Vikan - 17.09.1992, Side 67
TEXTI: GUNNAR H. ÁRSÆLSSOI
Liðsmenn þungarokks-
sveitarinnar Black Sab-
bath hafa stundum verið
titlaðir guðfeður þungarokks-
tónlistar. Það voru fjórir skóla-
félagar úr verkamannastétt í
Birmingham á Englandi, Tony
lommy gítarleikari, trommar-
inn Bill Ward, Geezer Butler
bassaleikari og John Osbour-
ne, síðar Ozzy Osbourne,
sem stofnuðu sveitina árið
1967. Upphaflega hét hún
Polka Tulk, síðan Earth og
loks Black Sabbath eftir einu
laginu þeirra. Næstu tólf árin
hélst þessi liðsskipan.
SABBATH DALAR
Mikið álag var á þeim félögum
á þessum tíma og tónleika-
ferðirnar stóðu svo mánuðum
skipti. Þetta var farið að sjást
á sveitinni og upp kom tónlist-
arlegur ágreiningur innan
hennar. Tony lommy gítarleik-
ari vildi fá meira af blásturs-
hljóðfærum og hljómborðsleik.
Á plötunni Sabotage frá 1975
sýndu þeir félagar þvf nýjar
hliðar á sér og á henni eru lög
sem talin eru klassísk á ferli
sveitarinnar. Næstu fimm ár
og hóf sólóferil en ári síðar
gekk söngvari að nafni
Ronnie James Dio til liðs við
sveitina. Með honum voru
hljóðritaðar plöturnar Heaven
and Hell, Mob Rules og tvö-
föld hljómleikaplata, Live Evil.
Hann hætti árið 1983 til þess
að stofan eigin sveit, Dio.
stað hans kom enginn annar
en lan Gillan úr Deep Purple
og á plasti kom út Born Again
árið 1983. Það var fyrsta og
síðasta platan sem Gillan
gerði með Black Sabbath. Við
tók tími mikilla mannabreyt-
inga og má segja að Tony
lommy gítarleikari hafi verið
sá sem hélt tryggð við fyrir-
bærið og hélt í því lífi. Þó
1970 og bar nafn sveitarinnar.
Fyrst heyrðist þó almennilega
í sveitinni með lagi af annarri
plötunni, Paranoid (Of-
sóknaræði), sem kom reyndar
út sama ár. Það lag er eitt vin-
sælasta lag sveitarinnar og er
enn leikið á tónleikum. Vin-
sældirnar jukust jafnt og þétt
og fram til 1973 sendi sveitin
var svo hljómsveitin í mikilli
lægð og plöturnar frá þeim
tíma, We Sold Our Soul for
Rock and Roll, Tecnical
Ecstasy og Never Say Die,
eru taldar þær slökustu sem
Sabbath hefur sent frá sér.
OZZY HÆ.TTIR
Árið 1979 hætti Ozzy alfarið
Guóteður þungarokksins,
Black Sabbath; Vinnie
Appice, Geezer Butler,
Ronnie James Dio og Tony
lommy. Þeir ætla að kitla
hlustir manna á Skagarokki
‘92 annan laugardag, þann
26. september
komu út fjórar plötur frá 1983,
Seventh Star (1986), Eternal
Idol (1987), Headless Cross
(1989) ogTyr (1990).
RONNIE
INNANBORÐS AÐ NÝJU
Síðla árs í fyrra sneri Ronnie
James Dio aftur til liðs við
Black Sabbath. Það sama
gerðu bassaleikarinn Geezer
Butler og trommarinn Vinnie
Appice sem tók við af Bill Ward
á sínum tíma en hætti árið
1984. Fjórmenningamir voru
ekki lengi að koma sér í hljóð-
ver og tóku þar upp plötuna
Dehumanizer sem er tiltölulega
nýkomin út. Á henni sanna þeir
félagar að allt er fertugum fært.
SAKAÐiR UM
DJÖFLATRÚ
Nánast frá upphafi hefur Black
Sabbath verið bendluð við
djöflatrú og má til gamans geta
þess að á sínum tíma sá Ozzy
Osbourne kvikmyndina The
Exorcist (Særingamaðurinn)
alls átta sinnum! Þeir hafa þó
sagt að þetta kukl þeirra sé að-
eins forvitni og til þess gert að
vekja á sér athygli. Þeir neita
alfarið að vera á bandi djöfsa
enda bera allir meðlimir sveit-
arinnar kross um hálsinn.
Sértrúarhópar í Bandaríkjun-
um hafa veist að sveitinni og
saka þá félaga um að storka
forlögunum vegna þess að á
tónleikum hafa þeir stóran
kross á sviðinu en fyrir ofan
hann púka með þrífork. Ronnie
James Dio vísar gagnrýninni á
bug og segir þetta aðeins vera
til að minna fólk á stöðuga bar-
áttu góðs og ills í heiminum.
Einnig er sértrúarhópum illa við
Dio vegna þess að hann hefur
það fyrir sið að heilsa áhorf-
endum með því að rétta vfsi-
fingur og litla putta upp í loftið,
mót áhorfendum. Þetta segja
trúaðir að sé tákn djöfulsins.
Black Sabbath hefur haft á-
hrif á margar vinsælar þunga-
rokkssveitir sem komið hafa
fram á síðari árum og má þar
nefna Def Leppard og Metall-
ica sem dæmi. Trommuleikari
þeirrar síðarnefndu, Lars Ul-
rich, hefur meðal annars sagt
að án Black Sabbath væri
þungarokk nútímans ekki það
sem það er. Stór orð þetta.
Upphitunarsveitin fyrir
Black Sabbath í (þróttahúsinu
á Akranesi laugardaginn 26.
september næstkomandi er
ARTCH með Eirík Hauksson
í broddi fylkingar. Þá er bara
eitt fyrir þungarokksaðdáend-
ur að gera - að sjá til þess að
leðurgallinn verði á sfnum
stað og aðgöngumiðinn í vas-
anum. □