Vikan - 04.04.1991, Síða 33
AFKONUNGAKYNI
Stephen King sagði eitt
sinn að „lyst fólks á
hryllingi virtist óseðj-
andi“. Það kemur sér vel fyrir
hann því King veit nákvæm-
lega hvernig hann á að fram-
reiða það sem hann kallar
„bókmenntalegt jafngildi
hamborgara og stórs skammts
af frönskum". Hryllingsborgar-
arnir hans hafa verið þaul-
sætnir á metsölulistum í rúm-
an áratug. Hér á eftir eru
nokkrar tölfræðilegar upplýs-
ingar um Stefán Kóng:
TÖLUR
Hann hefur skrifað 30 hryil-
ingssögur sem komið hafa út í
80 milljón eintökum. Árið 1989
var bók hans The Dark Half
gefin út í einni og hálfri milljón
eintaka og kom hún inn á met-
sölulista New York Times, í
fyrsta sæti.
Á síðastliðnu ári notaöi King
vald sitt til að krefjast þess að
þau 150 þúsund orð sem tekin
voru út úr frumútgáfu The
Stand árið 1978 yrðu sett inn
aftur. Þessi rúmlega þúsund
síðna, endurborna bók komst
einnig í fyrsta sæti metsölulist-
ans.
TEKJUR
22 milljón dollara tekjur á
tveimur árum gerðu að verk-
um að hann var eini rithöf-
undurinn á lista fjármálatíma-
ritsins Forbes árið 1990. Sum-
ir tölfræðingar fullyrða að Kon-
ungurinn hafi yfir 100 milljónir
dala í brúttólaun árlega. Ekki
slæmt fyrir mann sem lýsir sér
sem hálfgerðum lúða og hóf
feril sinn sem ritstjóri skóla-
blaðs sem nefndist Þorpsæl-
an.
UPPHAF
Hann seldi fyrstu smásögurn-
ar sínar fyrir 35 dollara hverja;
hann hélt áfram að skrifa og
selja sögur meðan hann vann
í þvottahúsi fyrir 60 dollara
vikulaun.
Fyrsta fyrirframgreiðsla,
sem hann fékk fyrir bók og
kom rétt eftir að simanum
hans var lokað vegna van-
skila, hljóðaði upp á 2.500
.0
dali. Stuttu eftir það barst hon-
um til eyrna aö kiljuréttindin
fyrir Carrie hefðu selst á
400.000 dollara. Hann keypti
hárþurrku handa konu sinni til
að halda upp á söluna. Síðast-
liðið ár gerði bókaútgáfan Vik-
ing fjögurra bóka samning við
hann sem hljóðaði upp á 38
milljónir dala.
SAFNARAR
Sérútgáfur sumra bóka Kings
seljast á verði sem er næstum
jafnhátt og fyrsta fyrirfram-
greiðslan hans: Fyrir bókina
Firestarter í eldtraustri kápu úr
asbesti má fá tvö þúsund doll-
ara. Síðastliðið ár lét bókafor-
Stephen
King er
höfundur
framhalds-
sögunnar
sem fer af
stað í þessu
tölublaði
Vikunnar.
Bókin hefur
selst í
stórum stil,
verið kvik-
mynduð og
rakað inn
milljónum
dollara í
vasa
kóngsins.
lagið Doubleday prenta 1.250
árituð, gullslegin eintök af The
Stand, innbundin í svart leður.
Hvert eintak var verðlagt á 325
dollara en ákafir safnarar
hringdu og buðu upp undir
1.200 dali á eintak.
KVIKMYNDIR
Kvikmyndir hafa verið gerðar
eftir 21 af bókum Kings; fyrir
hverja mynd, sem gerð verður
í framtíðinni, fær höfundurinn
frá einni og upp i tvær milljónir
dala. Hann skrifaði handritið
aö fimm myndanna og lék
aukahlutverk í þremur þeirra.
Sú mynd Kings sem mestu
skilaði í kassann var Pet Sem-
atary, fyrir hana komu inn rúm-
ar 57 milljónir dala og fyrir
Stand by Me fékkst 51 milljón
dala. It var gerð að fjögurra
tfma sjónvarpsmynd og sýnd
á ABC-sjónvarpsstööinni síð-
astliðið haust og myndin Eymd
var einnig frumsýnd síðastliðið
haust.
DULNEFNI
Það fyrirfinnast tveir Konung-
ar. Þegar útgefendur neituðu
að gefa út fleiri en eina af bók-
um hans á ári fór hann að
skrifa bækur undir nafninu
„Richard Bachman". Þegar
pretturinn uppgötvaðist til-
kynnti King að Bachman hefði
látist úr „krabbameini í. dul-
nefninu“.
SKRIFTIR
King skrifar tíu síður daglega
á Wang-tölvuna sína nema á
afmælisdaginn sinn, þjóðhá-
tíðardag Bandaríkjanna og
jóladag. „Á morgnana, alltaf á
morgnana,“ hefur hann sagt.
„Heldurðu að ég vilji skrifa
þetta aö kvöldlagi?" Meöan
hann skrifar hlustar hann á
uppáhalds þungarokkið sitt á
WZON, útvarpsstöðinni sem
er í eigu hans sjálfs. Hann
hættir yfirleitt á „bjórtíma" sem
er um fimmleytið. Eftirlætis-
greinarmerkjasetning hans er
röð þriggja upphrópunar-
merkja!!!
VERA
Hann er 43 ára að aldri, 195
sm á hæð og vegur 93 kíló.
EIGUR
Hann á tvö hús: sumarbústað
við vatn í Maine-fylki og 130
ára gamalt, 23 herbergja hús
frá Viktoríutímabilinu í
Bangor. Umhverfis húsið er
svört smíðajárnsgirðing,
skreytt kóngulóm og leður-
blökum. Hann á tvo Benza,
einn rauðan Cadillac blæjubíl,
einn Chevrolet sendiferðabíl
og eitt Harley- Davidson mót-
orhjól.
Hann segir sjálfur að hann
hafi fengið þrjár frumlegar
hugmyndir á ævinni.
7.TBL.1991 VIKAN 33
TEXTI: ÞORDIS BACHMANN