Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 4
vikan
15. JÚLÍ1993
14.TBL. 55. ÁRG.
VERÐ KR. 438 MA/SK
í áskrift kostar VIKAN kr. 350
eintakið ef greitt er með giró en kr.
307 ef greitt er með VISA, EURO
eða SAMKORTI. Áskrittargjaldið er
innheimt fjórum sinnum á ári, sex
blöð í senn. Athygli skal vakin á því
að greiða má áskriftina með EURO,
VISA eða SAMKORTI og er það
raunar æskilegasti greiðslumátinn.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í
síma 91-813122.
Útgefandi:
KROSSGATU
MEÐ VÖLDUM KROSSGATUM UR VIKUNNI
Samútgáfan Korpus hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þórarinn Jón Magnússon
Ritstjórnarf ulltrúi:
Hjalti Jón Sveinsson
Framkvæmdastjóri:
Jóhann Sveinsson
Markaðsstjóri:
Helgi Agnarsson
Innheimtu- og dreifingarstjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Framleiðslustjóri:
Sigurður Bjarnason
Sölustjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Aðsetur:
Ármúli 20-22,108 Reykjavík
Sfmi: 685020
Útlitsteikning:
Guðmundur Ragnar Steingrímsson
Ágústa Þórðardóttir og
Þórarinn Jón Magnússon
Setning, umbrot, litgreiningar
og filmuskeyting:
Nú hefur litið dagsins
Ijós krossgátublað Vik-
unnar með völdum
krossgátum úr blaðinu frá síð-
ustu árum.
Gísli Ólafsson hefur samið
krossgátur Vikunnar í meira en
hálfa öld og eru þær eitt vin-
sælasta efni blaðsins hverju
sinni. Það vekur athygli að þó
að Vikan hafi oft á löngum ferli
skipt um ritstjórn og áherslur í
útgáfunni hafi breyst hefur
aldrei hvarflað að neinum að
sleppa krossgátunni úr blaðinu.
„Vikan kom fyrst út 1938 og
það kom náttúrlega strax
krossgáta í blaðinu. Ég sá
krossgáturnar í fyrstu blöðun-
um og þó ég hefði aldrei búið
til neina slíka datt mér í hug
að gamni mínu að búa til eina
og sendi þeim hana. Hún var
birt og síðan var hringt í mig
og ég beðinn um að halda á-
fram að búa til krossgátur fyrir
blaðið," segir Gísli.
„Krossgáturnar í Vikunni
urðu fljótt vinsælar. Stundum
komu kvartanir um að þær
væru fullþungar en af því að
þetta varð vinsælt fannst mér
að ætti ekki að slá af kröfun-
um. Ég hef eiginlega haldið
því að hafa krossgáturnar í
þyngra lagi svo fólk geti ekki
bara sest niður og hlaupið í
gegnum þær, kannski á hálf-
tíma. Gjarnan hef ég á tveim-
ur eða þremur stöðum ein-
hver sjaldgæf orð sem fólk
þarf virkilega að hugsa um.
Samútgáfan Korpus hf.
Prentun og bókband:
Oddi hf.
Höfundar efnis i þessu tölublaði:
Jóhann Guðni Reynisson
Hjalti Jón Sveinsson
Þórarinn Jón Magnússon
Sigrún Sigurðardóttir
Þorsteínn Erlingsson
Christof Wehmeier
Gunnar H. Ársælsson
Sigtryggur Jónsson
Steingerður Steinarsdóttir
Jóna Rúna Kvaran
Loftur Atli Eiríksson
Fríða Bjórnsdóttir
Auður Haralds
Anna S. Björnsdóttir
Gísli Ólafsson
Guðjón Baldvinsson
Myndir í þessu tölublaði:
Binni
Bragi Þ. Jósefsson
Þórarinn Jón Magnússon
Hjalti Jón Sveinsson
Jóhann Guðni Reynisson
Steingerður Steinarsdóttir
Þorsteinn Erlingsson
Max Bradley
Loftur Atli Eirfksson
Fríða Björnsdóttir
Forsíðumyndin er af
Birgittu Vilbergsdóttur,
fimmta þátttakandanum í keppninni
um titilinn forsiðustúlka
Vikunnarog Wild 1993.
Sjá nánar á bls.16 og 17.
Ljósm.: Max Bradley.
Breytingarnar á blaðinu og
eigenda- og ritstjóraskipti hafa
afskaplega lítið komið við mig.
Ég kem bara þarna og af-
hendi mína krossgátu."
- Krossgáturnar eru kannski
það efni, andstætt við fiest
annað, sem hefur sáralítið
breyst á þessum áratugum.
- Já, það má segja það.
Eina breytingin, sem hefur
orðið, var þegar teknar voru
inn myndir til notkunar í kross-
gátunum. Þá breyttu þær svo-
lítið um útlit. Myndirnar hafa
kannski gert krossgáturnar
dálítið líflegri. Það er bara út-
litsatriði.
- Þótt þú hafir verið þaul-
sætinn við að semja krossgát-
ur hefur aðalvettvangur þinn
verið ritstörf af ýmsu tagi. Þú
hefur meðal annars verið
kenndur við Þjóðsögu.
- Já, ég annaðist fyrir
Þjóðsögu ritstjórn á árbók út-
gáfunnar í sextán eða sautján
ár. Þetta er alþjóðleg útgáfa
sem er gefin út í Sviss og átta
öðrum löndum. Þessi árbók er
auk þess með íslenskum
kafla sem Björn Jóhannsson,
ritstjórnarfulltrúi Morgunblaðs-
ins, sér um. Mitt verk var að
þýða eða sjá um þýðingar á
öllum textum í bókinni. Text-
inn kemur frá Sviss á þýsku
sem og öll niðurröðun eða
hönnun bókarinnar. íslenski
textinn verður því að falla inn í
og má hvorki vera of langur
né of stuttur á hverri síðu fyrir
sig. Þetta er að verulegu leyti
myndabók með textum. Svo
eru í bókinni greinar um vís-
indi, læknisfræði, myndlist, í-
þróttir og fleiri sérsvið. Það er
28. árið sem þessi bók er að
koma út núna.
- Þú hefur þýtt fjöldann all-
an af bókum.
- Já, ég hef nú enga tölu á
þeim lengur. Sérstaklega
þýddi ég mikið áður fyrr. Eg
hirti aldrei um að skrá þýðing-
arnar hjá mér og nú á ég ekki
einu sinni allar bækurnar sem
ég hef þýtt. □
4 VIKAN 17.TBL. 1992