Vikan


Vikan - 21.03.1994, Side 15

Vikan - 21.03.1994, Side 15
það fram að ég er ekki farinn að hugsa neitt um aðra land- vinninga. Hafnarfjarðarbær er ærið nóg verkefni meðan staðan þar er eins og hún er. Þetta verður því gífurlega mikil vinna og mikið sjálf- boðastarf sem þarf að inna af hendi ef okkur á að takast að rétta úr kútnum. Það verður flókið mál. Þetta er bær sem virðist allt í einu ekki geta annað en safnað skuldum. Það er eins og það sé ekki hægt að snúa dæm- inu við nema með einhverju ógnarátaki sem ég held að enginn venjulegur maður sé tilbúinn að taka þátt í en verður þó á endanum að gera. VIKAN: Nú hafa Hafnfirð- ingar verið með sína eigin listahátíð og rekið eigin menningarstefnu. Hvernig hefur það komið út? MAGNÚS: Það er nú einu sinni svo með allt menning- arstarf að það kemur aldrei fram nema öðrum megin í bókhaldinu. Verðmætin, sem myndast í kringum slíkt skila sér sjaldnast sem beinharðir peningar kredidmeginn í bókhaldinu þannig að það verður seint metið. Ég hef aftur á móti verið hlynntur þessu frumkvæði Hafnar- fjarðar að sinna listum og menningarstarfi á þennan hátt. Sþurningin er svo hvað hægt sé að leyfa sér að ganga langt og taka mikla áhættu. Það er nú fólkið í bænum sem á þá peninga sem þetta er gert fyrir. Það verður þá að vilja þetta - og mæta á það. Það verður að bjóða því eitthvað sem það vill sjá. Við sjálfstæðismenn höfum nú ýmsar hugmyndir sem kannski er of snemmt að tala um núna en ég held að það hljóti að koma tölu- vert í minn hlut að passa það að sjálfstæðismenn gleymi ekki að sinna menn- ingunni. FOSS AF ÓSKILJANLEGUM ORÐUM VIKAN: Er eitthvað til í því að þú sért sjálfur að útbúa einhvers konar kennsluefni í tónmenntum? MAGNÚS: Ég er að taka þátt í að búa til kennsluefni fyrir skóla, ásamt Ellert Borgari Þorvaldsyni, sjálf- stæðismanni og skólastjóra Ártúnsskóla. Við erum að reyna að breyta aðeins ásjónu Ijóðanámsins og ís- lenskunámsins og gerum það með því að vinna með tónlist eftir samtímatónskáld, textahöfunda og Ijóðskáld. Við færum þetta í þann bún- ing að krakkarnir vinna verk- efni upp úr textum, læra að syngja lög og vinna síðan verkefni í kringum þetta. Mitt hlutverk í þessu er að útbúa lögin þannig á kassettur fyrir krakkana að það sé hægt að spila þau í tímunum og þau geti sungið með; einnig að sjá til þess að undirspilið sé jafnframt spennandi og hvetjandi til söngs. Og það hefur nú komið í Ijós að ef krakkar fá að syngja eitt- hvað, sem þeim finnst svona sæmilega töff og vekur áhuga þeirra, þá hafa þeir rosalega gaman af því. Þá verður þetta allt f einu ekki þetta leiðindamál sem það var áður þegar nemendur þurftu að læra utanbókar einhvern foss af orðum sem þeir skildu hvorki haus né sporð á. En þegar þau læra að syngja lag, og textann í leiðinni, þá verður það eig- inlega ósjálfrátt nám - bæði í fslensku og einhverskonar nútíma átthagafræði. Það er voða gaman að sjá krakka á aldrinum tólf til þrettán ára verða að einu spurningarmerki þegar mað- ur talar um tímana eins og þeir voru þegar við vorum á þessum aldri; þegar við töl- um um rock’n’roll, Elvis og Bítlana, eftirstríðsárin og allt það. Það er þeim mjög fjar- lægt í tíma. Við verðum að gera okkur grein fyrir því að það er svo örstutt í það að krakkarnir fari að heyra, oft- ar og oftar, um eitthvað sem gerðist á seinni helmimgi síðustu aldar. Það eru ekki nema nokkur ár til aldamóta og eftir það fer þetta að hljóma í eyrum allra. Þá get- ur maður talað um að maður hafi fæðst á síðustu öld (hlær). ALLAR ÍSLENSKAR HLJÓMPLÖTUR Á HEIMSMARKAÐ VIKAN: Og svo hefurðu ver- ið að kanna ýmislegt fleira varðandi músík. MAGNÚS: Já. Ég álít að hljómplötusala sé að breyt- ast mjög í heiminum í dag. Það eru að brotna veggir og myndast brýr á milli landa og þjóða á þeim vettvangi, m.a. á þann hátt að fólk fer meira að kaupa plötur gegnum tölvukerfi en það hefur gert áður. Ég held að ég sé ekki að tala neina vitleysu þegar ég segi að eftir fimm ár eða svo getir þú laþbað inn í hljómplötuverslun hér á ís- landi og leitað að hljómplöt- unum, sem þú vilt kauþa, í tölvu. Og þú getur flett þeim upp eftir löndum, tegund tónlistar, tónskáldum, flytj- endum og valið það sem þér líst á. Og ef verslunin á ekki á lager það eintak, sem þú vilt fá, þá færðu það sent heim til þín eftir nokkra daga. Og þú semur bara við tölvuna um greiðslu með vísakorti eða á einhvern annan máta. Þannig ertu jafnvel búinn að kauþa þér hljómplötu frá Indónesíu og færð hana eftir tvo, þrjá daga án þess að hafa talað við nokkurn mann. Þetta er að ryðja sér til rúms í Banda- ríkjunum og er mjög vinsælt í Japan. Og þegar þessar stærri og þróaðri þjóðir eru búnar að taka þetta í notkun þá kemur að því að við íslendingar gerum það líka, kannski í samvinnu við hin Norður- löndin, en þá þýðir þetta það að við þurfum að koma okk- ar tónlist í gegnum þessi tölvunet líka. Það er mest spennandi í þessu að ís- lensk tónlist verður skyndi- lega til út um allan heim og öll tónlist, sem til er á geisla- diskum í heiminum, verðurtil á þennan máta. Það er geysilega þungt og flókið ferli að koma t.d. íslenskri tónlist á framfæri annars staðar í heiminum þó að mikið af henni eigi jafnvel er- indi annars staðar. Þetta er svo mikill bissness og mikill iðnaður að ég tel að það sé illmögulegt fyrir íslendinga að koma tónlist sinni á fram- færi án þess að gerast ein- hverjar stórstjörnur í líkingu við Björku Guðmundsdóttur eða Kristján Jóhannsson. Það er sorglegt að vita til þess að ef áhugi útlendinga vaknaði á íslenskri tónlist, út af Björku til dæmis, þá geta menn ekkert snúið sér nema hugsanlega til sendiráðs og það er sem ég sjái sendi- herrana okkar svara ein- hverju af viti um íslenska rokkmúsík, nema kannski í London þar sem Jakob Magnússon er. VIKAN: Hvernig virkar þetta? MAGNÚS: Þetta tölvu- kerfi, sem ég þekki til og við höfum fengið hingað til lands til að skoða nánar, virkar þannig að maður getur feng- ið allar uþþlýsingar svo að segja samstundis um alla tónlist. Við flettum uþþ Beet- hoven að gamni okkar og tölvan sagði okkur á svip- stundu að hann ætti rúmlega fimm þúsund og þrjú hundr- uð verk útgefin í Bandaríkj- unum. Við flettum upp á Jóni Leifs og þá kom í Ijós að hann átti útgefið eitt stórt verk, sem heitir Baldur, í Bandaríkjunum. Við flettum uþþ á Björku Guðmunds- dóttur og sáum allar plötur sem hún hefur sungið á og vitnað í þær allar. Við kom- umst f alla dóma um plöturn- ar með Sugar Cubes þar sem jafnframt var bent á að söng hennar mætti finna á þeim hljómplötum. Við fund- um Ifka undir eins músík með íslensku hljómsveitinni Deep Jimi and the Zap Creams. Með öllum helstu hljóm- plötunum færðu mynd á skjáinn af plötuumslaginu og ef þú snertir skjáinn þá snýst það við. Þú getur lesið allar uþþlýsingar um viðkomandi hljómplötur og leitað að þeim eftir lagi, höfundum, ■ Okkur var henl út af Aröbunum sem voru þarna inni með hnífa á lofti en þeir tóku ekki sjóðinn svo að við gótum haldið upp ó daginn. ■ í Alþingishúsinu okkar er einn maður eftir sem á hljóðfæri. Hann var með lag ó vinsældalistanum fyrir síðustu jól, sem hann hvorki samdi textann við, kunni að leika á gítar né gat sungið. Öðruvísi mér óður bró. FRH. Á BLS. 36 3.TBL.1994 VIKAN 15 ATORKUMAÐUR

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.