Vikan - 03.09.1992, Blaðsíða 54
SÁLARKIMINN
Bréf til Sigtryggs geta snúist um samskipti kynjanna, sam-
skipti barna og foreldra, samskipti milli hjóna, kynlíf og
annað það sem lýtur að sálfræði og sálfræðilegum vanda-
málum. Bréfin mega vera nafnlaus eða undir dulnefni.
Utanáskriftin er:
SIGTRYGGUR JONSSON SALFRÆÐINGUR Sigtryggur Jónsson sálfræðingur, Álftamýri 3,108 Reykjavík
SVARAR LESENDUM
Kæri sálfræöingur.
Ég er 29 ára karlmaöur og al-
veg hræöilega feiminn. Þetta
hefur háö mér frá því aö ég
man eftir mér og gert mig
mjög einmana. Ég á enga vini
og fáa kunningja og hef vitan-
iega aldrei kynnst stelpu. Ég
geri ekkert nema vinna og
hanga heima hjá foreldrum
mínum, les mikiö og horfi á
sjónvarp en fer aldrei í bíó,
leikhús eöa á skemmtistaöi.
Áöur fór ég á skemmtistaði en
þaö breytti engu. Ég geröi
ekkert til aö kynnast fólki og
fór því jafneinn heim og ég
kom. Þaö eina sem ég fékk út
úr þessu var staöfesting á því
aö ég væri einn og einmana
svo ég hætti líka aö fara á
skemmtistaöina.
Stundum finnst mér þetta
allt i lagi en nú i seinni tíö líö-
ur mér verr og verr meö þetta
og veit ekki hvaö ég á aö
gera. Á ég aö leita til sálfræö-
ings? Ég get ekki talaö viö
neinn um þetta og þegar aörir
reyna aö tala viö mig um hvaö
ég sé einmana og geri lítiö
eyöi ég þvi og kem mér burt.
Eg veit alveg aö þetta er ekki
eölilegt en ég bara get ekki
veriö aö ræöa þaö viö aöra.
Mér finnst ég ætti aö geta gert
þetta sjálfur. Ég bara hef mig
ekki í þaö.
Ég veit ekki hvaö ég á aö
tala um viö aöra eöa hvernig
ég get fariö aö því aö kynnast
ókunnugu fólki. Helst langar
mig aö kynnast stelpu. Þá
gæti ég gert eitthvaö meö
henni og væri þá ekki svona
einmana. En ég þori ekki aö
gera neitt í því aö reyna aö
kynnast konum. Ég er svo
hræddur um aö gera eitthvaö
vitlaust. Hvernig fer maöur
eiginlega aö því aö kynnast
bráöókunnugri konu þegar
maöur þorir þaö ekki einu
sinni undir áhrifum áfengis?
Kannski getur þú ekkert
hjálpaö mér. Ég ætla samt aö
senda bréfiö í þetta skipti. Ég
er búinn aö hætta svo oft viö.
Ég vona samt aö þú getir gef-
iö mér einhver góö ráö um
hvaö ég geti gert.
Palli.
Kæri Palli.
Það er ekki auðvelt fyrir mig
að segja þér hvað þú átt að
gera. Eg er viss um að það er
nóg af fólki tilbúiö til að segja
þér hvaö þú átt að gera og
hvernig þú átt að gera það.
Ég er einnig viss um að fullt af
fólki hefur þegar gert þetta.
Samt ert þú enn einmana. Að-
ferðirnar skipta ekki öllu máli
heldur þaö að gera eitthvað í
málinu og þaö virðist þú ekki
gera. Ég er líka nokkuö viss
um að þegar þér dettur eitt-
hvað í hug eöa einhver sting-
54 VIKAN 18. TBL.1992