Vikan


Vikan - 04.11.1993, Blaðsíða 19

Vikan - 04.11.1993, Blaðsíða 19
ætla ég aftur á móti að fá mér talþjálfara og reyna að ná málinu alveg.“ Er það draumurinn að reyna fyrir sér úti? „Já, það má segja það. Mór var boðin vinna í stærsta leikhúsi Edinborgar þegar ég lauk námi en þá var ég ákveðinn í að koma heim. Núna langar mig mikið til að fara út aftur og ég stefni f að fara út á næsta ári. Það fer samt dálítið eftir því hvernig atvinnuleyfismálin fara, það er frekar erfitt að fá atvinnuleyfi þarna. Bretland er heldur ekki það eina sem kemur til greina. Mig langar dálítið til Danmerkur, ég finn mig svo óskaplega vel í Kaupmannahöfn. Þýskaland kemur einnig til greina en verst er hvað ég er svakalega slappur í þýskunni. Ég er mjög rótlaus karakter og mig hefur alltaf ■ Fyrst eftir skilnaðinn leið mér mjög vel og fannst ég vera ofsalega frjáls. En svo, nokkrum mánuöum síðar, dynur á manni hvað þetta er skelfi- legt áfall. Maöur heldur áfram, heldur áfram að vinna en ein- hvers staðar inni í manni er eitthvað brostið og verður ekki sett saman aftur. dreymt um að ferðast mikið. Við Ásdís festum okkur alltof snemma, sextán, sautján ára. Fyr- ir vikið gerði ég ekki þá hluti sem mig dreymdi um að gera. Við byrjuðum að búa nítján ára og vorum komin í brauðstritið alltof snemma." Kynntust þið í Verzló? „Nei, hún var í Kvennó. Við kynntumst í Hagaskóla. Hún var æskuástin og minn besti vinur.“ Þið giftið ykk- ur á meðan þið eruð í námi í Skotlandi og eignist barn. „Já, við eignuðumst Guðmund. Hann er þriggja og hálfs árs núna. Það var mjög erfitt að vera með ungbarn í öðru landi. Við höfðum engan hjá okkur sem við gátum leitað til í sambandi við barnið og það var mjög erfitt. Ásdís tók sér ársfrí frá námi til að hugsa um hann en ég hafði mjög mikið að gera í mínu námi á þessum tíma og hafði í raun afskaplega lítinn tíma fyrir nokkuð annað en sjálfan mig. Þetta gekk samt ágætlega því Ásdís er svo yndisleg manneskja og honum kippir í það kynið. Hann er jafnskapgóður og góður og hún.“ Felix lýkur námi vorið ‘91 og kemur þá heim til að vinna hjá Leikfélagi Akureyrar í sýning- unni Tjútt og tregi eftir Valgeir Skagfjörð. Um jólin kemur Ásdís til íslands og þá ákveða þau að skilja. „Þessi skilnaður var mjög sérkenni- legur og ég geri mér grein fyrir því að það allt hefur verið mikið á milli tannanna á fólki. Fólk hefur alltaf haft miklar skoðanir á mér og mín- um karakter. Mér finnst mjög gaman að geta snúið mér við, ullað á fólk og sagt „þú skildir mig hvort sem er aldrei". Skilnaðurinn var óumflýjanlegur og hann var fjölskyldunni minni mjög erfiður. Hann kom öll- um mikið á óvart því við höfðum haldið mjög glæsilegt brúðkaup nokkrum árum áður, áttum yndislegt barn saman og vorum mjög ham- ingjusöm. Foreldrar mínir áttu erfitt með að taka þessu í fyrstu, sérstaklega pabbi. Honum þykir svo óskaplega vænt um Ásdísi og þeim reyndar báðum. Það hjálpar mjög mikið, þegar maður er að ganga í gegnum svona erfiða hluti eins og skilnað, að eiga góða að. Foreldr- ar mínir eru stórkostlegir. Þau búa hérna rétt hjá og ég fer oft til þeirra. Við þau er hægt að tala um allt. Þórir bróðir minn er samt sá sem ég leitaði fyrst til eftir skilnaðinn og hann er bú- inn að reynast mér rosalega vel. Það er furðu- legt hvernig málin hafa þróast á líkan hátt hjá okkur. Við giftum okkur sama árið, eignuðumst börn, tvo litla stráka, sama árið og skildum svo með stuttu millibili. Þar sem við erum einir með strákana leitum við líka meira til mömmu og pabba. Ég geri mér núna grein fyrir því hvað það er mikilvægt að eiga góða að. Það skiptir bara öllu máli. Maður gerir sér enga grein fyrir hvað skiln- aður tekur mikið á tilfinningalega. Fyrst eftir skilnaðinn leið mér mjög vel og fannst ég vera ofsalega frjáls. En svo, nokkrum mánuðum síðar, dynur á manni hvað þetta er skelfilegt áfall. Maður heldur áfram, heldur áfram að vinna og lifa en einhvers staðar inni í manni er eitthvað brostið og verður ekkert sett sam- an aftur. Það sem skilnaður skilur fyrst og fremst eftir sig er sársauki. Fólk verður að gera sér grein fyrir því hvað þetta er sárt og hvað það á að reyna mikið svo það þurfi ekki að ganga í gegnum þetta helvíti. Ef fólk er búið að vera í sambandi og það eru búin að vera einhver leiðindi á það að reyna að vinna úr þeim og leysa málin á annan hátt en með skilnaði. Maður horfir á vini sína ganga í gegnum skilnaði eftir mjög góð og ástrík hjónabönd og fólk er hætt að geta talað sam- an. Það er hræðilegt. Við Ásdís höfum sem betur fer alltaf getað talað saman og aðalmálið er að við höldum góðu sambandi. Ásdís er eina konan sem ég á nokkurn tímann eftir að elska. Það sem er mikilvægast hjá okkur báðum er að barnið okkar hljóti gott uppeldi í eðlilegu umhverfi. Við hittumst mikið og tölum heilmikið saman. Við höfum auðvitað rætt hlutina fram og til baka og í okkar tilviki var skilnaður óumflýjan- legur. Þetta gerðist samt allt mjög hratt og ég hljóp í raun bara burt frá vandamálunum. Ég lenti í rosalega erfiðu tímabili eftir skiln- aðinn og sukkaði frá mér allt vit. Þeir sem ■ Ég er enginn snillingur. Ég er enginn Laurence Olivier. Ég er bara leikari sem getur leikiö viss hlutverk og get leikið þau alveg ágætlega en ég þarf líka aö hafa djöfull mikiö fyrir því. þekkja mig vita að ég er ekki mjög villt týpa en á þessum tíma fór ég alla leið. Þegar ég var tekinn fullur að keyra og missti bílprófið sá ég hvað var að gerast og ákvað að slappa að- eins af. Nú er ég búinn að þrauka þetta ár bíl- laus og er að fá prófið aftur. Bíllinn er búinn að vera í öruggum höndum systkina minna. Að setjast fullur undir stýri er það vitlausasta sem ég hef nokkurn tímann gert. Ég var alveg perudrukkinn og hefði auðveldlega getað drepið sjálfan mig og marga aðra í leiðinni." Haustið eftir að Felix kom heim lék hann, eins og áður sagði, f söngleiknum Tjútt og tregi eftir Valgeir Skagfjörð. „Valgeir vissi að ég gat sungið því hann mundi eftir mér úr Greifunum og tók sénsinn á að ég gæti leikið. Það er ótrúlegt hvað leiðir okkar Valgeirs hafa legið mikið saman. Eftir Tjútt og trega lékum við saman í Islandsklukkunni, Blóðbræðrum og núna siðast í Standandi pínu. Þetta hljóta að vera einhver örlög.“ Ertu forlagatrúar? „Nei, alls ekki,“ segir Fel- ix og hlær. „Það byggist alit á tilviljunum. Ég trúi því að hver og einn skapi sér sína eigin gæfu, algjörlega. Ég er ekki trúaður maður. Ég aðhyllist þó þá heimspeki sem er í kristinni trú um til að mynda að elska náungann og að það sem maður vill að aðrir geri manni skuli maður þeim gera. Það er einnig margt í krist- inni trú sem ég get á engan hátt sætt mig við. Það er svo margt sem er sagt að sé en ég get ekki snert á neinn hátt. Ég get ekki trúað á slíkt. Eg trúi ekki heldur á spákonur og yfir- I æsilegu hlutverki á námsárunum í Edinborg. náttúrlega hluti. Ég trúi á hið góða í mannin- um. Það er númer eitt, tvö og þrjú - að vera góður, bæði við sjálfan sig og alla aðra - að særa ekki og ógna ekki öðru fólki. Svo lendir maður náttúrlega í því að særa þá sem manni þykir vænst um,“ segir hann hugsi. Guðmundur sonur hans var með honum þetta fyrsta hálfa ár eftir að hann kom heim. „Við Guðmundur erum miklir vinir. Það er nauðsynlegt að eyða miklum tíma með börn- unum sínum. Hann er mikið hjá mér þegar hann er á íslandi og sfðasta sumar tókum við okkur til dæmis mjög gott frí saman, sváfum út á morgnana og borðuðum kókópuffs, fórum svo í helgarferðir með foreldrum mínum út á land. Það var fullkomið sumarfrí. Ég vil eiga þátt í að hann komist til manns. Hann skiptir mig meira máli en nokkuð annað f lífinu og ég sakna hans iíka alveg eftir því núna þegar hann er í Skotlandi." Við víkjum aftur að leiklistinni. Margir ís- lenskir leikarar, sem lært hafa erlendis, hafa lent í vandræðum með að leika á íslensku eft- ir að hafa verið að vinna með annað mál í nokkur ár. Hefur þetta eitthvað háð þér? „Nei, það hefur ekki gert það. Ég hef alltaf haft gott vald á íslenskunni og góða máltilfinningu. Það er rétt að sumir sem hafa lært úti hafa þurft að taka taltíma þegar þeir koma heim.“ Felix segir að leiklistarkennslan í skólanum, sem hann var í, sé þónokkuð ólík kennslunni í Leiklistarskóla íslands, miklu meiri áhersla sé til dæmis lögð á raddþjálfun og það hafi kom- ið honum vel. „Bretarnir eru sannir snillingar hvað varðar raddþjálfun og alla textavinnu.“ Felix var mjög heppinn þegar hann kom heim og fékk strax nócj að gera. Á eftir Tjútti og trega lék hann í Islandsklukkunni sem einnig var sett upp á Akureyri. „Ég lék Magnús í Bræðratungu, eiginmann Snæfríðar íslands- sólar. Það var frábært hlutverk og ég fékk þar tækifæri til að leika á móti Elvu Ósk Ólafsdótt- ur og Þráni Karlssyni sem eru bæði stórkost- legir leikarar og ég ber mikla virðingu fyrir.“ 22.TBL. 1993 VIKAN 19 LEIKLIST
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.