eins oft
og hún getur. Hún leggur stund á eróbikk og seg-
ist líka reyna að synda daglega, enda er sundlaug
rétt við skóladyrnar. Hún segist hafa gaman af
dýrum, átti einu sinni hund en á kött núna. Á laug-
ardögum vinnur hún I Sautján í Kringlunni.
Kolbrún Petrea tók þátt í keppninni um titilinn
fegurðardrottning Reykjavíkur og fór þá í fyrsta
sinn á háa hæla og fékk leiðsögn í göngu og fram-
komu á sviði. I fyrra fór hún í fyrsta skipti úr landi
er hún fór til Lúxemborgar, Frakklands, Italíu og
Spánar. Hún hefur fullan hug á að ferðast meira
en líður best á íslandi og vill búa hér heima.
Foreldrar Kolbrúnar eru Gunnar Heiðar Lofts-
son og Þórunn Brandsdóttir. Hún er elst fjögurra
systkina - á tvo bræður og systur sem er aðeins
eins árs.
Kolbrún er 171 sm á hæð.
ZANCASTER
The New Make-Up Collection