Vikan - 31.10.1991, Qupperneq 62
ANNA S. BJÖRNSDÓTTIR SKRIFAR
ÆVINTYRI VERULEIKANS
TTTTTTTVTTTTTYTTTTTTTTTTTTTTT
Við skólasysturnar úr
Kennaraskólanum er-
um í saumaklúbbi sem
er að verða 22 ára gamall.
Fyrstu árin var ég ekki með
vegna búsetu og félagslegs
vanþroska en svo fór ég að
mæta en varð að viðurkenna
að stundum voru það kökurnar
sem freistuðu mest enda er ég
svolítið sólgin í sykur. Sykur-
fíkn, segir sálfræðingurinn
minn, hann má svo sem kalla
mig öllum illum nöfnum, fyrir
það borga ég honum stórfé.
Jæja, ég er að tala um sauma-
klúbbinn minn. í gegnum árin
höfum við kynnst og skemmt
okkur saman við ýmsar að-
stæður. Stundum eru farnar
svaðilfarir í vondum veðrum
upp í sveit og fer ég þá yfirleitt
ekki með þar sem ég tek ekki
óþarfa áhættu meðan börnin
mín eru ung.
Stundum er grillað í sumar-
bústöðum víðs vegar ( ná-
grenni Reykjavíkur. Þá mæti
ég heldur ekki, nenni ekki að
kaupa mér kjötsneið og vín til
að hafa með mér. Finnst að
allt eigi að vera innifalið í
svona saumaklúbbi.
Um daginn varð ég mér til
skammar þegar veitingarnar í
saumaklúbbnum voru forláta
fiskisúpa en engar kökur á
eftir. Ég varð svo vonsvikin að
ég skrifaði í gestabókina „hvar
eru kökurnar?" en allt kom fyr-
ir ekki, engar kökur að hafa.
Eftir þann klúbb skapaðist
alvarleg umræða um það
hvort við ættum ef til vill að
breyta þessum lúxus-sauma-
klúbbi í heilsufæðisklúbb þar
sem þær sem á þyrftu að
halda fengju bara salatbar
eins og það er kallað og þess-
ar fjórar grönnu fengju allar
kökurnar. Eða hvort við ættum
að hafa einhverja frumlega
rétti sem koma öllum á óvart.
Niðurstaðan er sú að við vilj-
um alls ekki missa munaðinn
úr saumaklúbbnum okkar.
Heimabökuðu marengskök-
urnar, ávaxtaréttina með
koníaksrjómanum, ofnbökuðu
aspasbökurnar, brauðbollurn-
ar, salötin og ostabakkana.
Okkur langar bara að halda
áfram að vera venjulegur
saumaklúbbur, sem stundum
mætir með hatta, fer stundum
í sund og svaðilfarir og ég er
búin að lofa sjálfri mér að
reyna að ná aðeins meiri fé-
lagslegum þroska ef sálfræð-
ingurinn minn telur það ekki
vera mér um megn.
BOÐORÐ
Vertu öðrum
það sem þú vilt
vera öðrum.
Vertu þér sjálfri
það sem þú vilt
vera þér sjálfir.
Meira er það ekki.
Við minnum á
að nœsta blaði
fylgir bók með
fjölda góðra
uppskrifta að
gómsœtum
smákökum
og tertum.
14. NÓVEMBER
ASKRIFTARSIMINN ER 81 31 22
58 VIKAN 22. TBL. 1991