Vikan - 04.04.1991, Blaðsíða 30
VIKAN KYNNIR PÁTTTAKENDUR í FEGURÐAR
SAMKEPPNIISLANDS1991
izii
SIGRÚN ELSA SMÁRADÓTTIR er fegurðar-
drottning Suðurlands. Hún er 18 ára, fædd 27.
nóvember 1972 og er því bogmaður.
Sigrún er Vestmannaeyingur í húð og hár og
hefur alltaf búið þar, utan einn vetur er hún bjó hjá
frændfólki í Garðabæ og sótti skóla þar, en hana
langaði að þrófa eitthvað nýtt. Nú er hún á þriðja
ári í Framhaldsskólanum í Vestmannaeyjum og
lýkur stúdentsprófi næsta ár.
Sigrún Elsa er mjög listelsk og hefur frá því hún
var barn haft gaman af að skrifa Ijóð og sögur, á
reyndar sjö verðlaun úr ritgerðarsamkeþþnum.
Nokkrar sögur hennar hafa birst í Æskunni og
eina las hún í útvarþið fyrir nokkrum árum. Hún
teiknar mikið og hefur mikinn áhuga á myndlist.
Gullsmíði hefur þó orðið ofan á hvað framtíðina
varðar og hefur hún gengið á milli gullsmiða til að
fá pláss sem nemi. Það hefur ekki borið árangur
enn því þar ku vera þétt setinn bekkurinn og aug-
lýsum við hér með eftir gullsmið sem vill taka Sig-
rúnu Elsu í læri. Ræðumennska er einnig áhuga-
mál Sigrúnar og var hún í ræðuliði skóla síns í
Morfís-keppninni. Hún er líka í nemendaráði og
segir mikinn tíma fara í félagsstörf.
Eins og flestir Eyjamenn hefur Sigrún unnið I
fiski á sumrin en á komandi sumri ætlar hún að sjá
um bókhald I verslun sem fjölskylda hennar rekur.
Hún hefur gaman af að ferðast og langar mikið
til að komast til Rússlands því hún hefur frétt af
góðum málverkasöfnum þar, svo og fallega mál-
uðum kirkjum. Sigrún hefur komið til Englands,
Búlgaríu og tvisvar til Spánar. Hún unir sér þó
best heima I Eyjum en segist búast við að hún
verði að flytja þaðan einhvern tíma, atvinnunnar
vegna.
Sigrún Elsa er dóttir Smára Grímssonar og
Ragnheiðar Brynjúlfsdóttur. Hún á átta ára tví-
burasystur og kött að auki.
Hún er 168 sm á hæð.