Vikan - 06.05.1993, Blaðsíða 6
TEXTI: ÞORDIS BACHMANN / UOSM.: BINNI
Guö gefi mér æöruleysi
til aö sætta mig viö þaö sem ég fæ ekki breytt,
kjark til aö breyta því sem ég get breytt
og vit til aö greina þar á milli.
Æðruleysisbænin er
bæn AA-samtak-
anna um allan heim.
Eins og á við um aðra speki
samtakanna er í henni að
finna boðskap sem allir hefðu
gott af að hugleiða - hvort
sem um alkóhólisma er að
ræða í þeirra nánasta um-
hverfi eður ei. Samtök áhuga-
manna um áfengisvandamálið
hafa nú starfað í fimmtán ár
og VIKAN talaði við nokkra
þeirra sem starfað hafa innan
vébanda SÁÁ og sótt þangað
styrk.
Þegar hér er komið sögu
hafa rúmlega níu þúsund ein-
staklingar verið lagðir inn á
meðferðarheimilið Vog um
tuttugu og fimm þúsund sinn-
um. Fyrir hvern einn sem á
við áfengisvandamál að stríða
eru margir aðstandendur,
misjafnlega tengdir og háðir,
en til aðstandenda teljast
meðal annarra maki, börn og
foreldrar.
Ég hélt aÖ eitthvaS
væri að mér vegna
þess aS þau elskuðu
mig ekki.
UppkomiS barn
alkóhólista.
Sella Pálsdóttir er dagskrár-
stjóri fjölskyldudeildar SÁÁ en
fjölskyldudeildin hefur árum
saman haldið úti námskeiðum
og sjálfshjálparhópum til að
leitast við að draga úr þeirri
vanlíðan sem flestir ef ekki
allir aðstandendur alkóhólista
finna til. Sella segir að aukin
starfsemi deildarinnar sé fyrir-
huguð og muni ágóði af sölu
SÁÁ-álfsins meðal annars
renna til uppbyggingar fjöl-
skyldudeildar. Deildin hefur
nú fjóra starfandi ráðgjafa og
ef fjárlög leyfa á að koma á
fót ódýrri þjónustu fyrir að-
standendur þeirra sem eru í
meðferð.
Sella bjó langdvölum í
Bandaríkjunum og tók þar
B.S. gráðu í sálfræði. Eru ein-
hver séríslensk einkenni á
okkar tökum á áfengismálum?
„Mér finnst lítill skilningur á
sjúkdómnum alkóhólisma hjá
þjóðinni. Fólk skammast sín til
dæmis ennþá fyrir að viður-
kenna að það sjálft sé haldið
þessum sjúkdómi eða að-
standandi þess. Svo er alla-
jafna talað um alka eins og
þeir séu fólk með fullum söns-
um. Fólki hættir til að taka orð
alkóhólistans bókstaflega og
sér ekki þá afneitun og stjórn-
un sem eru einkenni sjúk-
dómsins," segir hún.
Er þörf a' meðferð fyrir að-
standendur?
„Fólk getur orðið mjög sjúkt
af meðvirkni og hefur oftast
tekið alla ábyrgð á sig,“ svarar
Sella. „Meðvirki aðilinn finnur
til hvors tveggja í senn; sterkr-
ar ábyrgðar og sektarkennd-
ar. Hún eða hann á því erfitt
með að taka tíma til að sinna
sínum eigin þörfum. Ráðgjaf-
ar reyna að fá þetta fólk til að
tala um tilfinningar sínar og
það getur verið erfitt því með-
virki aðilinn er fullur af skömm
og hefur áralanga þjálfun í að
hylma yfir. Ráðgjafar benda
fólki á að sjá um sínar þarfir
og tilfinningar en taka ekki
ábyrgð á alkanum og gera
hann ekki að miðdepli lífs
síns. Málið er að líta á alkann;
spyrja sjálfan sig: get ég sætt
mig við þennan aðila og hans
drykkju - og reyna síðan að
breyta sjálfum sér eða sínum
viðhorfum. Einkenni meðvirkni
hverfa ekki þótt alkóhólistinn
búi ekki lengur á heimilinu og
við fáum oft til meðferðar upp-
komin börn alkóhólista sem
enn stríða við viðhorf og van-
liðan, eru til dæmis með lágt
sjálfsmat sem stafar af því að
hafa alist upp á alkóhólísku
heimili," segir Sella.
Sektarkenndin er
fljót að heyra
ásökunina.
Þegar alkóhólistinn kemur
heim úr meðferð hefur fjöl-
skylda hans ekki orðið stuðn-
ings og sálarhreinsunar að-
njótandi - og situr í kvíðakasti
yfir því hvað nú sé í vændum.
Fjölskyldan er löngu hætt að
treysta alkóhólistanum, fram
til þessa hafa öll fögru loforðin
verið svikin. í neyslunni hefur
skapast samskiptamynstur
sem er á skjön við raunveru-
leikann og þegar einhver tek-
ur sig á; aðstandandi eða
drykkjumaður, þarf öll fjöl-
skyldan að fara í meðferð til
þess að um raunverulegan
bata geti orðið að ræða.
Hvert á þá aðstandandinn
að leita til að fá aðstoð og
ræða um vanlíðanina og kvíð-
ann?
Fyrir utan námskeið fjöl-
skyldudeildar SÁÁ eru Al-
Anonfundir haldnir um land
allt en þeir eru sérstaklega
ætlaðir aðstandendum. VIK-
AN talaði við nokkra þeirra.
Það gófulegasta sem
ég hef nokkurn tím-
ann sagt var:
„Hjálp!"
Kona á Al-Anonfundi.
Hún heitir Hólmfríður og er 35
ára aðstandandi óvirks alkó-
hólista. Við það að hitta hana
og heyra hana segja frá er yf-
irgnæfandi sú tilfinning að
þarna fari þroskuð kona með
gott skopskyn og heilbrigða
sýn á lífið og tilverunni. Ef öll-
um aðstandendum alkóhólista
liði svona væri það beinlínis
eftirsóknarvert hlutskipti.
Saga Hólmfríðar er í stuttu
máli sú að eftir langa dvöl er-
Sella: Fólk getur oróió mjög sjúkt af meóvirkni og hefur oft-
ast tekió alla ábyrgó á sig.
6 VIKAN 9.TBL.1993