Vikan - 06.05.1993, Page 42
▲ Fjölmargir tóku þátt í
sýningunni.
Enda hárið og höfuðprýði
þess það sem málið snýst
VIKAN A SYNINGU SEBASTIAN
TÍSKAN BREYTIST OG
MENNIRNIR MED
▲ Upp-
færslan
minnti mjög
á söngleik.
þRobert
vakti
athygli fyrir
skemmti-
lega fram-
komu.
42VIKAN 9.
Fyrirtæki sem framleiða
vörur fyrir hár og háriðn-
að standa stundum fyrir
námskeiðum þar sem þau
kynna vörur sínar auk
strauma og stefna í faginu.
Sebastian er þar engin und-
antekning og nýlega héldu
þau Robert Morrison og Myra
Seuren sýningu í Óperunni.
Kenndi þar ýmissa grasa.
Sýningarfólk gekk fjálglega
um gólf, mislitt og misgreitt en
allt vel og vendilega.
Sýningin bar á stundum
keim af söngleik þó sýningar-
fólkið beitti ekki börkum sín-
um. Nýjar línur voru sýndar
og eina brúsanum af „voljúm-
æser” beitt sem til var á land-
inu en það efni auðveldar
mjög hárgreiðslu - að ná lyft-
ingu í hárið við blástur, nýtt
frá Sebastian. Þarna mátti sjá
það nýjasta í hárgreiðslu, dá-
lítið tjásulegt stundum en þó
með mjög ákveðnu lagi og
Hér getur aö líta greiösluna
sem í fyrstu virtist ætla aö
veröa ruglukollur hinn mesti.
stíl. Þannig getur það sem i
fyrstu virðist ætla að verða
ógurlegur ruglukollur orðið
þetta líka fína höfuðskart.
Síðan komu þarna fram
sýningarstúlkur með hár og
viðbætur í öllum regnbogans
litum og með öllu mögulegu
lagi. Þetta er sagt nauðsyn-
legt fyrir allt hárgreiðslufólk að
gera til að vekja eftirtekt. Þótt
engum tækist að selja við-
skiptavini slíka hárgreiðslu
yrði hún tvímælalaust til þess
að draga að sér athygli. Þá
væri björninn unninn því þeir
sem gætu gert svona hluti
kynnu greinilega ýmislegt fyrir
sér og þetta er ein leið til að
koma því til skila.
Á milli sýningaratriða
greiddu þau Robert og Myra
fyrirsætum á sviðinu fyrir
framan fjölmennan hóp gesta
sem sótti sýninguna. Með
þeim hætti er fléttað saman
frjálslegri og lífmikilli sýningu
annars vegar og sýnikennslu
námskeiðs hins vegar. Einnig
var dálítið tæpt á förðun á
sýningunni þar sem kynnt var
aflitun augnabrúna til dæmis,
nokkuð sem ekki hefur verið
eftirsótt til þessa. Heldur hefur
kvenþjóðin sóst eftir að láta
lita þessi hár til að skerpa hjá
sér andlitslínurnar. Hvað sem
þessu öllu líður þá heldur tísk-
an áfram að þróast, breytast
og mennirnir með. □
TEXTIOG UÓSM.: JÓHANN GUÐNIREYNISSON