Vikan - 31.10.1991, Qupperneq 10
Stálblóm fjallar um sex konur sem hafa hlst árum saman á hverjum laugardagsmorgni hjá henni Trúví - og blaðamaður Vikunnar fékk að vera með í einu
slfku samkvœml ásamt Ijósmyndara ...
STÁLBLÓM LEI KFÉLAGS AKUREYRAR:
NAFNIÐ VARÐ TIL
VIÐ JARÐARFÖRINA
GLEÐI OG TREGI í STÓRSKEMMTILEGU VERKI
Um þessar mundir sýn-
ir Leikfélag Akureyrar
Stálblóm eftir Robert
Harling. Þetta leikrit, sem fjall-
ar um sex konur, líf þeirra,
ástir, sorgir og gleöi, var fyrst
sett upp á Off-Broadway í
mars 1987 og öðlaðist þegar í
stað mikið umtal og griðarleg-
ar vinsældir, sem sést trúlega
best á því að sýningarnar urðu
1126. Síðan hefur leikritið ver-
ið sett upp víða og alls staðar
við mikla aðsókn og fögnuð.
Höfundurinn, Robert Harl-
ing, sem er lögfraeðingur að
mennt, meitlaði söguþráðinn
upphaflega í smásöguform í
minningu systur sinnar sem
Þórunn Magnea Magnúsdóttir ieikstjóri stýrði
uppfærslu Stálblóms.
lést úr sykursýki 1985. Harling
hafði aldrei litið á sig sem rit-
höfund, hann langaði fyrst og
fremst til að standa sjálfur á
sviðinu - og leika. Lögfræðin
virtist aðeins vera hans aðferð
til að ná sér í viðurkennt emb-
ættispróf - sem hann nýtti svo
aldrei.
Leikritið gerist í smábæ í
Suðurríkjum Bandaríkjanna en
höfundurinn er einmitt frá litlum
bæ, Natchitoches, á sama
svæði og skilar bæjarbragur-
inn, umræðuefnin, viðhorfin,
kunningsskapurinn sem ríkir —
nánast á milli allra - sér
skemmtilega í Stálblómum og
Ijær leikritinu trúverðugan blæ.
Stálblóm fjallar sem fyrr
segir um sex konur en þær
hafa hist árum saman á hverj-
um laugardagsmorgni á hár-
greiðslustofunni hjá henni
Trúví - og blaðamaður Vik-
unnar fékk að vera með.
Þama deila þær gleði og sorg-
um með hver annarri, hver á
sinn hátt. Enginn skyldi þó
ætla að hér sé á ferðinni
dæmigert kvennaleikrit, með
kvennabaráttu og karlahatri.
Þetta leikrit fjallar ef til vill fyrst
og fremst um það að vera
manneskja af holdi og blóði og
eftir að hafa fylgst með æfingu
komst blaðamaðurinn að þeirri
niðurstöðu að það væri senni-
10 VIKAN 22. TBL1991