Vikan


Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 70

Vikan - 15.07.1993, Blaðsíða 70
Hún er einstaklega miðsvæóis í Evrópu en íslendingar hafa ekki uppgötvað hana ennþá. Frankfurt viö ána Main. meiri áherslu á nýsköpun í atvinnulífinu á ís- landi enda er það mjög einhæft. í því sam- bandi hefur verið bent á að ferðamannaþjón- ustu þurfi að efla. Ég hef hins vegar ekki orðið var við það, fremur hið gagnstæða. Því miður er það svo að það eru engir fjár- munir til á íslandi. Það má enginn græða og verða ríkur. Svo þegar illa gengur eru engir í stakk búnir til að leggja fé í áhættusaman rekstur sem gæti skilað miklu. Oftast er það þannig að samræmi er á milli áhættunnar og Hin glæsilega landsbankabygging, Die deutsche Bank, í Frankfurt. Turnarnir tveir eru til gamans kallaöir Debet og Kredit. Þess má geta aö bankastjórinn þar ku hafa stækkaóa Ijósmynd frá íslandi á skrif- stofunni hjá sér. mögulegs afraksturs. Það eru allt of fáir sem vilja fara út í slíka hluti - en tækifærin eru fjöl- mörg. Þetta er stór galli á íslensku athafnalífi. Það leiðir líka af sjálfu sér að fólk er ekki hvatt til þess að reyna nýja hluti og taka áhættu ef enginn getur staðið við bakið á því. Fjárfest- ingar okkar í gegnum árin, sem farið er út í þegar vel gengur, eru því miður margar hverj- ar afar óskynsamlegar, dæmi um slíkt höfum við alls staðar í kringum okkur. Mín skoðun er sú að við séum ekki fullþróuð þjóð, við erum vanþróuð á evrópskan mælikvarða. í því sam- bandi má nefna mannasiði, fjármagnsmark- aði, fjárfestingar og viðskipti. Það er þó ýmislegt að gerast sem betur fer, það er mikil þróun í gangi. Á síðustu árum hafa gjaldeyrisviðskipti verið gefin frjáls, ríkis- skuldabréf tekin í notkun og verðbréfamörk- uðum komið á laggirnar, þó að þeir séu að ýmsu leyti vanþróaðir ennþá.“ RÖNG VERÐLAGNING OG LÍTIL KYNNING Þjóðverjar tala mikið um að það só allt of dýrt að fara til íslands, verðlagið þar sé með ólík- indum og miða þá oft við reynslu sína frá til dæmis Noregi og Svíþjóð. „Fyrir okkur sem erum að selja ferðir til ís- lands er verðlagið heima stærsta vandamálið sem við þurfum að glíma við. Við höfum ný- lega gert samanburð á því hvað aðrar þjóðir verja miklum peningum til kynningarmála mið- að við okkur. Staðreyndin er sú að miðað við hvað ferðirnar til íslands kosta og uppihald þar er dýrt eyðum við mjög litlu fé til kynningar á landi og þjóð. Núna hafa til dæmis Svíar lækkað verðið hjá sér um allt að 25 prósent frá því í fyrra. Þeir nota síðan fleiri milljón þýskra marka til að kynna þetta. Við erum dýrir og erum frekar að hækka á meðan aðrar þjóðir eru að lækka verðið og auka kynning- una. Við erum kannski með athyglisverðasta pakkann en hættan er fólgin í rangri verðlagn- ingu og lítilli kynningu. Ferðirnar sem slíkar standafyrir sínu, það er engin spurning." ÍSLAND I BULLANDI SAMKEPPNI Steini Loga verður tíðrætt um að ekki sé varið nægilega miklum fjármunum í landkynningu og ekkert sé gert til að gera þeim sem vinna að ferðamálum auðveldara um vik, síður en svo. „Það er mikið rætt og ritað um það um þessar mundir að í ferðamálum á íslandi ríki nú stöðnun og við séum að dragast aftur úr. Ég er ósammála þessu, þetta er bara bölsýni. Aftur á móti held ég að áherslurnar séu ekki réttar. Möguleikarnir, sem við höfum, eru mikl- ir og varan - ferðirnar sem við bjóðum - er mjög góð. ísland er mjög frambærilegt sem ferðamannaland. Spurningin er hins vegar sú að verja fjármunum til þess að kynna það, við höfum alls ekki gert nóg að því. Við megum heldur ekki verðleggja landið upp úr öllu valdi - eins og laxveiðiárnar, þangað til enginn kemur lengur. Að mínu viti getur ferðamannaþjónusta orðið atvinnugrein sem aflar þjóðarbúinu þeirra tekna sem við missum jafnt og þétt í tengslum við fiskveiðar og vinnslu. Og enn er verið að auka skatta og skyldur á ferða- menn og fyrirtæki á þessu sviði. Munurinn á ferðamannaþjónustu og öllum öðrum at- vinnugreinum, sem átt hafa að bjarga ís- landi - á borð við loðdýrarækt og laxeldi, er sá að ferðamannaþjónustan hefur ekki verið miðstýrð. Hún hefur fengið að þróast hægt og rólega á löngum tíma og þar starfa sam- an margar smáeiningar þar sem mikil reynsla og þekking hefur skapast í gegnum árin. Það eina sem vantar er fjármagn og skilningur. Ég held að okkar bíði nú tækifærin ef við höfum skynsemi til þess að notfæra okkur þau. Við verðum bara að líta á ferðamanna- þjónustu sem harðan „bisness" og gera okk- ur grein fyrir því að við eigum í bullandi sam- keppni við önnur lönd. Við þurfum að mark- aðssetja okkur með tilliti til þessa, athuga hver eru helstu samkeppnislöndin, bera saman verðlag og þá þjónustu sem þar er í boði. Hvað eru þeir að gera og hvernig þurf- um við að bregðast við? Það skilja það allir að þjóðartekjur minnka ef verðlag á fiskinum okkar erlendis hefur lækkað. Það virðist vera erfiðara fyrir fólk að skilja að þetta gerist líka ef við hækkum endalaust verðið á ferðaþjón- ustunni, þá koma færri gestir hingað. Fiskunum fækkar stöðugt í sjónum - en fólkið hér í Evrópu til dæmis, sem gæti hugs- anlega fengið áhuga á að koma til íslands, skiptir tugum milljóna og því fer fjölgandi. Við þurfum bara að ná til þess. Við þurfum fjár- magn til landkynningar, það skilar sér marg- falt ef því er varið af skynsemi. Umfram allt þarf líka verðlagið að vera í samræmi við það sem við bjóðum og það sem viðgengst ann- ars staðar. Mér finnst að við ættum að hafa það sem raunverulegt markmið að fá til íslands eina milljón ferðamenn á ári fyrir 2020. Við þurfum um leið að stjórna umferðinni betur og beina fólki á fleiri staði um leið og við reynum að dreifa því yfir lengri tima á árinu, ekki bara þessa þrjá mánuði á sumrin. Jafnvel þarf betri dreifingu yfir vikuna því að flestir koma og fara um helgar." □ 70 VIKAN 14. TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.