Vikan - 03.09.1992, Side 29
Margir íslendingar og
jafnvel enn fleiri út-
lendingar flykkjast
aö Bláa lóninu á hverjum degi
til aö njóta hinnar sérstæðu
feguröar Reykjanesskagans í
nágrenni Grindavikur og baöa
sig í Bláa lóninu sem er orðiö
þekkt víöa um heim fyrir
lækningarmátt sinn. Auk þess
sem hægt er að baöa sig
þarna og njóta veitinga í fal-
legu umhverfi á veitingastaön-
um, sem þarna stendur, er
Hótel Bláa lóniö þarna mitt í
hrauninu og þegar skyggnst
er þangað inn verður maöur
undrandi og glaður.
Hóteliö lætur lítiö yfir sér
viö fyrstu sýn en innan dyra er
bjart og hlýlegt, málverk prýöa
veggina og einhver sérstakur
heimilisblær ríkir þarna inni.
Herbergin eru rúmgóð og fal-
leg, meö baöherbergi,
nuddsturtu, síma, ísskáp, út-
varpi og litasjónvarpi meö
tveimur myndbandsrásum.
Þórður Stefánsson byggöi
þetta hótel áriö 1983 og rekur
þaö ásamt eiginkonu sinni,
Eygló Friöriksdóttur. Var hann
beðinn um að segja nánar frá
hótelrekstrinum og upphafinu
aö öllu saman, leyfa okkur að
heyra hvaö á daga hans hefur
drifiö en margir þekkja Þórö
síðan hann var þjónn á Loft-
leiðum og á Gullfossi hér áöur
fyrr.
„Þaö var stjúpi minn, Sig-
uröur Demetz Franzson, sem
sagöi mér fyrst frá Bláa lóninu
fyrir allmörgum árum. Psori-
asisfélagið haföi smávegis
aöstööu viö lónið, sem var ó-
girt og óþekkt aö mestu. Eitt
sinn fór ég í sunnudagsbíltúr
suður með sjó, fékk mér
sundsprett í lóninu og brátt
fæddist hugmyndin um hótel-
iö. Fimm dögum síöar var ég
kominn meö leigurétt til 99
ára á þessari jörö sem er
gömul ábúendajörð frá
Grindavík, Járngerðarstaðir
og Hóp.
Hótelið var byggt á fimm
mánuðum og var þaö hálfgert
kraftaverk vegna þess að ég
var ekki mjög fjársterkur um
þær mundir en bjartsýnina
vantaði ekki. Ég átti mikið af
henni og einnig fékk ég góöa
hjálp nokkurra aðila svo aö
þetta varö mögulegt.
Fyrstu gestirnir mínir voru
erlendar flugáhafnir en smátt
og smátt hafa íslendingar
komið auga á staöinn og nú
kemur fólk hingaö til aö halda
upp á stórafmæli, árshátíöir
eöa jafnvel kemur hingaö í
brúðkaupsferð og unir sér vel.
Hérna var haldið ættarmót eitt
sinn, amman spilaöi á píanó-
iö, allir sungu saman og var
þetta mjög gaman."
Blaöamaöur Vikunnar fékk
aö njóta gestrisni Þóröár og
dvaldi í tvær nætur á hótelinu
viö besta viöurværi. Á kvöldin
sátu nokkrir gestanna saman
og horföu á sjónvarpið.
Nokkrir Bandarikjamenn grill-
uðu úti og buðu til veislu, enn
aðrir voru í nuddpottinum sem
er þarna innan dyra ásamt
gufubaði. Alltaf eitthvaö aö
gerast og andrúmsloftiö
býsna alþjóðlegt.
í hótelinu er eldhús, svo-
kallað „selfkittering”, þar sem
gestirnir geta fengið sér kaffi
eöa te, eldað sér sjálfir eöa
haft sína hentisemi. Fyrstu
árin sem hótelið starfaöi var
þaö rekið sem veitingahús.
Þessu var breytt en morgun-
veröur er innifalinn í gisting-
unni og samanstendur hann
af nánast öllu sem fólk langar
aö boröa aö morgni dags.
Brauð, ávextir, reyktur lax,
síld, sultur, súrmjólk, korn-
meti, ávaxtasafi, te og kaffi er
þar á borðum. Morgunverður-
inn er látinn standa þar til allir
hafa boröaö og eru engin
tímamörk sett, tekið er tillit til
gestanna.
Gestirnir fá til afnota
skjannahvíta frottésloppa svo
þeir geti gengiö í Bláa lónið á
sundfötunum. Þaö er sérstök
sjón að sjá gestina á hvítu
sloppunum ganga í svörtu
hrauninu og afar myndrænt.
„Ég haföi áhuga á baðaö-
stöðunni hérna en hafði ekki
efni á aö byggja hana. Þaö
geröi Samband sveitarfélaga
á Suöurnesjum. Reksturinn
var svo boðinn út til eins árs
HAUSTLITIRNIR KOMNIR
ÚTSÖLUSTAÐIR: HYGEA Austurstræti • HYGEA Kringlunni • INGÓLFSAPÓTEK Knnglunni • REGNHLlFABÚÐIN Laugavegi ■
SOFFlA Hlemmi • NANA Hólagarði • SNYRTILlNAN Fjarðarkaupum Hf. • APÓTEK GARÐABÆJAR ■ RANGÁR APÓTEK Hellu ■
RANGÁR APÓTEK Hvolsvelli • STJÖRNUAPÓTEK Akureyri • ANNETTA Keflavík • SÆTÚNSKAFFI Stöðvarfirði.