Vikan - 04.04.1991, Page 66
TEXTI: JÓHANNA S. SIGÞÓRSDÓTTIR
Ferðaskrifstofufólkið mætti vel og var salurinn þétt setinn.
FLUGLEIÐIR HEFJA kÆTLUNARFLUG TIL HAMBORGAR
LÍFLEG LANDKYNNING
í BORGINNI GRÆNU
Þaö var mikið um að vera
í ráðstefnuhöllinni Con-
gress Centrum í Ham-
borg á dögunum þegar Flug-
leiðir kynntu nýtt áætlunarflug
til sömu borgar, sem hefst 25.
apríl næstkomandi.
Til gleðinnar var boðið
ferðaskrifstofufólki í Hamborg
og var vel mætt. Við komuna
var gestum boðið upp á drykk,
rétt á meðan þeir voru að
kasta mæðinni. Að því loknu
var þeim boðið að ganga í
salinn. Þar gaf á að líta því
fyrsta sjónin sem mætti þeim
var langborð, fallega skreytt í
íslensku fánalitunum, hlaðið
rammíslenskum kræsingum.
Auðvitað var íslenska fjalla-
lambið mætt á staðinn og naut
mikilla vinsælda eins og alltaf.
Þá voru á boðstólum ýmsir
sjávarréttir og svo auðvitað
þorramatur. Ilmandi hákarlinn
var þarna líka og mátti sjá
gesti sem hölluðu sér fram og
þefuðu svo lítið bar á upp úr
krúsinni. Flestir þeirra voru
fljótir að rétta úr sér aftur en
sumir létu sig hafa að smakka
og líkaði bara vel! Voru þeir
afar hrifnir af íslenska matnum
og sögðu einhverjir að þeir
væru vísir til þess að koma til
landsins þótt ekki væri nema
bara til þess að fá sér að
borða.
Þegar fólk var sest til borðs
hófst kynning á íslandi. Sýnd-
Steinn Logi Björnsson, forstööumaöur Flugleiðaskrifstofunnar í Frankfurt (annar f.v.), ásamt tveim erlendum starfs-
mönnum Flugleiða við veisluborðið.
ar voru litskyggnur og Ingi
Gunnar Jóhannsson flutti ís-
lensk lög og lék undir á gítar.
Steinn Logi Björnsson, yfir-
maður Flugleiðaskrifstofunnar
í Frankfurt, sagði frá fyrirhug-
uðu áætlunarflugi, kynnti nýj-
an flugflota Flugleiða og
fræddi gesti á ýmsu sem við-
kemur landi og þjóð. Loks
sýndi töframaður kúnstir sínar
meö aðstoð nokkurra fórnar-
dýra úr salnum.
Við innganginn höfðu gestir
fengið afhenta miða sem voru
happdrættismiðar í ferða-
getraun. Vinningar voru
Lamb kiötið F W' ^ dregnir út í lok samkomunnar
isienska þótti M0ST 'Lt'-f 1 ■ °9 vitaskuld var aðalvinningur
afar Ijúffengt. I 'f. ';***&&~ " * ferö til íslands og til baka.
64 VIKAN 7. TBL. 1991