Vikan - 03.09.1992, Side 14
I
FyrirsætustarfiS frá sjónarhóli Nönnu Guðbergs:
HER ER ÞAÐ
HARKAN
SEM GILDIR
ún er gullin. En hún er grýtt. Hún
er refilstiga. Og hún er vandröt-
uö. Þaö er auövelt að hnjóta á
grjótum freistingarinnar. Og þaö er auð-
velt aö láta glepjast. Hún er lævís, hún er
slæg. Hún freistar og lokkar, læðist og
plokkar, hér og þar, alls staðar. Gagnvart
ungum stúlkum er hún sérstaklega viö-
sjárverö - ef ungu stúlkurnar eru ekki á
varðbergi, hverja stund, hvert andartak.
Þær veröa aö passa sig á „Ijótu” körlun-
um. Sem eru svo ofboöslega góöir! Eöa
þeim finnst þaö. Og mörgu fleira. Þetta
er leiöin til frægöar og frama. Meö brosiö
blítt. Þetta er hin ógreiðfæra lífsleiö fyrir-
sætunnar, alla leiö á hátind feguröarinn-
ar.
Nanna Guðbergsdóttir er ein af þess-
um ungu stúlkum sem þræöa þessar tor-
færur í erlendum stórborgum. Hún býr í
Mílanó, á Ítalíu, og horfir þar í myndavél-
ar, nánast upp á hvern dag. Fyrir henni
er draumur allra drauma aö rætast, hún
vinnur fyrir sér meö því aö sitja fyrir. Og
Nanna þarf aö hafa sig alla viö til þess
aö falla ekki i hyldjúpar gryfjur gylliboöa.
Grænir skógar eru tálsýnir. Hún gerir sér
grein fyrir því. Komum nánar aö þessum
grænu frumskógum síöar. Nanna er
mætt í viðtal, há, um þaö bil einn og átta-
tíu, og grönn, þó ekki mjó, kátleg í fram-
an, brosandi, auövitaö. Örugg í fasi, tali
og hreyfingum, veraldarvön aö því er
viröist. Hún kemur sér þægilega fyrir,
þessi átján ára gamla stúlka sem er
fædd þann 20. júní þaö herrans ár 1974.
En hún viröist eldri. Ekki þaö aö hún sé
oröin hrukkótt eöa gráhærö eða þannig
lagaö séð, heldur öll hennar orö og allt
hennar æöi gefur manni tilefni til aö telja
árin vel yfir tuttugu. Hún hefur veriö á
Ítalíu.
„Þetta byrjaöi þannig aö maöur kom til
lcelandic Models, þar sem ég var aö
vinna, og þar valdi hann nokkrar stelpur
en mig ekki. Ég var þó ákveöin í aö kom-
ast út og ákvaö þess vegna sjálf aö fara
út án aðstoðar hans. Þá hringdu lceland-
ic Models í hann og spuröu hvort hann
gæti ekki aöstoðað mig viö aö búa til
bók. Hann jánkaöi og ég fór til hans í
Milanó þar sem ég er búin aö vera i átta
mánuöi,” segir Nanna og þaö aö búa til
bók merkir aö teknar eru af henni myndir
til þess aö sýna væntanlegum viðskipta-
vinum. „Fyrirtæki þessa manns heitir
Image en nú er ég komin til annarrar um-
boösskrifstofu, þeirrar stærstu á Ítalíu og
hún heitir Ricardo Gay,” bætir Nanna viö
og greinileg ummerki italskrar tungu eru
merkjanleg í framburöi hennar á nafni
stofunnar. Hún byrjar á nýja staönum í
september.
EKKI BARA PRITTÍ FEIS
Vel á minnst - tungumál og slíkt. Hvernig
gekk Nönnu aö komast inn í máliö og ó-
kunnar aöstæöur i borg eins og Mílanó,
þar sem gilda aörir siöir og venjur en hún
hefur átt aö venjast? „Mjög vel," gellur
hiklaust í Nönnu eins hún hafi verið
spurö hvernig henni hafi gengið aö
bursta tennurnar um morguninn. „Ég ætl-
aöi fyrst bara aö gera bókina og vera I
mánuö en var síðan beöin um aö vera
þrjá mánuöi,” svarar Nanna og í Ijós
kemur aö hún bjóst ekki viö svo skjótum
frama í fyrirsætustarfinu, sérstaklega
vegna þess aö þar gildir mikil harka og
hver reynir þar sem mest aö koma sér
aö. Hún kunni samt ekkert í málinu þegar
hún fór fyrst, þaö var í fyrra. „Núna tala
ég alveg reiprennandi enda er landiö frá-
bært og fólkið yndislegt. Ég fór meðal