Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 42
Ýmsar nýjungar hafa verið
kynntar í Nivea-hreinsilínunni.
Auk kremanna er um að ræða
NIVEA CREME JEUNESSE
aux LIPOSOMES sem er
nærandi og virkt dagkrem,
NIVEA LIPOSOME AUGN-
GEL gegn hrukkum, NIVEA
E-VÍTAMÍNKREM gegn
hrukkum, NIVEA NÆTUR-
KREM með E-vítamíni og
NIVEA AUGNFARÐA-
HREINSIGEL.
Nivea er alþjóðlegt snyrti-
vörumerki og eru vörur þess
framleiddar undir ströngu
gæðaeftirliti. □
PIERRE FABRE
Næst stærsta lyfjafyrirtækið í
Frakklandi er Pierre Fabre.
Það er í einkaeign, var stofn-
að árið 1961 og hefur nú á að
skipa 7700 starfsmönnum.
Þar af eru 700 við rannsóknir.
Þó að meirihluti framleiðsl-
unnar séu lyf er um það bil
þriðjungur hennar snyrtivörur
sem seldar eru til sjötíu landa.
Eftirtaldar vörur frá Pierre
Fabre eru seldar hór á landi:
KLORANE - ætlað umhirðu
augnanna, háreyðingarvökvi,
svitalyktareyðir, sjampó og
sápur.
ELANCYL - styrkjandi vör-
urfyrirlíkamann.
AVENE - kremlína fyrir við-
kvæma húð. Húðsjúkdóma-
fræðingar hafa mælt með
henni.
Auk þess selur Pierre
Fabre merkin Ducray, Galenic
og Furterer sem eru öll mjög
þekkt í Frakklandi.
Plöntur og náttúrleg efni
eru ævinlega aðalundirstaða
varanna frá Pierre Fabric og
er um að ræða sömu staðla
og prófanir hvort sem um lyf
eða snyrtivörur er að ræða. □
JA
NÝTT FRÁ MARBERT
PROFUTURA kremið frá Mar-
bert hefur nú verið á markaði
hér á landi í tvö ár og hafa
margar konur notað það með
góðum árangri. Nú er komin
ný lína frá Marbert, SKIN-
PERFECT.
Skinperfect vörurnar eru
hannaðar á grunni nýjustu
uppfinninga á sviði líkams-
klukkunnar (chronobiology),
auk þess sem tillit er tekið til
eðlilegra, þurra húðgerða og
blandaðra. I línunni er boðið
upp á húðhreinsivörur, nætur-
krem, dagkrem, augnkrem, lit-
að dagkrem og maska.
Efnið „Maritime radical
scavenger", sem að grunni til
er gert úr þörungum, er í öll-
um dagkremunum. Það
verndar húðina gegn skaðleg-
um ytri áreitum og ótímabærri
öldrun af völdum sólarljóss. í
næturkremunum eru sérstök
efni úr þörungum og einfruma
sveppum sem hjálpa til við
endurnýjun húðfruma. □
HREINSILÍNAN
FRÁ NIVEA
Mildu kremin í hreinsilínu
Nivea innihalda rakavernd-
andi efni sem kemur í veg fyr-
ir ofþornun húðarinnar.
HREINSIKREMIÐ, sem nota
má daglega, fjarlægir óhrein-
indi og farða af andlitinu á ár-
angursríkan hátt. SKRÚBB-
KREMIÐ („peeling"), með
smáu kornunum, hreinsar
húðfrumur og óhreinindi úr
andliti. Regluleg notkun einu
sinni til tvisvar í viku örvar
blóðrásina og heldur húðinni
ferskri.
CASTING HÁRLITUR
FRÁ L'ORÉAL
Casting er nýjung frá rann-
sóknarstofu L’Oréal og veldur
þáttaskilum að sögn framleið-
anda. Hér er um að ræða nýja
litunaraðferð án ammoníaks
og er hún þess vegna mild og
fer vel með hárið.
Casting lýsir ekki hárið
heldur gefur því hlýjan blæ,
spennandi tóna og gljáa sem
vinnur með náttúrlegum lit
þess. Casting er líka sagt lita
grá hár svo eðlilega að þau
falli fullkomlega að þeim hluta
hársins sem ekki er farinn að
grána. □