Vikan


Vikan - 04.11.1993, Page 40

Vikan - 04.11.1993, Page 40
FRÆGT FOLK en þau komu til Gene Kelly og hann þóttist verða dauðskelkaður. Víncente dekraði við dóttur sína á alla lund. Einhverju sinni ók hann með hana i klukku- tíma til að fara með hana í skemmtigarð, en þegar þangað kom lýsti daman þvf yfir að henni líkaði ekki kjóllinn sem hún var í. Vincente ók umyrðalaust aftur heim og Liza hafði fataskipti. Svo var aftur lagt í hann. Vincente umvafði hana ást og umhyggju og Iff Lizu átti eftir að einkennast af leit hennar að þeim manni sem gæti komið f stað föðurins í lífi hennar. TVEIR HEIMAR Vincente vann mikið og tók Lizu því oft með sér í stúdíóið. Ekki leið því á löngu þar til hún var þar heimavön og var farin að fá nasaþef- inn af „sjóbisnessnum" sem foreldrar hennar lifðu og hrærðust f. Síðar sagði hún oft að henni hefði leiðst í stúdíóinu og engan áhuga haft á leiklist en samstarfsmenn Vincentes minnast þess að hann gaf henni oft góð ráð og útskýrði fyrir henni það sem hann var að gera hverju sinni því að hann kom ævinlega fram við dóttur sína eins og jafningja sinn. Á afmælum fékk Liza oft að gjöf smágerðar eftirlíkingar af þekktum söngleikjabúningum og hún naut þess að klæða sig í þá og þykjast vera aðalleikkonan f An American in Paris eða The King and I, með tilheyrandi söng og dansi. Judy hafði gifst leikaranum Sid Luft og flust til London. Þann hluta ársins sem Liza var hjá Judy var líf hennar með talsvert öðru sniði. Judy elskaði dóttur sína mjög heitt en per- sónuleg vandamái hennar skyggðu ævinlega á. Eins og svo mörg börn áfengissjúklinga lærði Liza fljótt þá list að láta sem allt væri með felldu, sama á hverju gekk. Þegar Judy var illa á sig komin, sem kom æ oftar fyrir, reyndi Liza alltaf að leyna því fyrir öðrum. Hún var þvf ekki bara dóttir móður sinnar heldur líka verndari hennar, hjúkrunarkona og ritari. Árið 1952 fæddist Judy önnur dóttir, Lorna Luft. Liza var alsæl því að hún þráði heitt að eignast systur. Hún var sex og hálfs árs göm- ul. Samband þeirra hálfsystranna hefur alla tíð verið mjög náið og Liza sýndi enga afbrýði eða reiði I garö litlu systurinnar. Það var annað mál þegar Vincente var ann- ars vegar - hann vildi Liza eiga ein. Þegar hann giftist Georgette Martel árið 1954 átti Liza erfitt með að hemja afbrýðina og reiðina og Georgette átti erfiða daga þegar hún reyndi að hæna telpuna að sér. Þau eignuð- ust siðan dóttur en Liza átti aldrei gott með að umgangast hana. í ársbyrjun 1961 hóf Liza nám í hinum víð- fræga Listaháskóla i New York, þeim sem síð- ar var gerður ódauðlegur í kvikmyndinni Fame. Hún hafði snemma hneigst til söng- og danslistar og það kom fljótlega ( Ijós aö hún var ótrúlega fljót að læra dansspor og lög. Liza var ekki nema fimmtán ára og samhliða listnáminu gekk hún i gagnfræðaskóla í Scarsdale. Þar fór hún í leikklúbb skólans og fékk svo til öll aöalhlutverkin við fádæma und- irtektir. Upp frá því kom ekki annað til greina sem framtíðarstarf en leiklist og söngur. LAGT Á BRATTANN Það lá auðvitað beinast við fyrir dóttur Judy Garland og Vincentes Minelli aö hefja ferilinn í Hollywood. Einmitt þess vegna vildi Liza ekki gera það. Hún vildi fara á Broadway. „Ég vildi ekki verða kvikmyndastjarna, ég vildi slá í gegn á Broadway. Ég vildi gera eitthvað sem foreldrar mínir höfðu aldrei gert.“ Það var henni bæði til framdráttar og trafala að vera dóttir foreldra sinna. „Það er auövitað frábært að eiga greiða leið inn í öll áheyrnar- próf i bænurn,” sagði Liza sjálf, „en þegar maður á svona foreldra þarf maður að standa sig helmingi betur, annars hefur manni mis- tekist.“ Árið 1963 fékk hún annað stærsta hlutverk- ið í gamalgrónum Broadway-söngleik, Best Foot Forward, og þótti takast mjög vel upp. „Ungfrú Minelli hefur góða tilfinningu fyrir gamanleik," skrifaði einn gagnrýnandinn, „og þó að söngröddin sé ekki stór er hún mjög falleg, að mörgu leyti lík rödd móður hennar.“ Liza slapp sjaldnast við að vera á einhvern hátt borin saman við móður sína. Liza var aðeins átján ára þegar hún hitti Peter Allen, ungan söngvara sem átti sívax- andi vinsældum að fagna á næturklúbbum i Þegar tók aö halla undan fæti hjá Lizu voru þaö gömlu fjölskylduvinirnir Frank Sinatra og Sammy Davis yngri sem hjálpuöu henni aö fara í afvötnun. London. Hann hafði komið fram meö Judy á tónleikum og hún á vissan hátt tekið hann undir verndarvæng sinn. Peter varð fyrsta ást- in i lífi Lizu, ef Vincente er undanskilinn, þó ekki yrði hann sú síðasta! Þau hjúin trúlofuðu sig árið 1964, þremur vikum eftir að þau kynntust. Rödd Lizu var nú farin að þroskast og stækka og hún fékk góð sönghlutverk á Broadway. Árið 1965 héldu þær mæðgurnar fræga tónleika ( Palladium-salnum í London og gáfu í kjölfarið út plötu með tónleikunum. Platan seldist í gríðarlegu upplagi og Liza fékk fleiri tækifæri til að halda tónleika og koma fram í New York. Rétt fyrir tuttugasta og fyrsta afmælisdaginn sinn gekk Liza að eiga Peter Allen, eftir tveggja ára trúlofun. Hjónabandið varð frið- sælt og gott en Peter var fremur vinur Lizu en elskhugi, fremur bróðir en eiginmaður. Honum þótti einnig mjög vænt um tengdamóður sína og tók að sér að sjá um fjármál hennar, auk þess sem hann var hálfgerður ritari hennar og sá meðal annars um það gríðarlega magn að- dáendabréfa sem hún fékk. Peter reyndist líka hálfsystkinum Lizu, Lornu fimmtán ára og Joey þrettán ára, afar vel þegar Judy átti sem erfiðast. Hún átti það til að fá heiftarleg reiðiköst og jafnvel að beita ofbeldi. Það var orðið Ijóst að hún réð ekki lengur við lyfjaneyslu sína. Það var svo þann 22. júní árið 1969 að Liza og Peter fengu fréttir um að Judy hefði látist af of stórum pilluskammti. Hún var fjörutíu og sjö ára gömul. Liza tók að sér að segja föður sín- um tíðindin. LISTRÆN ANDSTÆÐA MÓÐUR SINNAR Hjónaband Peters og Lizu varð smám saman nafnið eitt. Þau áttu ekki margt sameiginlegt og lifðu svo að segja sitt hvoru lífinu. Meðan stjarna hennar reis óðfluga hjakkaði hann í sama farinu. Þetta reyndi allt á hjónabandið og árið 1970 skildu þau að borði og sæng. Liza virtist freisinu fegin. Hún hellti sér sam- stundis út i ástríðufullt samband við gítarleik- arann Rex Kramer, sem hafði verið undirleik- ari hjá henni um nokkurt skeið, og skeytti lítið um þá leiðinlegu staðreynd að hann var harð- giftur. Þau voru elskendur i tvö ár. Að sumu leyti má kannski segja að Liza hafi með sam- bandi sínu viö Rex verið að gera uppreisn gegn hlutverki sínu sem litla prinsessan í Hollywood. Á sama tíma vann hún hörðum höndum að því að fá hlutverkið sem hana dreymdi um, hlutverk Sally í söngleiknum Cabaret. Svo ákveðin var hún að hún mætti í fjórtán áheyrn- arpróf fyrir leikstjórann! Allt kom þó fyrir ekki þvi að Jill Hayworth, sem hafði uþprunalega leikið Sally á Broadway árið 1966, fékk hlut- verkið. Liza lét ekki slá sig út af laginu. Hún var svo sannfærð um að hún hefði fæðst beinlínis til að leika Sally að hún endaði oftast tónleika sina með því að syngja titillag söngleiksins, af þvílikum krafti og lífsgleði að áhorfendur urðu yfir sig hrifnir. Og að lokum fékk hún hlutverk- ið, þó ekki væri það á Broadway heldur í kvik- mynd Bobs Fosse eftir söngleiknum sem var frumsýnd árið 1972. Kynni Lizu af leikstjóranum og dansahöf- undinum Bob Fosse áttu eftir að hafa mikil áhrif á hana, bæði í einkalífi og starfi. Fosse var tuttugu árum eldri en hún og hafði reynt ýmislegt. Hann var heillaður af jaðarmenningu og ýmsu sem aðrir töldu heldur óviðurkvæmi- legt eins og klámi og erótískri list. Þetta kom glöggt fram í kvikmyndinni Cabaret þar sem undirtónninn er mjög kynferðislegur og ástríðufullur. Þau Liza fóru meðal annars til Hamborgar þar sem þau skoðuðu nektar- klúbba og klámbúllur í Reeperbahn-hverfinu og Liza, sem aldrei hafði kynnst þessari hlið skemmtanalífsins, var heilluö og jafnframt hrædd. „Við fórum á gamla, rótgróna staði eins og „Syndahreiðrið" þar sem enn var verið að setja upp sýningar með lesbíum í leðjuslag og kynlífssýningum á sviði þar sem áhorfend- um var boðið að láta til sín taka,“ sagði hún vini sínum. „Þetta var mjög áhrifamikið.“ Með Cabaret má segja að Liza hafi endan- lega lýst yfir sjálfstæði sínu. Kvikmyndin lýsir hnignun og spillingu Þýskalands millistríðs- áranna og er alger andstæða verka móður hennar, þar sem fegurð og ævintýri voru alls- ráðandi. Liza Minelli var ekki lengur dóttir Judy Garland heldur bara Liza Minelli; í hlut- verki Sally Bowles var hún allt í senn fyndin, kynþokkafull, beisk, döpur, lífsglöð og róman- tísk. Liza sleit sambandinu við Rex og hélt til Berlínar til að vinna að Cabaret. Þar komst hún í kynni við skemmtanalífið í Evrópu, lærði að sniffa kókaín og átti stormasamt samband við Fosse sem var að sögn heimildarmanns 40 VIKAN 22. TBL. 1993

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.