Vikan - 15.07.1993, Page 59
Pétur var vinnumaður í sveit.
Hann fékk símskeyti frá kærust-
unni, sem var í bænum, um að
hún kæmi í heimsókn um helg-
ina. Hann fékk lánaðan hest-
vagn, spennti fyrir hann ungan
fola og ók af stað til að sækja
kærustuna á biöstöðina. Þetta
var eins til tveggja tíma ferðalag
og allt gekk eins og í sögu þar til
á bakaleiðinni að þau óku fram-
hjá heilmikilli merasýningu. Við
að sjá þennan glæsilega mera-
hóp reis folinn upp á afturfæturna
og fékkst síðan ekki úr sporun-
um, hvernig sem að honum var
farið. Loks missti Pétur þolin-
mæðina, gekk að folanum og
hrópaði: - Heyrðu, góði, varst
það þú eða ég sem fékk sím-
skeytið?
Tveir menn sátu saman í klefa
í járnbrautarlest. Allt í einu tek-
ur annar þeirra upp tvær gul-
rætur og stingur þeim í sitt
hvort eyra. Innan skamms gat
hinn ekki stillt sig um að
spyrja: - Fyrirgeföu, en hvers
vegna hefurðu stungið gulrót-
unum í eyrun? - Ha, hvað seg-
irðu? - Ég spurði hvers vegna
þú ert með gulrætur í eyrun-
um? - Fyrirgeföu, ég heyri svo
illa vegna þess aö ég er meö
gulrætur í eyrunum.
Per Jakobsen yfirlögregluþjónn
kom heim til sín af næturvaktinni
þrem tímum fyrr en venjulega. Til
þess að vekja ekki konuna lædd-
ist hann hljóðlega inn í svefnher-
bergið og háttaði í myrkrinu. Eftir
stutta stund heyrði hann konu
sína stynja: - Góði Per, ég hef
alveg hræðilegan höfuöverk. Nei,
kveiktu ekki, Ijósið sker svo í
augun. Viltu ekki vera svo vænn
að skreppa fyrir mig í apótekið
og kaupa nokkrar verkjatöflur.
Jakobsen var góður eiginmað-
ur, hann klæddi sig í skyndi í
myrkrinu og fór í apótekið. Apó-
tekarinn þekkti Jakobsen, var
greiðviknin sjálf og afgreiddi
hann strax. - Er þetta ekki Jak-
obsen yfirlögregluþjónn? spurði
hann. - Jú, ég hélt að þú þekktir
mig, svaraði Jakobsen undrandi.
- Jú, það geri ég líka, sagði apó-
tekarinn, en mig rak í rogastans
að sjá þig í einkennisfötum
slökkviliðsmanns!
FINNDU 6 VILLUR
Finnið sex villur eða fleiri á milli mynda
i jeiueA qji ‘ge^uujuj jnjep jeuunuo>| e>(se) ‘uue>(>iej) espli e jbuujo>|
rue jn|0) ')sAejq jnjeq |66n|6 'jeqeu je suueujnios puoq ‘ejjæis je Q|)||>is
STJORNUSPA
HRÚTURINN
21. mars - 20. apríl
Það hefur flögrað að þér
að undanförnu að taka þér tak og
breyta ákveðnum þáttum í lífi þínu.
Notaöu næstu vikurnar til þess því
að hika er sama og að tapa. Kapp-
kostaðu að hafa málin á hreinu. Þú
átt góða helgi í vændum.
»?,a:
W bý é
NAUTID
apríl - 21. maí
Þú ert orðinn þreyttur á því
hvað nákomin persóna er ósjálf-
stæð í ýmsu því sem máli skiptir í
lífinu. Ekki láta það fara í taugarnar
á þér, reyndu fremur að koma til
móts við hana.
TVÍBURARNIR
22. maí - 21. júní
Láttu ekki ósamlyndi við
vinnufélaga koma þér úr jafnvægi.
Málstaður þinn er góður en þú
veröur aö fara milliveginn. Hafðu
augun opin fyrir nýjungum um leið
og þú treystir gömul vináttubönd.
KRABBINN
22. júní - 23. júlí
Einhver mun á næstunni
leita aðstoðar þinnar við að leysa
ákveðinn vanda. Þú skalt bregðast
vel við þó að tími þinn kunni að
vera naumur. Þú stendur vel að
vígi en gætir bætt úr ástarmálunum
með því að nota frítímann betur en
hingað til.
UÓNIÐ
24. júlí-24. ágúst
Þú hefur skemmtilegar fyr-
irætlanir á prjónunum en hefur beð-
ið með að láta þær verða að veru-
leika. Nú er tími Ijónsins að renna
upp og því er betra að láta til skar-
ar skríða. Vertu varkár í peninga-
málum en láttu einskis ófreistað við
að hressa sál og líkama.
MEYJAN
24. ágúst - 23. sept.
Þú átt tvær rólegar vikur
framundan. Notaðu tímann til að
hugsa málin og leggja á ráðin um
framtíðina. Tækifærið hefur þú nú
fengið upp í hendurnar til að sinna
þínum nánustu betur - í staö þess
að gleyma þér yfir sjálfsskoðuninni.
VOGIN
24. sept. - 23. okt.
Þú hefur oft veriö í betra
jafnvægi andlega og ekki er laust
við svolítinn taugaóstyrk hjá þér
þessa dagana. Foröastu að taka
að þér of mikla vinnu meðan á
þessu stendur en láttu samt ekki
hugfallast. Góöir hlutir láta stund-
um bíða eftir sér
SPORÐDREKINN
24. október - 23. nóv.
Ýmislegt gæti bent til þess
aö flutningar séu í nánd en kvíddu
engu í því sambandi. Þú hefur ekki
fylgst nógu vel meö aö undanförnu
og nú er kominn tími til að þú hristir
af þér slenið og áttir þig á stöðunni.
BOGMAÐURINN
24. nóv. - 21. des.
Þú verður fyrir vonbrigðum
með einhvern sem þú hafðir gert
þér háar hugmyndir um. Gefðu
þeim hinum sama samt tækifæri til
að sanna sig betur áður en þú ferð
að huga að öðru skipi og öðru föru-
neyti. Njóttu þess þegar þú átt frí,
þér mun jafnvel hlotnast óvænt
hnoss.
STEINGEITIN
22. des - 20. janúar
Þú átt annríki framundan
og margt er í bígerð. Þér bjóðast
ýmis tækifæri og gætir jafnvel dott-
ið í lukkupottinn ef þú ferð út I á-
kveðna verslun sem getur gefiö
talsvert í aðra hönd - og ennþá
meira ef fjárhagurinn væri skárri.
Spilltu ekki ánægjunni með ein-
hverri glópsku.
VATNSBERINN
21. janúar - 19. febrúar
Eitthvað verður til þess að
koma þér úr jafnvægi - ef til vill
draugur úr fortíðinni. Láttu ekki
hugfallast og haföu í huga að öll él
birtir upp um síðir. Ef þú kappkost-
ar að hugsa ekki um ol margt í einu
ættirðu að komast klakklaust út úr
þessu.
FISKARNIR
20. febrúar - 20. mars
Gleymska þín gæti valdið
því að sitthvaö óvænt komi upp á -
eins og til dæmis gjalddagi á láni
sem þú hélst að væri að fuliu greitt.
Farðu vandlega í gegnum bókhald-
ið áður en þú tekur stórar eða smá-
ar ákvarðanir í fjármálum. Gerðu
þér samt dagamun við tækifæri en
hafðu þetta hugfast.
14. TBL. 1993 VIKAN 59