Vikan


Vikan - 04.11.1993, Blaðsíða 30

Vikan - 04.11.1993, Blaðsíða 30
VIÐTAL VIÐTAL: VALGERÐUR KATRÍN JÓNSDÓniR UÓSM.: BRAGIÞ. JÓSEFSSON O.FL. „MÉR HEFUR VERIÐ BÆTT ALLT MÓT- LÆTI í LÍFINU" r \ 40 ár var Asrún lífsförunautur Arons í Kauphöllinni Hann sagðist eiga bestu konu í heimi, besta hús og besta garð í Reykjavík, fallegasta bílinn í bænum og sumar- bústað á fegursta stað á Suðurlandi. Hann var öðrum þræði framsýnn fjármálamaður en hins vegar Ijóðelskur blómaræktarmaður. Nú er hann genginn á vit feðra sinna og konan hans, besta kona í heimi, búin að gefa Skóg- rækt ríkisins sumarbústaðinn á fegursta stað á Suðurlandi. Þó hann hafi verið landsþekktur maður þekktu færri konuna hans en hún var, eins og margar konur af hennar kynslóð, kon- an á bak við manninn. Ásrún Einarsdóttir heitir hún og var í um fjörutíu ár lífsförunautur Arons Guðbrandssonar. Hún býr enn á sama stað, á Grenimelnum, í besta húsi í heimi eins og Aron lýsti því. Hún tekur vel í beiðni blaðamanns Vikunnar um að fá að ræða við hana um lífshlaupið. í stofunni er dúkað borð hlaðið góðgæti að gömlum sið, dúkinn saumaði móðir hennar sem hún missti aðeins fjögurra ára gömul. „Ég er fædd og uppalin í Þingeyjarsýslu, fæddist á Einarsstöðum í Reykjadal. Við Einar á Einarsstöðum vorum systkinabörn. Mamma hét Anna Haraldsdóttir og pabbi Einar Guð- mundsson. Mamma lést af barnsförum þegar ég var fjögurra ára og barnið dó líka. Mamma var níu árum eldri en pabbi, hann var rúmlega tvítugur þegar ég fæddist og hún tæplega þritug. Hún átti erfitt með að eiga börn, að minnsta kosti gekk henni ekki vel að fæða mig því að ég var tekin með töngum. Móður- 30 VIKAN 22.TBL. 1993
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.