Vikan - 26.11.1992, Page 50
Ostakaka
AÐALRÉTTUR
FYLLT KALKÚNSBRINGA
MEÐ FURUSVEPPUM OG
FURUHNETUM í MARSALASÓSU
Kalkúnsbrinaa í bunnum sneiðum. u.b.b.
140 g sneið á mann
Duxelle (hlutföllV.
1 hluti saxaður laukur
2 hl. saxaðir ferskir sveppir
1 hl. saxaðir furusveppir
1/2 hl. furuhnetur. léttristaðar.
eaaiahvíta
möndluspænir
Laukurinn er léttbrúnaöur i olíu. Aö þvi búnu
er sveppum og furusveppunum bætt út í á-
samt furuhnetunum. Bragöbætt meö salti og
pipar. (Ef furusveppirnir eru þurrkaöir er gott
að láta þá í volgt vatn og sjóöa aðeins upp á
þeim áöur en hafist er handa.)
Kalkúnsbringusneiöarnar eru sléttaöar út
og stráð á þær salti og pipar. Duxelinu er
smurt hæfilega þykkt á og sneiöarnar því
næst rúllaöar upp. Kalkúnsrúllunni er nú velt
upp úr hveiti til aö þurrka hana aöeins, síöan
upp úr eggjahvítu og loks upp úr möndluspón-
um. Smuröur álpappír er settur utan um rúll-
una áöur en hún er sett inn í ofninn.
Bakað í 180 gráöa heitum ofni í 8 mínútur.
Losað úr álpappírnum, skorið í hæfilega bita
og raöað ofan á kartöfluköku (má sleppa) eöa
rúllan borin fram heil.
SÓSA:
1 1/2-2 laukar
6 dl riómi
2 dl marsali (eða sérrít
70-100 a sveppir
smiör \
salt oa pipar
Fínt skorinn laukurinn er léttbrúnaður í olíu og
soðinn niður í marsalavíni sem siðan er bætt
meö rjómanum (má þykkja aöeins með smjör-
bollu). Ristaðir sveppirnir eru settir út í sósuna
rétt áöur en hún er borin fram og gerðir aö
mauki meö „töfrasprota'' eða blandara. Köldu
smjöri bætt út í og salti og pipar eftir smekk.
Þegar sósan er tilbúin er gott aö setja smá-
vegis af víni út í hana.
Matreiöslumenn Holiday Inn. F.v. Ásgeir
Helgi Erlingsson yfirmatreióslumaóur, Skúli
Skúlason, Bjarki Ingþór Hilmarsson, Guð-
mundur Halldórsson og Úlfar Finnbjörnsson.
Salvöru Brandsdóttur vantar á myndina.
EFTIRRÉTTUR
OSTAKAKA
200 g riómaostur
40 g flórsvkur
1 eaajarauða
2,5 dl bevttur rjómi
2 1/2 blöð matarlím (2 a blöðt
vanilla ettir smekk
Osturinn og flórsykurinn eru bræddir saman.
Matarlíminu bætt út í og eggjarauðunni aö því
búnu. Þegar blandan er hæfilega köld er stíf-
þeyttum rjómanum bætt viö og loks vanillunni.
SÚKKULAÐISÓSA:
Sjá uppskrift að súkkulaðimús í eftirréttin-
um hér að ofan.
Til þess aö fá mynstrið sem getur aö líta á
meðfylgjandi mynd er forminu hallaö hæfilega
og ostamúsin látin stífna i. Þegar hún er oröin
stíf er formið rétt við og súkkulaðimúsin sett
ofan á.
Borið fram meö hvítri, Ijósri eöa dökkri
súkkulaðisósu. Einnig má nota hvers konar
berjasósu eftir smekk.
50 VIKAN 24. TBL. 1992