Vikan - 15.07.1993, Page 29
ERFÐASKRÁR
eignir sem þarf að meta. Við
getum nefnt dæmi þar sem
um það er að ræða að hvort
hjónaefnið um sig hefur komið
með fbúð í hjónabandið og
sfðan er keypt stórt hús. Þetta
getur því verið mikið reikn-
ingsdæmi þar sem skoða þarf
nettó verðmæti íbúðanna ef
áhvílandi skuldir á þeim eru
mismiklar. Annar aðilinn getur
síðan hafa lagt mikla vinnu í
nýja húsið en hinn ekki komið
nálægt því. Ég get stillt þessu
upp í dæmi þar sem annar
aðilinn er til dæmis talinn eiga
60 prósent af því sem fyrir er
en hinn 40 prósent. Þannig er
hægt að setja upp það sem
virðist eðlilegt dæmi um skipt-
ingu.
Mér finnst persónulega að
fólk eigi að halda sér fyrir sig
þeim eignum sem það kemur
með í hjúskap. Einkum á
þetta við ef börn eru til staðar
því þau verða að vera sátt við
að eignir fyrri maka séu settar
inn í nýtt hjónaband. Hér get-
ur verið um að ræða gamalt
innbú eða slíkt sem gerður er
kaupmáli um. En yfirleitt er
sátt um þessi atriði þegar fólk
kemur til að gera kaupmál-
ann. Hitt hefur þó komið fyrir
og ég man eftir pari sem ætl-
aði að gifta sig á laugardegi
og kom til að gera kaupmála
á föstudegi, á síðustu stundu.
Þau fóru að hnakkrífast um
skiptin fyrir framan mig og
voru alltaf að spyrja hvað mér
fyndist. Þetta varð mjög vand-
ræðalegt. Úr varð þó sam-
komulag, þau giftust daginn
eftir og ég gekk frá skilnaði
eftir tvö ár!
FASTEIGNIR
OG HUNDUR
Um hvað er fólk að gera
kaupmála? „Yfirleitt er um að
ræða fasteignir og önnur mikil
verðmæti,“ svarar Svala og
hlær við þegar spurt er hvort
hundar og kettir séu einhvern
tímann efnisatriði við samn-
ingsggrðina. „Ég hef reyndar
einu sinni upplifað það í skiln-
aðarsamningi að vera beðin
um að setja inn ákvæði um
umgengnisrétt við hund en
þetta er yfirleitt gert þegar
börn eiga í hlut og tryggja þarf
öðru foreldrinu umgengnisrétt
við barn eða börn sín. Þetta
var svipuð uppákoma og í
laginu með Helenu og Þor-
valdi um hundinn. Málinu
lyktaði þannig að konan hélt
hundinum en ég sagðist vera
vitni að því að munnlegt sam-
komulag væri um að maður-
inn fengi umgengnisrétt.
Þannig komst ég hjá þvi að
setja ákvæði um þetta inn í
skilnaðarsamninginn.“
NÖFN OG BRASK
Þegar kaupmáli er gerður eru
tilgreindar ákveðnar eignir og
þær gerðar að séreign,“ segir
Svala. Með séreign er átt við
að annað hjóna er eitt eig-
andi að tilteknum hlut en
annað er svokölluð hjúskap-
areign sem kemur til helm-
ingaskipta við skilnað eða
andlát. „í hjónabandi er hægt
að taka ákveðinn hlut út úr
hjúskapareigninni með kaup-
mála hvenær sem er og gera
hann að séreign. Séreignin
kemur síðan ekki til helm-
ingaskipta hvort sem skiptin
eiga sér stað vegna andláts
eða skilnaðar," bætir Svala
við.
Eftir því sem Svölu virðist
þá eru flestir kaupmálar
gerðir af fólki sem er að hefja
hjúskap eftir að annað eða
bæði hafa áður gengið (
gegnum sambúð eða hjóna-
band. Þá er oft um umtals-
verðar eignir að ræða. „Mér
sýnist líka að meirihluti kaup-
mála sé gerður til hagsbóta
fyrir konur en ég tek fram að
ég hef ekki gert neinar v(s-
indalegar rannsóknir á því.
Það er að því er mér virðist
verið að tryggja konum á-
kveðna séreign.
Því er heldur ekki að leyna
að stundum eru gerðir kaup-
málar þegar eiginmennirnir
eru í áhættusömum viðskipt-
um. Þá eru eignirnar gerðar
að séreign eiginkonu. Þarna
er verið að gera meira en
skipta um nöfn því um leið er
makinn, sem afsalar sér
eignunum á pappírunum, að
taka þá áhættu að það slitni
upp úr hjónabandinu."
ARFUR OG LOTTÓ
Andvirði eignanna, eins og
það er þegar kaupmálinn er
gerður, ræður því sem sett er
í samninginn. Svala segir oft
vera um breytilegar upphæðir
að ræða. Við getum tekið sem
dæmi íbúð sem kemur inn
sem séreign með kaupmála
og er kannski fjögurra milljóna
króna virði. Þegar hún er síð-
an seld nokkru síðar og fást
fyrir hana fimm milljónir þá er
séreignin fimm milljónir. Ef sú
upphæð er notuð til að kaupa
aðra íbúð upp á sjö milljónir
og bæði hjón leggja viðbótina
til með peningum eða skuld-
um þá verður hjúskapareignin
tvær milljónir, ein milljón á
hvorn maka. Síðan geta kom-
ið til alls kyns eignabreytingar
og viðbætur. Fólki er í slíkum
tilvikum bent á að gera viðbót-
arkaupmála þar sem eignun-
um er ráðstafað.
Svala ráðleggur fólki enn-
fremur að setja í kaupmála
ákvæði um að arfur, sem öðru
hjóna tæmist, verði séreign
þess. Sama getur gilt um
lottó- og happdrættisvinninga
og ýmislegt fleira því það er
hægt að semja um nánast
hvað sem er. Það má líka
geta þess að fólki er ekki
nauðugur sá kostur að fara í
einu og öllu eftir ákvæðum
kaupmálans ef sátt er milli
hjóna um annað þegar til
kastanna kemur.
Á það skal einnig bent að til
að kaupmáli gildi þarf að
halda séreigninni aðgreindri
Uno
-fyrir norðlœgar slóðir
730.000
kr. á götuna.
ITALSKIR BIIAR HF.
Skeifunni 17 • 108 Reykjavík • sími (91)677620