Vikan - 04.11.1993, Side 4
SKEMMTANALÍFIÐ
4. NÓVEMBER 1993
2ZTBL. 55. ÁRG.
VERÐ KR. 438 M/VSK
í áskrift kostar VIKAN kr. 350
eintakið ef greitt er með gíró en kr.
307 ef greitt er með VISA, EURO
eða SAMKORTI. Áskriftargjaldið er
innheimt fjórum sinnum á ári, sex
blöð í senn. Athygli skal vakin á því
að greiða má áskriftina með EURO,
VISA eða SAMKORTI og er það
raunar æskilegasti greiðslumátinn.
Tekið er á móti áskriftarbeiðnum í
síma 91-813122.
Útgefandi:
Samútgáfan Korpus hf.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Þórarinn Jón Magnússon
Ritstjórnarfulltrúi:
Hjalti Jón Sveinsson
Framkvæmdastjóri:
Helgi Agnarsson
Innheimtu- og dreifingarstjóri:
Sigurður Fossan Þorleifsson
Framleiðslustjóri:
Sigurður Bjarnason
Sölustjóri:
Pétur Steinn Guðmundsson
Auglýsingastjóri:
Helga Benediktsdóttir
Aðsetur:
Ármúli 20-22, 108 Reykjavík
Sími: 685020
Útlitsteikning:
Guðmundur Ragnar Steingrímsson
Ágústa Þórðardóttir og
Þórarinn Jón Magnússon
Setning, umbrot, litgreiningar
og filmuskeyting:
Samútgáfan Korpus hf.
Prentun og bókband:
Oddi hf.
Höfundar efnis í þessari Viku:
Þorsteinn Erlingsson
Þórarinn Jón Magnússon
Bergþór Bjarnason
Sigrún Sigurðardóttir
Jóna Rúna Kvaran
Hjalti Jón Sveinsson
Valgerður Katrín Jónsdóttir
Halla Sverrisdóttir
Guðmundur Sigurfreyr Jónasson
Bryndís Hólm
Guðjón Baldvinsson
Gísli Ólafsson
Helga Möller
Pétur Valgeirsson
Myndir í þessu tölublaði:
Bragi Þ. Jósefsson
Magnús Hjörleifsson
Jóhann Guðni Reynisson
Hjalti Jón Sveinsson
Sigrún Sigurðardóttir
Pétur Valgeirsson
Þórarinn Jón Magnússon
Binni o.m.fl.
Forsíðumyndina
tók Bragi Þ. Jósefsson
af Halldóru Halldórsdóttur,
forsíðustúlku Vikunnar 1992.
Förðun: Dóra Takefusa
Hárgreiðsla: Sigrún Ægisdóttir,
hárgreiðslustofunní Hótel Sögu.
4 VIKAN 22.TBL.1993
TEXTIOG LJOSM.: ÞORSTEINN ERLINGSSON
/ ••
STUÐ A OMMU
B!
II
i laðamaður Vikunnar
|brá undir sig betri fæt-
"inum fyrir skemmstu og
fór á eitt margumtalaðra
skemmtikvölda á veitinga-
staðnum Ömmu Lú. Þar hafa
verið og verða næstu helgar
ýmsir landskunnir listamenn
sem troða upp og leyfa gest-
um að njóta hæfileika sinna
enda hefur tiltækið fallið í
mjög góðan jarðveg. Nefna
má Bergþór Pálsson, Elsu
Waage, Jóhann Sigurðarson,
Ladda, K.K., Szymon Kuran,
Örn Árnason og jafnvel skjóta
fleiri þar upp kollinum í fram-
tíðinni.
Það voru þeir Jóhann og
Örn sem skemmtu þetta kvöld
og fóru á kostum bæði með
sprelli og söng eins og þeim
einum er lagið. Listafólkið
skemmtir að öllu jöfnu frá
klukkan tíu til ellefu en það fer
eftir stemmningunni hverju
sinni hvort sá tími framlengist.
Að uppákomum loknum er
dansleikur fram á rauða nótt
þar sem hljómsveit spilar fyrir
dansi.
Fjölbreyttur matseðill er á
boðstólum þar sem fólk getur
valið á milli fjölda rétta og er
breiddin vægast sagt mikil.
Það sem kom blaðamanni
einna mest á óvart var hversu
mjög verðinu er stillt í hóf fyrir
þessa mjög svo vönduðu
veislu.
Það verður sem sagt mikið
um að vera á Ömmu Lú
næstu helgar eins og þetta
umrædda kvöld þegar Vikan
var að virða fyrir sér skemmt-
analíf höfuðborgarinnar. □
Fyrir skömmu var tekin í
notkun viðbygging sem
reist hefur verið við fé-
lagsheimili Mosfellsbæinga,
Hlégarð. Þar hafa verið
haldnir dansleikir, fundir og
þing í áratugi og hefur húsið
þjónað hlutverki sínu með
sóma. Þegar ákveðið var að
setja nýtt loftræstikerfi í húsið
kom í Ijós að nauðsynlegt
yrði að byggja yfir það baka
til. Þar með myndaðist 170
fermetra pallur sem afráðið
var að byggja yfir. Með
þessu móti opnuðust nýir
möguleikar og var teiknistofa
Gylfa Jónssonar fengin til að
hanna ný salarkynni sem
voru vígð þann 15. október
síðastliðinn. Vignir Kristjáns-
son veitingamaður annast
reksturinn og segir nýbygg-
inguna meðal annars gera
það að verkum að nú geti
tveir aðskildir viðburðir farið
fram í húsinu samtímis.
TEXTIOG UÓSM.: HJALTIJÓN SVEINSSON
HLÉGARÐUR
AUKINN
TEXTIOG UÓSM.: HJALTIJÓN SVEINSSON
KONÍAKSSTOFA Á ARGENTÍNU
Á dögunum var tekin í notkun
glæsileg koníaksstofa á
Argentínu steikhúsi. Þar bjóða
þeir Kristján Þór Sigfússon og
Óskar Finnsson veitingamenn
gestum sínum upp á einkar
notalegt andrúmsloft og hafa á
boðstólum eðalkoníak, arman-
íak, portvín sem fornt og góm-
sætt viskí. Vindlakassinn
þeirra hefur að geyma góð-
gæti á borð við kvöldverðar-
vindla frá Kúbu og uppáhalds-
vindla Winstons Churchill.
Ekkf amalegt það fyrir þá sem
kun'na að meta slíkt. □