Vikan - 15.07.1993, Page 21
Kennarar og nemendur viö klippibúnaöinn. Eftir því sem
viröist er þaö sjálfur skóiameistarinn, Oddur Albertsson,
sem er á skjánum.
SKÓLI
asta vetur voru sextíu krakkar
í skólanum, hvaðanæva af
landinu, krakkar sem eru ef til
vill ekki alveg ákveðnir í því
hvað þeir ætla að taka sér fyr-
ir hendur í framtíðinni en vilja
gefa ýmsum möguleikum
tækifæri. Þetta er ungt og leit-
andi fólk sem getur valið sér
brautir hvort sem það ætlar
að vera þarna um sinn og búa
sig undir frekara nám í fram-
haldsskóla, sem ef til vill leiðir
til stúdentsþróf, eða vill fara
leiðir sem gera því kleift að
starfa að uppeldismálum í
framtíðinni, matvælaiðnaði, í
heilbrigðiskerfinu sem sjúkra-
liðar til dæmis eða hyggst
leggja fyrir sig listir. í Reyk-
holti er einnig boðið upp á
starfstengt nám enda eru á
staðnum fyrirtæki á borð við
skóverksmiðju og reiðtygja-
verkstæði, bifreiðaverkstæði
og leikskóli auk fjölbreyttrar
þjónustustarfsemi.
Að sögn Odds skólameist-
ara leggja bæði nemendur og
starfsfólk skólans mikið upp
úr heimilislegu andrúmslofti
og góðum persónulegum
tengslum. Allir búa og starfa
saman þarna f skólanum og
aldrei þarf að fara lengra en
um hlaðið til að komast á milli
bygginga og þeirra staða sem
fólk þarf að leita til.
EIN FIÖLSKYLDA
í skólanum var haldið uppi
fjörugri klúbbastarfsemi í fyrra
og má í því sambandi nefna
kvikmyndaklúbb og meðlimir
hans beina ekki athygli sinni
einvörðungu að því að horfa á
myndir heldur ekki síður að
búa þær til og má benda á að
í skólanum er fullkominn
tækjabúnaður hvort sem er til
að taka upp, sýna eða að
klippa og skeyta saman
myndskeið. Árangur vetrarins
mátti síðan sjá á stuttmynda-
hátíðinni þar sem kvikmynda-
gerðarmenn alls staðar að af
landinu leiða saman hesta
sína. Einnig er starfræktur öfl-
ugur Ijósmyndaklúbbur, leiklist
iðkuð af Iffi og sál og gefið út
myndarlegt skólablað svo að
fátt eitt sé talið. Loks má geta
þess að einn laugardag í
mánuði halda nemendur sjálf-
um sér svokallaða „stórveislu"
og er eitthvert þema valið fyrir
hverja og eina.
Oddur gat þess að í skólan-
um væri um að ræða lítið
samfélag nemenda og starfs-
manna þar sem hver og einn
hefði hlutverki að gegna. Á
staðnum ríkir lýðræði sem er
líkast til meira en gengur og
gerist í skólum og eiga nem-
endur til dæmis þrjá fulltrúa á
öllum kennarafundum. „Við
leggjum áherslu á að allir séu
vinir og skólinn sé sameigin-
leg stofnun starfsmanna hans
og nemendanna."
í Reykholtsskóla búa allir f
heimavist. Því gefur augaleið
að allir eru saman í mötuneyti
og f skólanum fer fram hvers
konar þjónusta sem nauðsyn-
‘fyJ \ .'1
Beöiö eftir kræsingunum í stórveislu á laugardagskvöldi.
Hilmar, Fannar og Brynjar leika á létta strengi.
Arnór, Gísli og Björn undirbúa grillveislu.
leg er á heimilum sem þessu,
þjónusta á borð við þvotta og
þess háttar. Og einmitt vegna
þess hvað aðstaðan er góð í
tengslum við mötuneytið gefst
nemendum kostur á nám-
skeiðum í greinum sem tengj-
ast því og taka þátt í matar-
gerð sem öðru sem til heyrir.
Vistin kostar 30 þúsund krón-
ur á mánuði eða um eitt þús-
und á dag. □
14.TBL. 1993 VIKAN 21