Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 63
EVRÓPSKAR KVIKMYNDIR
Þær ætluöu upphaflega í brúökaup en ákváöu þess í staö aö
fara út á lífiö.
ENGIN ÞORF
Á AÐ SOFA
Nie wieder Schlafen tekur til
umfjöllunar samband þriggja
vinkvenna, Ritu, Robertu og
Lilian. Þær eru á leið I brúð-
kaupsveislu, ferðast með
fljótapramma en verður öllum
svo flökurt að þær fara fljót-
lega í land, þá staddar í fyrr-
um Austur-Berlín. Allar þrjár
ákveða síðan að sleppa brúð-
kaupinu en fara þess í stað út
á lífið. Konur þessar eru á
misjöfnum aldri og hafa mis-
munandi skoðanir á lífinu og
tilverunni en það gerir vináttu
þeirra einmitt litríkari. Þær
sleppa síðan fram af sér
beislinu og lenda í villtum
ástarævintýrum. Ritu leikur
Lisa Kreuzer sem lék I mörg-
um af myndum Rainers Wern-
er Fassbinder. Meö hlutverk
hinna fara Gaby Herz og
Christiane Carstens.
ÞRJÁR SAKAKONUR
í Au pays des Juliets eiga
Raissa, Thérese og Henriette
tvennt sameiginlegt. Þær eru
sakakonur og fá sólarhringsfrí
frá fangelsinu. Ætlun þeirra er
að fara til fjölskyldna sinna en
þær komast ekki á áfanga-
stað þar sem starfsmenn al-
Þessar fá sólarhringsfri frá
fangelsisvistinni.
menningsvagna eru í verkfalli.
Þess í stað ákveða konurnar
að kynnast hver annarri betur.
Tvær þeirra eru smáþjófar en
sú þriðja hefur myrt eigin-
mann sinn. Maria Schneider
leikur morðingjann en hún
varö fræg á einni nóttu þegar
hún lék á móti stórleikaranum
Luna Park. Þar segir frá
Andrei sem er þjóöernissinni
og öfgamaður á hægri kantin-
um. Fyrirmynd hans er aust-
urrísk-ameríska vöðvafjalliö
Arnold Schwarzenegger. And-
rei fyrirlítur kynvillinga og gyð-
inga og hann stjórnar hópi
öfgasinnaðra náunga sem
leggja stund á kraftlyftingar.
Andrei kemst síðan að því að
hann er hálfur gyðingur og þá
er úr vöndu að ráöa. Hann
vissi nefnilega ekki að faðir
hans, sem hann hefur aldrei
hitt, er gyðingur. Þegar hann
ræðst svo með valdi inn á
heimili gyðings nokkurs ásamt
félögum sínum stendur hann
augliti til auglitis við föður
sinn. Ristir gyðingahatrið svo
djúpt að hann geti gert sínum
eigin föður mein? Luna Park
verður að öllum líkindum sýnd
á kvikmyndahátíð í Regnbog-
anum í september.
ÞRJÁR VINKONUR
ítalska leikarann Michele
Placido sáu íslenskir sjón-
Rússneskur fasisti í Luna Park.
Marlon Brando í Síðasta
tangó í París árið 1972 undir
leikstjórn Bernardo Bertolucci
(Sheltering Sky, The Last
Emperor). Áhorfandinn fær
svo að kynnast konunum
þremur, sárindum þeirra, von-
brigðum og draumum um
betra líf og breytt hlutskipti.
Mynd þessi hlaut mikið lof á
kvikmyndahátíðinni í Cannes í
fyrra.
LUNA PARK
FRÁ RÚSSLANDI
Pavel Lungin er ungur rúss-
neskur leikstjóri sem gerði
myndina Taxi Blues sem sýnd
var á kvikmyndahátíðinni í
Regnboganum 1991. Nú hef-
ur hann gert aðra og heitir sú
varpsáhorfendur í þáttaröðinni
um Kolkrabbann. Þar lék
hann lögreglumann sem átti í
hatrömmu stríði við mafíuna á
Sikiley. Síðustu ár hefur
Placido getið sér gott orð sem
leikstjóri, meðal annars fyrir
Pummaro, heimildarmynd um
ólöglega innflytjendur frá
Afríku. Michele Placido leggur
ríka áherslu á að hann vilji
eingöngu gera raunsæjar
kvikmyndir, engar draumóra-
myndir á ameríska vísu.
Nýjasta mynd hans heitir
Vinkonurnar þrjár og er um
Morenu, Claudiu og Salinu
sem eru á táningsaldri, tví-
stígandi og ráðvilltar gagnvart
lífinu. Morenu langar að verða
hjúkrunarkona og gera sam
félaginu gagn. Móðir hennar
hafði átt við eiturlyfjafíkn að
etja og Morena reynir að gera
allt sem í hennar valdi stendur
til að hjálpa henni. Claudia á
skilningslausa foreldra sem
hún hefur nánast engin sam-
skipti við. Hana langar að
verða sýningarstúlka og hefur
fengist lítillega við að koma
fram í sjónvarpi og sitja fyrir.
Salina er innhverf og hlédræg
stúlka sem á ástríkan föður
en móðir hennar en dáin og
n
cc
70
cn
Ö
það er fyrst og fremst söknuð-
urinn eftir hana sem veldur
því að hún á erfitt með að
opna sig. Vinkonurnar þrjár
eiga þó eftir að standa sig og
veita hver annarri styrk til aö
lifa lífinu áfram.
Á EFTIR ÁSTINNI
Apéres l’amour fjallar um rit-
höfundinn Lolu Winter sem er
þrjátíu og fimm ára gömul og
komin með ritstíflu, á sem
sagt erfitt með að finna nýjar
hugmyndir að skáldsöguefni.
Þetta er þó aðeins brot af
vandamálum hennar. Hún
þarf að fást við karlmenn sem
hringja í tíma og ótíma og
gera henni lifið leitt, er fráskil-
in og þarf
auk þess að
einbeita sér
að barna-
uppeldi. Mitt
í allri óreið-
unni er mað-
ur sem ætlar
sér að eign-
ast hlutdeild
í lífi Lolu.
Hann elskar
hana af lífi
og sál og
tekur hana eins og hún er.
Isabelle Huppert (Madame
Bovary), Bernard Giraudeau,
Hippolyte Girardot og Ingrid
Held eru meðal þeirra sem
fara með helstu hlutverk í
myndinni. □
Þrjár
æskuvin-
konur sem
standa
saman.
Tekist á
um ástina
í Aprés
l’amour.
14. TBL. 1993 VIKAN