Vikan - 06.05.1993, Qupperneq 39
ard, gítarleikarinn í Pearl Jam,
sem er ein fremsta sveitin í
þessum flokki, segir þetta um
„grönsið": „Fólk kallar þetta
„gröns“ en ég veit ekki einu
sinni hvað það þýðir. Ég fæ
ekkert samhengi við orðið.“
Og Daniel House úr hljóm-
sveitinni Skin Yard tekur í
svipaðan streng: ,,„Gröns“ er
einhvers konar ónefni vegna
þess að með því er gert ráð
fyrir að allar hljómsveitirnar
sem spila það hljómi eins. Ég
hef til dæmis aldrei haldið að
Nirvana hljómaði eins og
TAD, sem hljómaði eins og
Mudhoney." Þegar öllu er á
botninn hvoift kemst Ben
Shepherd úr Soundgarden
kannski næst hinu sanna í
málinu: „Black Sabbath. Við
stálum eins miklu og við gát-
um frá Black Sabbath."
BURT MEÐ
SKILGREININGAR
Látum allar skilgreiningar lönd
og leið og snúum okkur að
sögunni. Rokkararnir, sem
eru kenndir við þessa stefnu,
sækja ekki aðeins áhrif til
þungarokks og óháða geirans
heldur einnig til pönksins og
þeirrar þjóðfélagssýnar sem
þvf fylgdi - að segja hlutina
eins og þeir voru, gjarnan á
svolítið groddalegan hátt.
Þetta blandast einnig saman
við þjóðfélagsástandið í
Bandaríkjunum eins og það er
nú, „gröns“ er líka viss upp-
reisn gegn staðnaðri menn-
ingu og þjóðfélagsháttum eða
eins og Matt Cameron í
Soundgarden segir er hann
talar um sér yngri tónlistar-
menn: „Þeir eru búnir að fá
sig fullsadda af ástandinu í
þjóðfélaginu og það blandast
saman við þá þrá að fylgja
ekki neinni ákveðinni formúlu
eða leita eftir stórum hljóm-
plötusamningi. Aðalmálið er
að gera tónlistina og mót-
mæla ástandinu eins og það
er núna.“
ÓDÝRT OG GOTT
ROKK, BÓNUS-ROKK
(NÝ SKILGREINING?)
Almennt er talið að hljóm-
sveitin The Melvins, sem var
stofnuð árið 1980, sé fyrsta
hljómsveit þessarar tegundar
en það var ekki fyrr en árið
1988 að orðið sjálft, „grunge“,
kom fram. Það sama ár kom
út lagið Touch Me, l’M Sick
með hljómsveitinni Mudhoney
og við það opnuðust einhvers
konar flóðgáttir og hlutirnir
fóru að gerast fyrir alvöru.
Mudhoney var á samningi
hjá litlu útgáfufyrirtæki, Sub-
Pop, sem meðal annars gaf út
Nevermind með Nirvana (
hittifyrra. Heimspeki SupPop
felst eiginlega í boðskap lags-
ins Loser (Aulinn, þýðing höf.)
með hljómsveitinni TAD og er
einhvern veginn svona: „Þú
hefur engu að tapa vegna
þess að þú ert á fátæktar-
mörkunum. Skattarnir þínir
eru háir, þú kemst ekkert
áfram og býrð í einhverri
rottuholu. Þú vinnur yfirtíð í
hverri viku. Allt sem þú átt eru
greiðslukortin og skuldir upp
fyrir haus.“ Líklegt er nú að
SubPop hafi grætt einhverja
aura á Nevermind þannig að
þessi speki fellur kannski ekki
alveg að fyrirtækinu eins og
er.
Staðreyndin er samt sú að
margar af sveitunum, sem eru
kenndar við „grönsið”, hafa
gert plötur sínar fyrir ótrúlega
litla peninga. Nirvana tók til
dæmis upp fyrstu plötu sína,
Bleach, fyrir 600 dali eða tæp-
ar 40.000 íslenskar krónur og
Mudhoney tók upp plötuna
Every Good Boy Deserves
Fudge (1991) fyrir 3000 doll-
ara þannig að greinilega þarf
ekki fúlgur fjár til að gera
góða rokktónlist. Þetta er líka
ein af ástæðunum fyrir því að
svo vel tekst að koma hinum
sérkennilega „Seattle-hljómi”
til skila, ekki er legið enda-
laust yfir útsetningum, strengj-
^ Hljóm-
sveitin
Mudhoney
braut isinn
fyrir „gröns-
iö“ meó lag-
inu Touch
Me l’m Sick
árió 1988.
Þeir eru
(f.v.J: Mark
Arm, Matt
Lukin, Dan
Peters og
Steve Turn-
er.
Þ- Alice
in Chains
nýtur mikill
vinsælda
núna enda
var önnur
breióskífa
sveitarinn-
ar, Dirt, ein
besta plata
síðasta árs
aó mati
gagn-
rýnenda.
Hljómsveit-
ina skipa,
frá vinstri:
Mike Starr
(bassi), Lay-
ne Staley
(söngur/gít-
ar), Jerry
Cantrell
(gítar) og
Sean Kinn-
ey (tromm-
ur).
meira gerð til þess að vekja
athygli á því að á afmörkuðu
svæði í Bandaríkjunum, borg-
inni Seattle og næsta ná-
grenni, eru og hafa verið mikl-
ar hræringar í rokktónlist og
það er alltaf spennandi þegar
svæði afmarka sig á sérstak-
an hátt í tónlistarsköpun.
Allar ábendingar um þýð-
ingu á orðinu „grunge” eru vel
þegnar en ef þú, lesandi góð-
ur, rekst á plötu með hljóm-
sveitum á borð við The Mel-
vins, Ten Minute Warning,
Malfunkshun, U-Men, Feast,
Bundle of Hiss, Soundgar-
den, Skin Yard, Green River,
Screaming Trees, TAD, Nir-
vana, Mudhoney, Blood
Circus, Coffin Break, Tree-
people, Mother Love Bone,
Alice in Chains, Love Battery,
Gruntruck, Hammerbox,
Pearl Jam, Dinosaur Jr.,
Mono Men, Monkeywrench,
Truly eða 7 Year Bitch þá
veistu að hér er „gröns“ á
ferðinni. Og það þýðir eitt-
hvað spennandi. □
um og þess háttar (þó að það
geti verið flott) heldur skiptir
meira máli að koma tónlistinni
og boðskap hennar til þeirra
sem neyta hennar, hlustenda.
LOKAORÐ
Hér hefur verið stiklað á stóru
um þessa rokktegund,
„grunge”. Úttekt þessi er alls
ekki nákvæm og þvf síður
tæmandi heldur kannski
▼ Ein
fyrsta
„gröns“-
hljómsveit
in, senni-
lega án
þess aó
vita nokk-
uö af því,
The Mel-
vins. Frá
vlnstrl:
Dale Cov-
er, Joe
Preston og
Buzz Os-
bourne.
8.TBL. 1993 VIKAN 39