Vikan


Vikan - 17.09.1992, Page 27

Vikan - 17.09.1992, Page 27
VIÐSKIPTAKORT LESENDA VIKUNNAR: HUGARORAR HALLGERÐAR FREKJAN Glætan. Ég meina aö þetta pakk skuli voga sér aö segja mig bæöi stjórnsama og ráöríka er meira en mín geðheilsa má viö. Þaö á bara að dömpa mig og bögga sviplega til bana, það sjá allir. Eins og skátaeðlið í mér sé „frekja” eöa eitthvað. Ég læröi á skátaárunum að gera tvo rosalega hnúta enda get ég næstum leyst hvað sem er síöan á þessum árunum, þaö sjá allir. Sénsinn. Ég varö bara snögglega aö redda góöri gellu fyrir Badda bróöur, þennan ástsjúka of- dekraða njálg. Glætan. Þaö reyna allir að merja svona sviplega til bana. Ég næ mér ábyggilega aldrei. Samt er ég orðin svo vön svona innilegu vanþakklæti. Baddi bróðir var í kasti út af peru sem sveik hann og mér fannst gott mál aö hann fengi eina sæmilega gellu til aö hugga sig viö. Þess vegna leigði ég þennan heimaling sem heitir „Fífí”, svona rétt til þess að gaurinn kæmist upp úr rosalegu þunglyndi. Ég hef alltaf skiliö aöra svo svakalega vel. Þessi unaður, sem ég fann eftir auglýsingunni, er meiri háttar dæmi. Þessi huggulegi heimalingur er algjört spes. Hinir strákarnir eru líka svo spenntir fyrir svona stelpum með svakaleg „big mamas” brjóst og svona stórum á alla kanta. Ég meina, ég vissi náttúrlega ekki aö pabbi, þessi kynóöi bolti, færi aö elta „Fífí girl” út um allt. Sumt fólk kann sig bara ekki. Glætan. Þetta gengi hérna heima er ekkert eölilega mikið fyrir kyn- lífið. Gámla geitin er brjáluö, segir aö ég sé algjört viðrini og skuli gjöra svo vel og koma þessari pöddu í burtu. Ég verö nú aö fá aö ráða ein- hverju. Svona kjaftæöi bögg- ar mig ekkert sérstaklega. Sénsinn. Ég meina, mann- eskjan er ekki búin aö vera nema einn dag og allir orönir brjálaöir. Þaö er bara ekkert eölilegt hvaö sumt fólk er eitthvað af- brigðilegt og sjúklega dóna- lega pælandi. Afi á Grandan- um skilur ekki svona van- þakklátt gengi og baö mig aö láta sig hafa forgang ef Fífí yröi send í burtu. Glætan. Ég meina, ég finn svo innilega hvaö þetta var gott mál. Aum- ingja Fífí, hún er svo svaka- lega viökvæm þó hún sé svona meiri háttar umfang. Rosalega er sumt fólk inni- lega vanþakklát. Þetta gengi er afbrigöilegt. Þaö má segja aö ég hafi verið rekin af heimilinu fyrir aö ætla rétt aö bjarga Badda bróöur frá því að gráta bara úr sér kynhvötina. Ég vissi ekki aö pabbi væri svona spenntur fyrir „big girl Han- sen‘‘. Mamma segir aö ég eigi viö geðflækju aö stríöa. Glæt- an, eins og sáifræöingur sæi ekki strax hvað er búið aö brjóta rosalega niður. Ég hef minnkaö um millímetra síðan ég fermdist. Fífí fer ekki neitt. Það er rosalegt að spila viö hana Ól- sen. Viö skulum bara athuga þaö að þaö er allt í logni heima hjá Jóu vinkonu síöan hún fór aö ráöum mínum og réö bara eina ekta öskubusku eftir auglýsingu til aö þjóna sér. Öskubuskan hefur aldrei fengiö svona sjúklega athygli. Þaö eru allir aö biöja hana um eitthvaö. Vonandi verö ég uppgötvuð fljótlega. □ 58 OS c Snyrlislofa ic snyrliröruverslun Engihjalla 8 (hús Kaupgarðs) 200 Kópavogi s: 40744 Alhliða snyrting - Litgreining Katrín Karlsdóttir fótaaðgerða- og snyrtifræðingur HARSNYRTISTOFA OPIÐ: Mánud. og miövikud. 9 - 20. Þriðjud. og fimmtud. 9-18. Föstud. 9-19. Laugard. 10 - 14. SÍMI44645 ENGIHJALLA 8 200 KÓPAVOGI M w RAKARA- OG HÁRGREIÐSLUSTOFAN GREIFIM HRINGBRAUT 119 S 22077 tlÁRSnYRTISTOFAN s GRAriDAVEGI 47 0 626162 Hársnyrting fyrir dömur og herra Veitum 107« atslatt við afhendingu þessa korts! Strípur í öllum litum — hárlitur — permanent fyrir allar hargerdir. Úrvals hársnyrtivörur. Opið á laugardögum. Hrafnhildur Konrádsdóttir hárgreiðslumeistari Þuridur flildur Halldórsdóttir hársnyrtir m/13314 mARA- <t HARqRE/ÐSLOíSWFA HVERFISGÖTU 62 -101 REYKJAVÍK 19. TBL. 1992 VIKAN 27

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.