Vikan - 17.09.1992, Blaðsíða 27
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR:
HUGARORAR HALLGERÐAR
FREKJAN
Glætan. Ég meina aö
þetta pakk skuli voga
sér aö segja mig bæöi
stjórnsama og ráöríka er
meira en mín geðheilsa má
viö. Þaö á bara að dömpa
mig og bögga sviplega til
bana, það sjá allir. Eins og
skátaeðlið í mér sé „frekja”
eöa eitthvað. Ég læröi á
skátaárunum að gera tvo
rosalega hnúta enda get ég
næstum leyst hvað sem er
síöan á þessum árunum, þaö
sjá allir. Sénsinn.
Ég varö bara snögglega aö
redda góöri gellu fyrir Badda
bróöur, þennan ástsjúka of-
dekraða njálg. Glætan. Þaö
reyna allir að merja svona
sviplega til bana. Ég næ mér
ábyggilega aldrei. Samt er ég
orðin svo vön svona innilegu
vanþakklæti. Baddi bróðir var
í kasti út af peru sem sveik
hann og mér fannst gott mál
aö hann fengi eina sæmilega
gellu til aö hugga sig viö.
Þess vegna leigði ég þennan
heimaling sem heitir „Fífí”,
svona rétt til þess að gaurinn
kæmist upp úr rosalegu
þunglyndi. Ég hef alltaf skiliö
aöra svo svakalega vel.
Þessi unaður, sem ég fann
eftir auglýsingunni, er meiri
háttar dæmi. Þessi huggulegi
heimalingur er algjört spes.
Hinir strákarnir eru líka svo
spenntir fyrir svona stelpum
með svakaleg „big mamas”
brjóst og svona stórum á alla
kanta. Ég meina, ég vissi
náttúrlega ekki aö pabbi,
þessi kynóöi bolti, færi aö elta
„Fífí girl” út um allt. Sumt fólk
kann sig bara ekki. Glætan.
Þetta gengi hérna heima er
ekkert eölilega mikið fyrir kyn-
lífið.
Gámla geitin er brjáluö,
segir aö ég sé algjört viðrini
og skuli gjöra svo vel og
koma þessari pöddu í burtu.
Ég verö nú aö fá aö ráða ein-
hverju. Svona kjaftæöi bögg-
ar mig ekkert sérstaklega.
Sénsinn. Ég meina, mann-
eskjan er ekki búin aö vera
nema einn dag og allir orönir
brjálaöir.
Þaö er bara ekkert eölilegt
hvaö sumt fólk er eitthvað af-
brigðilegt og sjúklega dóna-
lega pælandi. Afi á Grandan-
um skilur ekki svona van-
þakklátt gengi og baö mig aö
láta sig hafa forgang ef Fífí
yröi send í burtu. Glætan. Ég
meina, ég finn svo innilega
hvaö þetta var gott mál. Aum-
ingja Fífí, hún er svo svaka-
lega viökvæm þó hún sé
svona meiri háttar umfang.
Rosalega er sumt fólk inni-
lega vanþakklát. Þetta gengi
er afbrigöilegt.
Þaö má segja aö ég hafi
verið rekin af heimilinu fyrir aö
ætla rétt aö bjarga Badda
bróöur frá því að gráta bara
úr sér kynhvötina. Ég vissi
ekki aö pabbi væri svona
spenntur fyrir „big girl Han-
sen‘‘. Mamma segir aö ég eigi
viö geðflækju aö stríöa. Glæt-
an, eins og sáifræöingur sæi
ekki strax hvað er búið aö
brjóta rosalega niður. Ég hef
minnkaö um millímetra síðan
ég fermdist.
Fífí fer ekki neitt. Það er
rosalegt að spila viö hana Ól-
sen. Viö skulum bara athuga
þaö að þaö er allt í logni
heima hjá Jóu vinkonu síöan
hún fór aö ráöum mínum og
réö bara eina ekta öskubusku
eftir auglýsingu til aö þjóna
sér. Öskubuskan hefur aldrei
fengiö svona sjúklega athygli.
Þaö eru allir aö biöja hana
um eitthvaö. Vonandi verö ég
uppgötvuð fljótlega. □
58
OS
c
Snyrlislofa ic snyrliröruverslun
Engihjalla 8 (hús Kaupgarðs)
200 Kópavogi
s: 40744
Alhliða snyrting - Litgreining
Katrín Karlsdóttir fótaaðgerða- og snyrtifræðingur
HARSNYRTISTOFA
OPIÐ:
Mánud. og miövikud. 9 - 20. Þriðjud. og fimmtud. 9-18.
Föstud. 9-19. Laugard. 10 - 14.
SÍMI44645
ENGIHJALLA 8 200 KÓPAVOGI
M
w
RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFAN
GREIFIM
HRINGBRAUT 119 S 22077
tlÁRSnYRTISTOFAN
s
GRAriDAVEGI 47 0 626162
Hársnyrting fyrir dömur og herra
Veitum
107« atslatt
við afhendingu
þessa korts!
Strípur í öllum litum — hárlitur —
permanent fyrir allar hargerdir.
Úrvals hársnyrtivörur.
Opið á laugardögum.
Hrafnhildur Konrádsdóttir hárgreiðslumeistari
Þuridur flildur Halldórsdóttir hársnyrtir
m/13314
mARA- <t HARqRE/ÐSLOíSWFA
HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK
19. TBL. 1992 VIKAN 27