Vikan


Vikan - 04.04.1991, Qupperneq 41

Vikan - 04.04.1991, Qupperneq 41
OFFITA OQ ÖNNUR ÁÞJAN SVAR TIL L Ó U Kœra Jóna Rúna! Mig langar til að vita hvort þú getur leiðbeint mér og ráðiagt. Þannig er mál með vexti að ég er tœplega þrítug og er með ofsalega minnimáttarkennd. Ég er ógift. Það sem þjakar mig mest er að ég erþrjátíu kílóum ofþung og er með frekar skemmda húð. Ég á mjög erfitt með að taka sjálfstœðar ákvarðanir og lœt yfirleitt aðra um að ákveða fyrir mig. Mér finnst oftast, þegar ég tek þœr sjálf, að allt fari í vaskinn. Ég grœt oft á kvöldin því mér finnst ég eiga bágt. Þó veit ég að margt fólk á miklu erfiðara en nokkurn tíma ég. Reyndar finnst mér allt eitthvað svo vonlaust og ömurlegt, þó á ég mjög góða íbúð. Oft hef ég sótt um hinar ýmsu stöður því mig langar að komast í framtíðarstarf, en alltafverið hafnað. Ég get ekki meir og er að gefast upp. Getur þú ráðlagt mér eitthvað. Kæra Lóa! Þakka þér hjartanlega fyrir þitt ágæta og ein- læga bréf. Við skoðum ástand það sem plagar þig í gegnum innsæi mitt og hyggjuvit, í von um að það kunni að liggja einhver mögu- leiki þér til handa í því sem mér er Ijúft að leggja til þér til viðmiðunar við þinn eigin vilja, til réttra lausna á því sem hvílir á þér og gerir þig dapra. VANMAT VARHUGAVERT Að hafa takmarkaða tiltrú og persónulegan áhuga á sjálfum sér er ekki viturlegt eða þægi- legt innra ástand en vissulega vandleyst og viðkvæmt ef dýpra er skoðað. Þó er langt frá að það sé óyfirstíganlegt, Með fyrirfram þökk Lóa. þó þaö kunni að hafa hvarflað að þér. Flest erum við þannig gerð að við komumst vart hjá ein- hverjum efasendum um okkur sjálf á vissum tímabilum í lífs- göngu okkar hér á þessari annars ágætu jörð. Það er vit- anlega afar nauðsynlegt að hafa staðgóða innri þekkingu á eigin ágæti og ýmsar þægi- legar en tímafrekar leiðir eru til að slíku markmiði. SKÓLAKERFIÐ Best væri ef viðgengist í skólakerfinu kennsla og þjálf- un í almennri hvatningu til handa einstaklingum og hæf- ist strax í byrjun skólagöngu. Þar ætti sér stað einhvers kon- ar greining á augljósum kost- um og göllum viðkomandi og hvort tveggja fengi viðhlítandi meðhöndlun þeirra sem til þekktu hvernig mögulega mætti vinna úr. Ef kostir okkar væru strax í upphafi ræktaðir upp, auk þess sem augljósir áhugaverðir og eftirtektarverð- ir eiginleikar væru efldir og styrktir markvisst, myndi ör- ugglega draga stórlega úr vanmati alþýðumanna á eigin persónu. Aftur á móti yrði á sama tíma að draga úr og plokka burt það sem augljóslega félli undir heftandi eiginleika við- komandi. Hvort tveggja yrði að gerast með fullkomnum vilja og vitund þess sem í hlut á, þó um börn væri að ræða sem skilja ekki allt í fyrstu. Til þess að þannig sjónar- mið gagnvart einstaklingseðli barna njóti sín, verður að fá þau til að tala og kynnast þeim í gegnum viðræður og tilfinn- ingalega tjáningu. Slíkt er ein- ungis hægt ef tekið er með í reikninginn að mannlegir þætt- ir tilverunnar eru ekki síður mikilvægir til umfjöllunar og meðhöndlunar og jafnvel til framdráttar einstaklingnum en til dæmis almenn þjálfun í er- lendum tungumálum og stærðfræði. HROKI AÐ VANMETA ANDLEGA EIGINLEIKA Það er óviturlegur andlegur hrokagikksháttur að vanmeta mikilvægi andlegra verðmæta, sem liggja fyrst og fremst í hæfni einstaklingsins til að meta sem nákvæmast eigið ágæti. Það er svo aftur á móti vísir að mannlífi sem byggist fremur og ekki síður upp á því persónulega og huglæga en því járnkennda og kalda. Við erum öll á áþekkan hátt byggð upp á sviðum tilfinninga og þurfum öll á því að halda að rökræn þjálfun þeirra sé markmviss frá upphafi en ekki tilviljunarkennd og komi þá í framhaldi af einhvers konar vonbrigðum eða missi. Við eigum ekki að þurfa að byrja tilfinningalega og and- lega upþbyggingu í framhaldi af áfalli heldur eigum við að vera vel undir slíka innri hnekki búin þegar að þeim kemur, eftir að hafa frá barns- aldri lært að skilja og skynja mikilvægi þess að láta I Ijós með orðum og atferli þær til- 7.TBL. 1991 VIKAN 41 JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SVARAR LESANDA
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.