Vikan - 17.09.1992, Blaðsíða 4
17. SEPTEMBER 1992
19. TBL. 54. ÁRG.
VERÐ KR. 388
í áskrift kostar VIKAN kr. 310
eintakið ef greitt er með gíró en kr.
272 ef greitt er með VISA, EURO
eða SAMKORTI. Áskriftargjaldið er
innheimt fjórum sinnum á ári, sex
blöð í senn. Athygli skal vakin á því
að greiða má áskriftina með EURO,
VISA eða SAMKORTI og er það
raunar æskilegasti greiðslumátinn.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum f
síma 91-813122.
Útgefandi:
Samútgáfan Korpus hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þórarinn Jón Magnússon
Ritstjórnarf ulltrúi:
Hjalti Jón Sveinsson
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Sveinsson
Markaðsstjóri:
Helgi Agnarsson
Innheimtu- og dreifingarstjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Framleiðslustjóri:
Sigurður Bjamason
Sölustjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Aðsetur:
Ármúli 20-22, 108 Reykjavík
Slmi: 685020
Útlitsteikning:
Hildur Inga Bjömsdóttir
Guðmundur Ragnar Steingrímsson
Setning, umbrot, litgreiningar
og filmuskeyting:
Samútgáfan Korpus hf.
Prentun og bókband:
Oddi hf.
Höfundar efnis í þessu tölublaði:
Margrét Hrafnsdóttir
Jóhann Guðni Reynisson
Anna S. Bjömsdóttir
Ásdís Ósk Erlingsdóttir
Helgi Rúnar Óskarsson
Þórdís Baohmann
Sigtryggur Jónsson
Helga Möller
Jóna Rúna Kvaran
Hjalti Jón Sveinsson
Hallgerður Hádal
Þórdís Lilja Jensdóttir
Þorsteinn Erlingsson
Guðjón Baldvinsson
Glsli Ólafsson
Esther Finnbogadóttir
Kari Pétur Jónsson
Gunnar H. Ársaelsson
Christof Wehmeier
Svanur Valgeirsson
Myndir í þessu tölublaði:
Golli
Magnús Hjörieifsson
Bragi Þ. Jósefsson
Sóla
Binni
Þórdís Lilja Jensdóttir
Þorsteinn Eriingsson
Katrín Elvarsdóttir
ÞJM o.m.fl.
Forsíðumyndina af
fimmta keppandanum um titilinn
forsiðustúlka ársins,
Margréti Þóru Óladóttur,
tók Bragi Þ. Jósefsson.
Förðuri: Kristin Stefánsdóttir
með No Name Cosmetics.
Sjá viötal bls. 24
MARGRÉT HRAFNS í HOLLYWOOD
Stjömulíf er hundalíf á
köflum, segja poppar-
amir og víst getum við
tekið undir það því það er
eins með þá og sjómennina,
þeir þurfa stöðugt að vera að
veiða upp gullið hvar sem það
býðst svo dæmið gangi upp.
Svo segja þeir að minnsta
kosti.
Það hefur því vakið athygli
hér vestra að sumartónleikar
þekktustu hljómsveitanna
hafa ekki gengið sem skyldi.
Hafa kynningarstjórar eftirlæt-
isgoða á borð við Genesis,
U2, Bruce Springsteen,
Guns N' Roses og Metallicu
af þessu þungar áhyggjur
enda bjuggust þeir við metað-
sókn. Þannig hefur Genesis
aðeins náð meðalsölu og
sjálfur Bruce Springsteen,
sem á árum áður mátti ekki
nefna orðið tónleikar á al-
mannafæri án þess að biðrað-
ir tækju að myndast, má
þakka fyrir að fylla fimmtán
þúsund manna hús. Segja
sumir að hann sé kannski
ekki lengur sá svali gæi sem
hann var í eina tíð heldur bara
hefðbundinn heimilispoppari.
Þrátt fyrir húsfylli á tvennum
fyrstu tónleikum U2 í New
Jersey hefur áhorfendum ann-
arra fylkja lítt legið á að kaupa
miða. Samkrull risanna í rokk-
inu - Guns N' Roses og
Metallicu - sem allir áttu von á
að myndu sprengja öll aðsókn-
armet, hefur aðeins náð hús-
fylli í fáeinum fylkjum. Barry
Fey, kynningarstjóri ferðarinn-
ar, segist þó bjartsýnn á fram-
haldið enda hljómsveitirnar á
toppnum um þessar mundir.
Eric Clapton hefur ástæöu til
aó brosa breitt þessa dag-
ana. Hér sést hann ásamt
óþekktri vinkonu sinni.
Reyndar hefur ekki öllum
gengið illa því dúettinn Elton
John og Eric Clapton hefur
selt upp eins og hendi sé veif-
að enda ekki á hverjum degi
sem þeir piltar taka sig saman
um tónleikahald. Það er því
ekki nóg að vera heitasta
hljómsveit landsins, ef áhorf-
endurnir hika kemur frægðin
fyrir lítið. Kannski er þó betri
tíö fram undan því sumarið f
fyrra var enn verra, raunar
það versta í poppsögunni. Við
skulum því hinkra og sjá hvað
setur.
▲ Vesalings
Bruce
Springsteen
á ekki sömu
vinsældum
aö fagna og
hér fyrrum...
HUGSAÐ
OG
HEYRT
H0LLVW00D
4 VIKAN 19.TBL. 1992