Vikan - 15.07.1993, Qupperneq 17
trommur." Þegar hún er spurð að því hvort
það fari saman að vera fyrirsæta og trommu-
leikari í senn segir hún að fram að þessu hafi
það ekki truflað sig. „Ég set mig inn í ákveðin
hlutverk í báðum tilfellum, hvort sem ég er að
fara upp á svið til að sýna eða sest við
trommusettið. Mér finnst skemmtilegt að fást
við hvort tveggja og vissulega eru hlutverkin
ólík.“
Af hverju ætli Birgitta hafi farið að spila á
trommur - til undantekninga heyrir að stúlkur
mundi kjuðana? „Ég sagði við ömmu mína
þegar ég var í fimmta bekk að ég ætlaði ein-
hvern tíma að verða trommuleikari f kvenna-
hljómsveit, upp úr því fór ég að læra á tromm-
ur. Reyndar var það bara lítið og ég hætti
fljótlega. Loks kom að því að við stelpurnar
stofnuðum hljómsveit fyrir um þremur árum.
Við byrjuðum samt ekki að spila opinberlega
fyrr en einu og hálfu ári síðar.
Við höfum haft nóg að gera. Síðastliðinn
vetur vorum við að spila eitthvað flestar helg-
ar. Þess vegna hafði ég ekki áhuga á að
sækja skemmtanalífið þar fyrir utan. Við höf-
um ferðast töluvert í tengslum við þetta. Við
fórum til Danmerkur í vetur til að taka upp tvö
lög á safnplötu og fyrirhugað er að við spilum
á tónleikum í Svíþjóð á næstunni. Bretland er
einnig inni í myndinni. Um næstu helgi förum
við vestur á Flateyri. Þar verðum við á Vagn-
inum, sem er meiri háttar staður.“
Hvað um fyrirsætustörfin? „Ég hef litla
reynslu af þeim enn sem komið er. Ég tók þátt
í fyrirsætukeppni Suðurnesja í vor, hlaut
þriðja sætið og er því fulltrúi Suðurnesja í for-
síðukeppninni.
Ég ætla að reyna að gera sem mest næsta
vetur, vonandi bæði í tengslum við sýningar-
störf og spilamennskuna. Margir hafa verið að
furða sig á því að ég, trommuleikarinn í Kol-
rössu, hafi áhuga á að leggja fyrir mig fyrir-
sætustörf en mér finnst þetta mjög spenn-
andi.“
FYRIRSÆTA EÐA
BIFVÉLAVIRKI?
í einhvefjum fjölmiðlinum var haft á orði síð-
astliðinn vetur að stúlkurnar í Kolrössu
krókríðandi væru púkalegar, klæddar í ólögu-
legar mussur. „Það var einhver sérfræðingur-
inn sem setti út á okkur fyrir klæðaburð en
hver verður að fá að hafa sínar skoðanir á því
eins og öðru. Það þýðir ekkert að spila í fötum
sem maður notar annars til að punta sig með.
Við verðum að klæðast einhverju þægilegu.
Auðvitað hef ég gaman af því að fara í falleg
föt. Ef ég kemst í tæri við einhverja flík sem
mér þykir falleg þá reyni ég að eignast hana.
Annars er ég ekki með fatadellu, ég reyni að
nýta það sem ég á í fataskápnum."
Aðspurð um framtíðina sagði Birgitta að
það gæti svo margt komið til greina. „Ef ég á
einhverja framtið fyrir mér sem sýningarstúlka
hefði ég ekkert á móti því, svona í og með.
Mig hefur líka alltaf langað til að verða bifvéla-
virki. Annars er þetta auðvitað allt á huldu
ennþá."
Að lokum var hún spurð hvernig hún vildi
hafa draumaprinsinn. „Hann verður að vera
tillitssamur og skemmtilegur. Hann má ekki
vera allt of íhaldssamur, hann verður að vera
til í að vera svolítið öðruvísi þegar svo ber
undir.“ Til fróðleiks má geta þess að
kærastinn er Jón Örn Arnarson,. trommu-
leikari í hljómsveitinni Jet Black Joe. □