Vikan - 15.07.1993, Side 18
maður að fara frá einum stað
til annars á stuttum tíma, frá
einni borg til annarrar og frá
einu landi til annars. Mér líkar
slíkt í raun og veru ekki sem
best. Ég er borinn og barn-
fæddur í London og hef lifað
og starfað þar lengst af. Ég
ferðaðist mikið áður fyrr en
geri minna að því núna. Ég vil
vera sem mest í London, þar
sem rætur mínar liggja. Og
vegna þess að ég vil vera
sem mest heima hjá mér tek
ég að mér Ijósmyndun á fleiri
sviðum, einkum þó fyrir hvers
konar auglýsingar.
Aðaláhugamál mitt er að
vinna skapandi myndir sem
vissulega passa ekki alls
staðar, eins og til dæmis í
blað eins og Vikuna þar sem
myndirnar þurfa að vera af
ákveðinni gerð. Þess vegna
set ég mig í ákveðnar stelling-
ar þegar ég tek myndir í for-
slðukeppnina og geri það eins
og ætlast er til af mér. Auðvit-
að hljóta myndirnar samt að
bera einhver persónuleg ein-
kenni frá mér.“
Að lokum var Max Bradley
beðinn um að nefna nokkur
þeirra tímarita þar sem myndir
hans hefðu birst.
„Vanity Fair, The Face, í
(tölsku útgáfunni af Vogue,
Donna og Sunday Times.
Samkeppnin er mikil í stéttinni
og í London einni eru yfir tvö
þúsund tískuljósmyndarar
sem starfa sjálfstætt og bjóða
fjörutíu til fimmtíu tímaritum
þjónustu sína. Ég elska þessa
vinnu og þykir spennandi að
taka þátt í samkeppninni. Ég
er ánægður með hvað ég hef
komist langt og tel mig hafa
gott orð á mér í London og
París til dæmis þar sem stfll
minn þykir sérstakur. Ég á
erfitt með að skýra það í orð-
um, þú þyrftir að sjá myndir
mínar til þess að skilja hvað
ég á við.“ □
held að nái langt ef hún verð-
ur á réttum tíma á réttum
stað. Á íslandi eru margar
mjög fallegar stúlkur, svo
mikið er vfst.“
- Eru þær öðruvísi
en á meginlandi Evrópu
eða á Bretlandi?
„Alls staðar þar sem
maður kemur hafa
stúlkurnar eitthvað sér-
stakt við sig, til dæmis
þær þýsku. Eg veit ekki
hvað skal segja um þær ís-
lensku en mér finnst þær alla
vega ekki vera líkar þeim
skandinavísku. Þær eru evr-
ópskari á einhvern hátt, eink-
um þó hvað varðar klæða-
burð. Mér virðast íslendingar
vera mjög meðvitaðir um
tísku, einkum yngra fólkið. Ég
hef einnig tekið eftir því að
hér klæða margir sig eftir því
sem passar hverjum og ein-
um.“
- Hversu lengi hefur þú
verið tískuljósmyndarí?
„Ég er verkfræðingur að
mennt og starfaði sem slíkur í
mörg ár og rak eigið fyrirtæki.
Að lokum var ép orðinn hund-
leiður á því. Eg hafði lengi
haft mikinn áhuga á Ijósmynd-
un og að því kom að hún tók
hug minn allan. Ég tók mér
þrjú ár til þess að kafa til
botns í faginu og kenna sjálf-
um mér allt sem ég taldi mig
þurfa að kunna og hóf síðan
að starfa sem Ijósmyndari. Ég
er algjörlega sjálfmenntaður á
þessu sviði og er mjög stoltur
af því.“
RÆTURNARILONDON
- Hefurðu þurft að ferðast
mikið vegna starfs þíns?
„Já, heilmikið. Ég hef til
dæmis farið nokkrum sinnum
til Bandaríkjanna og víða um
Evrópu og hef meðal annars
dvalist oft og lengi á ítalfu. Ég
hef einnig tekið myndir á
framandi slóðum eins og í
Norður-Afríku. Ég hef ekki
ennþá komist til Austurlanda
fjær en mig langar mjög mikið
til þess að fá einhvern tíma
tækifæri til að mynda á Ind-
landi. Tískuljósmyndun krefst
þess að maður sé
mikið á ferðinni
og oft þarf
Max Bradley hefur verið
með annan fótinn á íslandi í
sumar vegna forsíðukeppni
Vikunnar og Wild því að
hann á heiðurinn af Ijós-
myndunum af öllum þátt-
takendum. Max hefur sér-
stakan stíl og skemmtilegan
S sem sjá hefur mátt á mynd-
^ um hans hér í blaðinu. Tíð-
: indamaður Vikunnar leit inn
til hans þar sem hann var í
óðaönn að taka myndir af
\ næstu þátttakendum, en þá
= var hann hér í annarri heim-
on sókn sinni.
t/i
3= „Eg kom hingað til Islands
> fyrir atbeina Lindu Pétursdótt-
^ ur og Les til þess að taka
myndir fyrir Wild sérstaklega
i= og svo í tengslum við forsíðu-
^ keppnina. ísland var skemmti-
^ leg uppgötvun fyrir mig. Bæði
£< er landið fallegt og hér hef ég
ÞÞ! kynnst mjög góðu og athyglis-
verðu fólki - það er svo
skemmtilega brjálað og það
líkar mér. Mig langar að koma
hingað eins oft og ég get og
mun koma hingað aftur til að
vinna við þessar myndatökur.
Þið hafið eignast nýjan aðdá-
anda á landi og þjóð, það
verð ég að segja.“
- Hvernig líst þér á stúlk-
urnar sem þú hefur verið að
mynda?
„Þær sem ég hef verið að
mynda eru yfirleitt mjög falleg-
ar og sumar framúrskarandi
að mínum dómi.“
- Hefurðu ef til vill upp-
götvað einhverja sem gæti
slegið í gegn erlendis?
„Við erum að reyna það.
Maður veit samt aldrei hvað
gerist fyrr en það verður
áþreifanlegt. Ég held að sum-
ar muni fá tækifæri, einkum
hef ég eina í huga sem ég
LANGT
- RÆTT VIÐ MAX BRADLEY, UÓS-
MYNDARA FORSÍÐUKEPPNINNAR
SUMAR
GÆTU
KOMIST
18VIKAN 14. TBL. 1993