Vikan - 03.09.1992, Blaðsíða 73
kom fólki gersamlega á óvart.
Þessi mynd kostaði sáralítið
og í henni eru hvorki glæfra-
atriði né morð, aðeins hlýja
og söngur. Amerískur söngv-
ari yfirgefur England á fimmta
áratugnum en kemur síðan
aftur níu árum seinna. Er
þetta sami maðurinn eða
staðgengill hans? Myndin
verður tekin til sýninga í
Regnboganum ef ekki er þeg-
ar byrjað að sýna hana.
Óhætt er að mæla með þess-
ari mynd, alla vega getur
greinarhöfundur gert það.
DÆTUR REBEKKU
Rebeccas Daughters er æv-
intýra- og gamanmynd sem
gerist í Wales árið 1843.
Fjallað er um auðugan land-
eiganda sem herjar á fátæk-
an bæjarlýð til að sölsa undir
sig meira land. Ekki Ifður á
löngu þar til sést til svarts
riddara sem býður hjáleigu-
bændum og almúgafólki að-
stoð sína við að berjast gegn
landeigandanum. Auk þess
verður riddarinn dökki
ástfanginn af dóttur landeig-
andans. Þess má geta að
landeigandann leikur Peter
O Toole (Lawrence of Arabia,
The Last Emperor). Meðal
annarra leikara eru Joely Ric-
hardson og Paul Rhys. Þetta
er einhvers konar bresk út-
gáfa af Zorro.
▲ Svip-
mynd úr
mynd
Dereks
Jarman,
Edward II.
▼ Dóttir
ríka land-
eigandans
í Rebeccas
Daughters.
kenndi það af fúsum og frjáls-
um vilja opinberlega árið
1990. Auk þess játaði hann
fyrir alþjóð að hann væri
sýktur af alnæmisveirunni HIV
og hefur reynt að breyta
viðhorfi fólks gagnvart kyn-
villu.
Myndin þykir Ijóðræn, fal-
lega stílfærð og vel leikin.
FJÁRSJÓDALEITIN
Eric Idle, einn félaginn úr
Monthy Python hópnum, og
Robert Wuhl leika í ærsla-
fenginni gamanmynd sem
hlotið hefur titilinn Missing
Pieces. Auk þess leikur hin
fallega bandarfska leikkona
Lauren Hutton (American
Gigalo) í myndinni.
Wendel Dickens, sem leik-
inn er af Eric Idle, er kunngjört
að hann hafi undir höndum
fjársjóð mikinn. Hann reynist
þó ekki hafa þennan fjársjóð
svo hann bara leitar hans af
mikilli ákefð ásamt félaga sín-
um, Lou Wimpole.
Myndin þykir grátbrosleg.
JÁTVARÐUR II
Breska kvikmyndin Edward II
hefur hlotið fádæma góða
dóma og aðsókn. Einn frum-
legasti leikstjóri Breta, Derek
Jarman, á heiðurinn af henni.
Styðst hann við leikrit
Christophers Marlowe
(1564-1593) en færir það þó í
nútímalegan búning.
Þess má geta að Derek
Jarman er hommi og viður-
18.TBL. 1992 VIKAN 73
▲ Heyrió
söng minn
í myndinni
Hear My
Song.
T Leikar-
inn sem
leikur Ijóó-
skáldió
John
Keats í
The Night-
ingale.
TTveir örvænt-
ingarfullir aó
leita fjársjóðs-
ins í Missing
Pieces.
BORG GLEÐINNAR
Þegar hefur verið fjallað um
þessa mynd Rolands Joffes
(The Mission, Killing Fields)
en rétt er að minnast aðeins á
hana aftur því hún hefur feng-
ið góðar viðtökur, til að mynda
í Bandaríkjunum. Hún hefur á
að skipa amerískum, breskum
sem og indverskum leikurum.
Má fremstan nefna P.atrick
Swayze, auk þess Pauline
Collins (Shirley Valentine) og
Art Malik (Turtle Beach, Living
Daylights).
Myndin fjallar um lækninn
Max Loeb sem fer til Kalkútta
á Indlandi og hittir þar Ind-
verja nokkurn sem verður
sfðan góður vinur hans. í
sameiningu safna þeir kröft-
um til að berjast gegn spill-
ingunni og eymdinni sem ríkir
í margmilljónaborginni sem
kölluð hefur verið borg gleð-
innar.
Myndin flytur góðan boð-
skap sem áhorfendur geta
séð þegar þar að kemur.
SVANASÖNGUR
UÓÐSKÁLDSINS
The Nightingale er mynd sem
fjallar um síðustu æviár Ijóð-
skáldsins Johns Keats
(1795-1821). Greinir myndin
frá því þegar Ijóðskáldið
hrjáða hefur fengið taugaveiki
og semur eitt fegursta Ijóð
samtíma síns. Þetta er
kannski engin kátínumynd en
hún er fögur á að líta og
vönduð.
Vandlátir láta hana alveg
örugglega ekki framhjá sér
fara. □
- þjónar þer allan sólarhringinn
PÓNTUNARSÍMI:
679333
PIZZAHÚSIÐ
Grensásvegi10
FRIAR HEIMSENDINGAR ALLAN
SÓLARHRINGINN 7 DAGA VIKUNNAR