Vikan


Vikan - 04.11.1993, Blaðsíða 51

Vikan - 04.11.1993, Blaðsíða 51
jgjgHg sá þessi efni fyrst þegar ég flutti til Danmerkur og féli samstundis fyrir þeim, Btasegir Elsa María Ólafsdóttir sem var að opna vefnaðarvöruverslunina GOTT [ EFNI í húsi Guðlaugs A. Magnússonar á Laugavegi 22 A. Elsa María er nýflutt heim ásamt fjöl- skyldu sinni eftir sjö ára búsetu í Kaupmanna- höfn þar sem hún útskrifaðist sem handa- vinnukennari fyrir fullorðna frá Hándarbejdets Fremmes Seminarium. Hún lærði þar fata- saum, tauþrykk og vélprjón. Efnin, sem hún talar um, kallast „Skipper stoffer", þau eru fyrst og fremst unnin úr bómull og njóta mikilla vinsælda í Danmörku. „Ég saumaði mikið úr þeim á krakkana mína og sjálfa mig meðan ég var f námi,“ heldur Elsa María áfram. „Hugmyndin að þvf að fara að versla með þau kviknaði þó ekki fyrr en fjölskyldan fór að hugsa til heimferðar. Þá byrjaði ég nefnilega strax að sakna þeirra fyrirfram því Skipper-efnin hafa ekki fengist á íslandi fyrr en núna. Fyrirtækið, sem framleiðir efnin, er að mörgu leyti mjög sérstakt. Það er í eigu hjónanna Gert og Ingu Midttun og þau reka aðeins eina verslun í Kaupmannahöfn því þrátt fyrir alla möguleika á að breiða sig út um allt leggja þau mikla áherslu á að halda starfseminni innan fjölskyldunnar. Þau vilja að stemmningin í kringum fyrirtækiö sé heimilis- leg og hugguleg og einblína á gæði fremur en aö fara út í ópersónulega fjöldaframleiðslu. Ég vissi af þessu þegar ég arkaði á fund Gerts og spurði hvort væri nokkur möguleiki á að fá umboð til að selja efnin þeirra á íslandi. Eftir að hafa síðan fullvissað þau um að ég hefði hug á að starfa i svipuðum anda fékk ég sem sagt þetta umboð. Þetta var fyrir tæpum þremur árum. Ég útskrifaðist svo úr handavinnukennara- skólanum í febrúar í fyrra. Það var nánast vonlaust fyrir mig að fá eitthvað að gera í fag- inu f Danmörku, atvinnuleysið er svo mikið þar, en ég kenndi þó eitt misseri á kvöldnám- skeiði á vegum verkalýðshreyfingarinnar i Herlev, einu af úthverfum Kaupmannahafnar. Hins vega gera Danir mikið fyrir þá sem vilja hafa eitthvað fyrir stafni á meðan þeir eru at- vinnulausir og ég fór því á ýmis námskeið sem tengjast rekstri fyrirtækja til að búa mig undir aö opna þessa verslun. Þannig gat ég meira að segja farið í eins konar starfsnám í Skipper-búðinni til að kynna mér nákvæmlega þann rekstur sem ég haföi áhuga á.“ Ætla mætti að það væri mikil bjartsýni að stofna svona verslun á þessum síðustu og verstu krepputímum. „Ég hef alltaf verið bjart- sýn en hvort bjartsýnin er of mikil varðandi verslunina verður bara að koma í Ijós. Ég fer út þetta vegna þess að ég trúi því að fleiri en ég muni hrífast af þessum efnum. Sauma- skapur til eigin nota hefur alltaf verið tölu- verður hér á landi og ég held hann eigi eftir aö fara vaxandi fremur en hitt. Það er hag- kvæmt til lengri tíma litið að sauma á sig sjálfur og það er skemmtilegt, fyrir nú utan að maður getur verið nokkuð viss um að mæta ekki einhverjum í nákvæmlega eins fötum hvar sem maöur kemur. Gott í efni verður heldur ekki einungis vefnaðarvöruverslun, hér verður líka boðið upp á saumanámskeið og ýmislegt fleira er á prjónunum," segir Elsa María og lætur allt krepputal sem vind um eyru þjóta. □ Lausnarorö sföustu krossgátu: SÓLARLAG 22.TBL. 1993 VIKAN 51 VERSLUN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.