Vikan - 17.09.1992, Qupperneq 45
Rétt er aö benda á aö ég kem ekki í staö sér-
fróöra eöa fagfólks innan heilbrigðisgeirans. Mitt
hlutverk er aö gefa heilbrigðum handleiðslu og
veita þeim mögulegar ábendingar eða leiðsögn
eins og sagt er. Þeir sem eiga viö vandamál aö
kljást snúa sér náttúrlega til sérfræöinga meö þau
og nýta sér aö sjálfsögöu hefðbundnar leiðir til
hjálpar í vanda.
NAUTNASJÚKUR HARÐSTJÓRI
Þaö er því miður þónokkuö til í því sem þú segir
sjálf um manninn, þegar þú nefnir hann harðstjóra
og segir hann ömurlegan. Eftir aö hafa lesiö bréfiö
þitt hvarflar aö manni að drengurinn sé því miöur
alvarlega nautnasjúkur á siölausan hátt. Það er og
hefur aldrei veriö rétt atferli þegar samskipti byggj-
ast upp á aö annar aðilinn kúgar hinn eins og ber-
sýnilega er aö gerast í ykkar samskiptum. Hann
kúgar þig, meira aö segja niöurlægir þig gróflega.
Auövitað má segja nokkuð sjálfgefiö aö þaö hljóti
aö teljast mikil huglæg brenglun og tilfinningaleg
fötlun aö halda aö hægt sé aö rækta elskuna meö
því aö fótumtroða þaö sem þeim sem maöur elskar
er kærast - þaö er í þessu tilviki þú sjálf sem ég er
aö tala um.
Hann niðurlægir og óvirðir manngildi þitt og
reynir aö skapa innra meö þér óheppilega útskúfun
þína á sjálfri þér. Þú ert dýrmæt vegna þess aö það
mikilvægasta og eigulegasta sem viö eigum hvert
og eitt okkar erum viö sjálf, satt best aö segja okkar
eigið líf. Þaö leiðarljós tiltrúar okkar á okkur sjálf á
ekki aö vanvirða eöa aflaga ef kostur er á ööru og
betra viðhorfi til okkar sjálfra sem auövitaö ætti
alltaf aö vera.
Siöblinda er andlegur sem líkamleaur óþrifnaöur.
reitt. Svona samskipti bjóöa upp á aö annar aöili
sambandsins veröi algjört fórnarlamb sem á allt
undir geöþótta þess sem valdiö sýnilega tekur sér
og viröir ekkert nema eigin vilja og langanir.
Þú býrð sem sagt viö andlegt og líkamlegt of-
beldi sambýlings þíns og þaö getur aldrei annað en
skaöaö þig og aflagað gróflega sjálfsmat þitt, auk
þess aö vera bæöi geðheilsu þinni og líkama stór-
hættulegt. Ef þú ekki leitar þér viðeigandi hjálpar
sem allra fyrst er hætt viö frekari vandræöum og
vanda því pilturinn sér sýnilega ekkert athugavert
viö fáránlega og neikvæöa hegöun sína.
KVENNAATHVARFIÐ OG „VIBBARNIR"
Ef ég væri sem þú myndi ég leita aöstoöar í Kvenna-
athvarfinu, biöja þar um hjálp og ábendingar um
hvernig í raun og veru er viturlegast aö taka á þess-
um sérstaka og ömurlega vanda sem viðgengst í til-
veru þinni I augnablikinu. Honum þykir sýnilega ekki
mikið athugavert viö framkomu sína, úr því aö hann
lætur eins og svona „Vibbagangur" sé eðlilegur og
þér beri aö sættast á hann. Á götumáli alþýðunnar
eru náungar af þessu tagi stundum kallaöir „Vibbar”
og er þaö sennilega af eölilega gefnu tilefni og ekk-
ert verra heiti á þessum fuglum en hvaö annað;
samanber „graftarversi” sennilega á betra máli.
Svona „Vibbar" eru sem betur fer ekki algengir en
afar óheppilegir í samskiptum vegna þess aö þeir
eru neikvæöir og ófyrirleitnir siðblindingjar. Þeir sjá
það sjálfir en telja sig ekki þurfa aö breyta hegöun
sinni. Þetta eru menn sem fótumtroða allt sem er
gott og göfugt I öörum og skilja ekki nema meö hjálp
hvaö má og hvaö ekki. Þeirra vilji er sá vilji sem því
miður veröur altækur í samskiptum viö aðra ef þeir
fá markmiðum sínum og neikvæöum tilhneigingum
Ef honum finnst eölilegt að gera lítiö úr þér er eitt-
hvaö mikiö aö honum sjálfum og þaö veröur aug-
Ijóslega aö athugast af sérfræöingi. Þaö þyrfti aö
gerast ekki seinna en strax, ekki síst meö tilliti til
þess aö honum viröist fyrirmunaö aö sjá þessa af-
lögun sína sjálfur. Allt atferli hans viö þig virðist
gefa vísbendingu um alvarlega siðblindu hans og
benda til þess aö pilturinn sjái ekki mun á réttu og
röngu atferli. Eins er alveg augljóst aö hann er
tengdur inn á nautnaferli sem er virkilega sjúklegt
og ömurlegt til þess aö vita aö hann skuli geta
komist upp með aö flytja slíkan óþrifnaö, andlegan
sem líkamlegan, yfir á manneskju sem er eins
ágæt og þú annars ert, elskuleg.
VALDNÍDSLA OG PYNTINGAR
Auðvitaö er alltaf óeölilegt aö úttúöa öðrum. Það er
skrýtin ást sem liggur í því aö kvelja og pína, auk
þess aö niöurlægja ástvin sinn. Þaö sem þú ert aö
kljást viö í sambúðinni viö manninn er þaö sem
kallað er andlegt og líkamlegt ofbeldi, notaö af mik-
illi ófyrirleitni af harðstjóra sem ástundar grófa vald-
níöslu til aö ná fram vilja sínum í öllum samskiptum
ykkar. Á bak viö slíkt atferli liggur vissulega sjúk-
leiki sem meðal annars er kallaður drottnunarþörf
og er því jafnframt aflagaö nautnaferli sem getur
aldrei annaö en skaöaö, fái þaö aö viðgangast óá-
framgengt.
TVÖ ALGENG
HLUTVERK HARDSTJÓRANS
Þeim er satt best aö segja ekkert heilagt, ekki einu
sinni sjá þeir ástæöu til aö hlífa börnunum sínum
viö ósómanum. Þeir vaöa bara áfram í skjóli pen-
inga, líkamsburöa og slægðar, auk þess sem þeir
ná iöulega aö blekkja ókunnuga og geta þess
vegna komiö sér vel fyrir veraldlega. Á sama tíma
ástunda þeir þennan subbuhátt heima. Jafnvel
koma þeir sér þokkalega vel fyrir I mannvirðinga-
stiganum, þó ömurlegt sé að segja frá svona
nokkru. Málið er nefnilega aö fólk er iðulega fært
um aö leika tvö ólíka hlutverk á nákvæmlega sama
tíma, fyrir ólík áhorfendur náttúrlega. Þessi hlutverk
hafa mismunandi afleiöingar án þess aö viðkom-
andi séu taldir geðklofar eða eitthvaö enn óþægi-
legra. Margur hefur augljóslega fariö flatt á sam-
neyti viö slíka og kannski ekkert undarlegt.
„Vibbar" eru þeir sem sjá eigin breyskleika en
neita aö horfast í augu viö afleiöingar af graftar-
kenndri hegöun sinni, þó þeim sé bent á aö hún sé
viðurstyggö og öllum til kvalar. Þeir eru venjulegast
ófyrirleitnir og siöblindir og sjá fyrirstöður í öllum
öörum en sjálfum sér. Þessir menn eru meö
brenglaða sjálfsmynd og telja sig í eymd sinni og
volæði ööru fólki mikilvægari og meira spennandi.
Þeir eru í reynd ekki neitt, oftast lítilmenni og hug-
leysingjar sem virðast ekki þrífast nema þeir geti
valdið öörum sem mestri þjáningu. Sorglegt en satt.
HÓRAN ÁSTUNDAR
NIDURLÆGJANDI SÖLUMENNSKU
Eins og þú veist er hóra kona sem selur líkama sinn
hverjum sem hann vill kaupa. Slík kona hefur oft lifi-
brauö sitt af sölu á blíðu sinni. Hún er í viöskiptum
sem einungis miöast viö aö selja kroppinn sinn fyrir
aura. Hún er því í mjög sérkennilegum viðskiptum
sem fyrir siöfágaöa eru vægast sagt ömurleg, sér í
lagi ef þau eru leið aö verömætasköpun sem á aö
styrkja veraldlega stööu hennar. Þaö er niðurlægj-
andi og siðferðislega alrangt aö stunda þannig viö-
skipti og sölumennsku sem tengist eigin líkama.
Varla er hægt aö ímynda sér aö nokkur kona kjósi
sér þannig líf og þaöan af síöur er ástæöa til aö ætla
aö slíkt líf sé nokkurri manneskju eölilegt.
Hvaöa persónuleg vandamál fá konu til aö grípa til
slíkra afarkosta fyrir sjálfa sig skal látið ósagt. Eölilegt
og rökrétt er þó aö gefa sér aö slíkir afarkostir sjálfum
sér til handa séu tilkomnir í lífi viökomandi konu
vegna mjög erfiðra og flókinna innri sem ytri aö-
stæöna sem eru þannig aö konan getur aö eigin mati
enga eðlilega og heilbrigöa lausn fundiö á eigin
vandamálum og afkomu aöra en selja eigin líkama.
AFSIÐUD VIDURSTYGGÐ
Hóra er því nafn sem ætti ekki aö hafa í flimtingum
og allra síst að klína því á konu sem er ráövönd og
laus viö bæöi lauslæti og siðblindu sem tengist kyn-
lífi. Þú ert ekki hóra og verður þaö ekki þó aö hann i
afsiðun sinni sé aö koma þannig brenglun inn hjá
þér. Ég er ekki hissa þó þér falli nafngiftin illa. Hún er
viöurstyggö sem enginn ætti aö láta út úr sér og þaö-
an af síður til þess aö skreyta meö manneskju sem
maöur trúir aö maður elski eins og sambýlingur þinn
heldur aö hann geri viö þig. Þannig nafngift ber þegar
í staö aö hafna og vísa til höfundar síns meö þaö
sama.
Ef viö viljum milda áhrif þessa orös á þig má
segja sem svo aö hann noti orö óvarlega yfirleitt
og velji af ásetningi einmitt þá nafngift á þig
hverju sinni sem honum er fyllilega Ijóst aö er full-
komlega óþolandi fyrir þig aö sitja undir. Þetta er
því gert í því skyni að gera þig orðlausa og miður
þin og til aö heröa og undirstrika veiklaðan mátt
hans og vald yfir þér. Þannig eflir hann, aö hann
telur, eigin styrk í samskiptunum sem eru ömur-
leg vegna hegöunar hans og þér óbærileg. Hvort
hægt er aö benda honum á aö nota vinsamlegast
annaö orðalag er ég ekkert viss um vegna þess
einfaldlega aö honum þykir sýnilega styrkja stööu
sína aö nota þau orö og það orðfæri í samskipt-
um ykkar sem veldur þér hvaö mestum geös-
hræringum og sársauka. Þannig telur hann senni-
lega aö drottnunargjarnt stjórnferli sitt sé sem
öruggast.
FRAMH. Á BLS. 48
Vinsamlegast handskrif-
iö bréf til Jónu Rúnu og
látið fylgja fullt nafn og
kennitölu, ásamt dul-
nefni. Svörin byggjast á
innsæi Jónu Rúnu og
rithandarlestri og því
miður er alls ekki hægt
að fá þau i einkabréfi.
Utanáskrift er:
Jóna Rúna Kvaran,
Kambsvegi 25,
104 Reykjavík
JÓNA RÚNA KVARAN MIÐILL SVARAR BRÉFI FRÁ LESANDA