Vikan - 17.09.1992, Qupperneq 48
FRAMH. AF BLS 45
PENINGAR NOTAÐIR SEM STJÓRNTÆKI
Þú segir aö hann láti þig ekki hafa aura, ekki einu
sinni fyrir nauöþurftum. Þaö er einmitt meginein-
kenni á kúgaranum að gera sig aö þessu leyti gjör-
samlega ómissandi fyrir konuna. Hann telur aö
þannig geti hann stjórnaö því hvaö þú aðhefst.
Best er náttúrlega aö viö stelpurnar höfum vit á því
undir öllum venjulegum kringumstæöum aö krækja
okkur í starfsþjálfun og starfsreynslu. Þaö gerir
okkur kleift - ef viö viljum bera sjálfar ábyrgö á
sjálfum okkur - aö losa okkur úr samböndum sem
eru ofraun fyrir okkur eins og þetta er þér. Þaö
gerist þá án þess aö allur efnahagslegur grundvöll-
ur hrynji.
Vera má aö þú hafir slíka möguleika en þeir not-
ast þér augljóslega ekki enn sem komiö er því
hann vill halda um budduna sjálfur um leiö og
hann kýs aö fylla hana einn. Þetta getur stafaö af
ótta viö aö ef þú gætir aflað fjár yröi honum aö
minnsta kosti ofaukið sem stjórnanda yfir þér og
þínum löngunum og þrám sem tengjast veraldleg-
um efnum. Þú þarft í þessu tilviki líka aö fá faglega
hjálp þeirra sem þekkja svona vanda í samskiptum
og eru færir um aö veita þér stuöning og vísbend-
ingar um mögulega úrlausn vandans.
EITURLYF OG
PERSÓNULEIKABREYTINGAR
Þú segir að þiltur sé fyrrverandi eiturlyfjaneytandi.
Þaö þýöir aö hann hefur í einhvern tima notaö efni
sem breyta starfsemi heilans og hafa sennilega í
för meö sér umtalsverðar persónuleikabreytingar.
Ef um slíkt er aö ræöa má búast við aö þó hann sé
ekki í neyslu einmitt núna hafi orðið á honum per-
sónuleikabreytingar sem geti valdið hegöun og
framkvæmdum sem ekkert er víst aö heföu komiö
fram í fasi hans og framkomu viö þig ef hann heföi
aldrei notaö vitundarbreytandi lyf sjálfum sér til
skaöa.
Þaö liggur í hlutarins eöli aö þaö er engin hemja
fyrir fólk sem fætt er inn í þennan heim heilbrigt aö
leyfa sér þá aflöguöu og örvitatengdu hegöun aö
fylla líkama sinn af eitri árum saman og halda svo
að þaö sé nóg aö hætta notkun og þar meö sé allt
komið í lag og viðkomandi eins og hann var áöur.
Svo er aö sjálfsögöu ekki. Það er þvi miöur sann-
anleg staöreynd aö sá sem hefur notað eiturlyf má
búast viö heilaskaöa sem er ólæknanlegur og svo
auövitaö persónuleikabreytingum sem afleiðingu
hans.
HEILASKAÐI EITURLYFJAÆTUNNAR
Viðkomandi eiturlyfjaæta hefur meö mismikilli notk-
un beinlínis skapaö skilyröi til aö skaða starfsemi til
dæmis stjórntækis hugans. Þaö hefur náttúrlega á-
hrif á hugsanagang viökomandi og tilfinningalíf, ekk-
ert síöur en dómgreind og félagslega hæfni. Þetta
tæki, sem heitir heili, veröur - þó erfitt geti verið
jafnvel fyrir læknisfræöina aö sanna slíkt - á ein-
hvern hátt fatlaö sem afleiðing af eituráti.
Heilaskaöi, þó í smáu sé, getur aldrei annaö en
valdiö vandræöum fyrir þann sem hann hefur eign-
ast og ekki síður fyrir þá sem veröa aö deila kjörum
og elsku meö viökomandi. Þennan ömurlega mögu-
leika væri kannski hollt fyrir alla sem ánetjast hafa
eiturlyfjum aö íhuga smávegis áöur en þeir halda
hiklaust áfram aö skaöa heilastarfsemi sína þannig
aö ekki veröi hún bætt aftur svo vel fari. Einungis
smávægilegur heilaskaöi getur haft mjög víötæk og
varanleg aflöguð hegöunar- og framkvæmdavand-
kvæöi í för meö sér ævilangt ef því er aö skipta.
Fyrrverandi eiturlyfjafíkill veröur að gera sér grein
fyrir einmitt þessum augljósu staöreyndum.
Vissulega má kannski eftir meöferö afeitrunar
byggja á mjög löngum tíma upp bærilegan og
nokkuð heilsteyptan persónuleika aftur og áöur
kunnugan viökomandi, ef bæöi vilji og áhugi ásamt
skilningi á einmitt þessum lúmska möguleika vand-
ræöa er Ijós þeim sem hættir notkun hinna ýmsu
stórhættulegu efna. Máliö er bara aö um er aö
ræöa þvílíka fyrirhöfn aö flestum vex hún þaö mik-
iö í augum aö þeir nenna ekki að axla hana. Því
fer sem fer í vandræðum þessara einstaklinga, oft
á tíöum löngu eftir aö allri afeitrun lýkur.
KYNLÍF OG OFBELDI
Hvaö varðar kynlífshegöun mannsins og þá sér t
lagi eftir aö hann er búinn aö valda þér hugarangri
og kvöl er þetta aö segja: Kynlíf og það sem því
viðkemur er meö öllu óréttlætanlegt nema báöir
óski þess. Eins og þú bendir á langar þig í flest
annaö eftir ofbeldi en kynmök viö gerandann og
þykir mér þaö ekkert skrýtiö. Aftur á móti er, ef
maðurinn væri ekki siðblindur, furöulegt aö hann
skuli telja slíkt velkomiö frá þinni hendi eftir alla
valdníösluna. Líta veröur svo á aö um sé aö ræöa
ásetning hans og grófa og óréttmæta framlengingu
hans á valdniðslu þeirri sem hann ástundar á þér.
Kynlíf á ekki aö einkennast af neins konar of-
beldi eöa öörum augljósum þvingunum. Þaö er al-
veg Ijóst aö kynlíf veröur því unaöslegra því dýpri
og kærleiksríkari sem þær tilfinningar eru sem
vissulega eiga aö liggja aö þaki löngunar okkar til
kynmaka. Þaö er alrangt siöferöislega aö ástunda
kynlíf sem er meiningarlaust og subbulegt. Betra
er hreinlega aö sleppa öllu kynlífi ef viö treystum
okkur ekki til aö sýna hvert ööru virðingu og tillits-
semi í þeim samskiptum. Kynlíf getur nefnilega
veriö yndislegt og satt best aö segja spennandi ef
rétt og elskulega er að því staðið. Kynlíf og vald-
níösla fara aldrei saman, jafnvel þó einhverjir
„Vibbar” láti sig dreyma um slíkt. Þeir sem ekki
treysta sér í heilbrigt og heiöarlegt kynlíf ættu ein-
faldlega aö láta allt kynlíf eiga sig og snúa sér aö
öörum efnum. Þeir geta augljóslega enga kynferð-
islega ánægju veitt öörum og njóta hennar tæp-
lega sjálfir ef hugarfarið er rangt og öörum ógeö-
fellt.
FÓRNARLÖMB ÞVINGUD
TIL KYNMAKA
Það gefur augaleiö aö kynlíf í framhaldi af ofbeldi
gegn maka er meö öllu rangt, þolanda slíks algjör
ofraun og sennilega hreinn viöbjóöur. Viö eigum
ekki aö hafa mök hvert viö annað til aö undir-
strika hegðun sem er siðlaus og frekjuleg. Harö-
stjórar og drottnunargjarnir menn eiga einmitt til
aö nauöga hreinlega fórnarlömbum ofbeldis síns
eftir aö þeir eru kannski búnir í orðum og höggum
aö vanviröa viökomandi. Þeir enda iöulega vald-
níðsluna á mökum viö viökomandi, þvert á þaö
sem er sæmandi, án tillits til aö þolandinn, í
þessu tilviki þú, hefur alls engan áhuga né nokkra
einustu þörf fyrir kynlíf eftir svona framkomu.
Þetta undirstrikar bara enn þá meira að um er
aö ræöa valdníðslu sem alls ekki búa réttar til-
finningar á bak viö, reyndar bara þær tilfinningar
sem tengjast sjúklegri drottnunarþörf og full-
komnu vanmati á vilja, þörfum og þrám hins aðil-
ans, í þessu tilviki þinum. Hann er sterkari líkam-
lega en þú og veit þaö, auk þess sem honum er
jafnframt kunnugt um aö ótti þinn um eigið líf er til
staðar og þess vegna er honum Ijóst að þú getur
ekki svo vel fari varist haröstjórn hans.
VEIKLAÐUR
TILFINNINGALEGUR BAKGRUNNUR
Vegna þess hvaö þú átt ófullkominn tilfinninga-
legan bakgrunn ertu einmitt í hættu í tilfinninga-
samböndum og ekki síst af þessari tegundinni.
Þú ert alin upp á heimili þar sem faðir þinn var of-
beldishneigður og beygöi þig og aöra meö harö-
stjórn hvers konar undir sinn vilja. Þetta þýöir aö
bakgrunnur þinn í nánum samskiptum og per-
sónulegum er vægast sagt mjög veiklaöur.
Hafir þú ekkert gert ennþá til aö leita þér hjálp-
ar frá þessum aflöguöu fortíöarfjötrum er ekki
seinna vænna aö gera þaö. Ég tel aö þaö sé jafn-
framt viðkomu í Kvennaathvarfinu mikilvægt fyrir
þig aö fá staögóöa geðlæknishjálp eöa fá sál-
fræöing eöa hugsanlega félagsráðgjafa til aö
opna augu þín fyrir því hver þú ert í öllu þessu.
Jafnframt er náttúrlega mikilvægt fyrir þig aö
byggja upp meö hjálp sérfróöra eins góöa þekk-
ingu og hægt er á því hvaö eru heilbrigð sam-
skipti og hvaö aflöguð. Mér sýnist ekki veita af.
Þú mátt alls ekki rugla þessu siðblinda fram-
feröi mannsins viö þig saman viö manngildi þitt.
Hans hugmynd um þig er tilkomin úr huga sem
stýrir framkvæmdum sínum neikvætt á kostnaö
þess sem síst skyldi. Þú ert augljóslega, eins og
þú segir sjálf í bréfi þínu, fórnarlamb ógeöfellds
haröstjóra sem skilur sýnilega ekki hvaö er rangt
í eigin framkomu og fasi. Tilfinningasambönd
eiga aö vera metnaðarfull á jákvæöan og kær-
leiksríkan máta en ekki óttablandin áþján og ann-
ar álíka hryllingur þeim sem í þeim eru.
Vonandi getur þú unnið eitthvaö úr þessum
vangaveltum mínum þér tengdum og þaö væri
satt best aö segja afar ákjósanlegt aö þú byggir
þig undir þaö sem fyrst aö leita á náðir Kvennaat-
hvarfsins og þiggja þá ráögjöf sem það ágæta
stuðningsheimili fyrir vegalausar konur veitir. Eöa
eins og óhamingjusama konan sagöi eitt sinn af
gefnu tilefni í góðra vina hópi:
„Elskurnar mi'nar, ég er nokkurn veginn
eins og ný síöan ég ákvað aö hætta aö vera
þessi endemis undirlægja og velja bara hér í
frá aö láta rigna duglega upp í nefið á mér. Sá
einhver hve rosalega ég rak nefiö upp f loft?
Vá. Ég finn aö þaö rignir nánast stöðugt upp í
nasirnar á mér auknu sjálfstrausti og heilu
flóöi af sjálfsást enda má segja aö ég hrein-
lega geisli þessa dagana af auknum lífsvilja
og frábærri tiltrú á eigiö ágæti, reyndar án
þess aö nokkur fái viö þaö ráðiö. Meiri háttar,
ekki satt?”
Guö gefi aö þér gangi vel á nýjum og jákvæö-
um leiðum aukins baráttuvilja til aö frelsa sjálfa
þig frá þessum ömurleika sem þú býrö viö núna.
Meö vinsemd,
Jóna Rúna.
LAUSN SÍÐUSTU GÁTU
+ +.* + + + Ó + ÆVE + + U + + + V
+ + + + + + FAÐIRINN + + KA
+ + + + + + AFANGI + DEKUR
+ + + + + + + ÞRAI + BAROKK
+ + + + + + + r + TROIN + FLA
+ + + + + + GEIT + LST1F + R
+ PÖKK + EYLAND+E + OG +
BERANGRI + + FISKFRAT
KLIF + LINSA + N + NÆTUR
+ ALL + ALGENG + VIÐ + KÖ
+ GLITPLAT1NA + NITUR
+ J + + ÓP+RISAR + GNÍR +
KÖLSKA + BR+PAT + GR + B
+ FJ ÁRSKÓ+SAFI + AUGA
+ + Á + SKAKKA + AMAR+IL
FERN + ORMAR + TOGO + KA
+ IHÓST+EFAR+RARIK +
HNETA + NN + BEN + + L + + A
+ ÞITT + ANDANN + LOFAÐ
EYÐI + KUTINN+VlFILL
+ KANKAÐI + DUL1TILLA
+ K + NASIR + + R1SA + MID
+ NEINAR+KK + KUNNARA
+ IM+ER+SVÆFANDI + + N
+ N0LL + SK1NANDIFOLD
persónudýrkun! + T Ó L I
48 VIKAN 19. TBL. 1992